Svara engu um afstöðu sína til ríkisstjórnarsamstarfsins

„Ég væri svo mjög til í að þurfa ekki að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum,“ skrifar Þor­steinn V. Ein­ars­son, þriðji maður á lista Vinstri grænna í Reykja­vík. Líf Magneu­dóttir og Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir svara ekki spurn­ingum um málið.

Svara engu um afstöðu sína til ríkisstjórnarsamstarfsins

Líf Magneu­dóttir og Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir, fram­bjóð­endur í 1. og 2. sæti á fram­boðs­lista Vinstri grænna í Reykja­vík, vilja ekki tjá sig um rík­is­stjórn­ar­sam­starf flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn né um þá fram­tíð­ar­sýn sem birt­ist í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Þær bregð­ast ekki við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið og hafa ekki svarað spurn­ingum um afstöðu þeirra til stjórn­ar­sam­starfs­ins á sam­fé­lags­miðlum.

Umræður sköp­uð­ust um málið á Facebook-síðu Davíðs Stef­áns­sonar, fyrr­ver­andi vara­þing­manns, í síð­ustu viku. Þar beindi hann eft­ir­far­andi spurn­ingum til efstu fram­bjóð­enda og „tagg­aði“ þá svo þeim yrði gert við­vart um erindið: „Situr þú í flokks­ráði sem sam­þykkti núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf? (Ef já) Kaustu með eða á móti? Styður þú núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf?“

Þor­steinn V. Ein­ars­son„Ég styð Kötu og Svandísi og Rósu og Andrés Inga,“ skrifar hann.

Einungis Þor­steinn V. Ein­ars­son, þriðji maður á fram­boðs­list­anum, svar­aði spurn­ingum Davíðs. „Ég er ekki í flokks­ráði og þurfti því ekki að taka afstöðu á sínum tíma. Ég styð Kötu og Svandísi og Rósu og Andrés Inga. Ég styð þátt­töku í rík­is­stjórn og fyllist oft stolti af því sem ráð­herrar VG eru að gera. Hins vegar við­ur­kenni ég fús­lega að ég væri svo mjög til í að þurfa ekki að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum,“ skrif­aði hann. „Hvað varðar svo borg­ina þá er eng­inn flokkur með öll þau gildi sem sam­ræm­ast betur minni póli­tísku sann­fær­ingu en Vinstri græn. Svo ekki sé talað um fólkið. Og það er af þeim ástæðum, gild­unum og fólk­inu, sem ég vil starfa innan VG og von­ast til að fá tæki­færi til þess í borg­ar­stjórn eftir kosn­ingar.“

Stundin sendi hinum fram­bjóð­end­unum fyr­ir­spurn um málið á mánu­dag og ítrek­aði í gær. Líf og Elín brugð­ust ekki við erind­inu.

Í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar hvatti Líf til þess að Sjálf­stæð­is­flokknum yrði haldið frá völdum. „Gefum íhald­inu frí, langt frí,“ skrif­aði hún á Facebook. Eftir að VG mynd­aði rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum við­ur­kenndi Líf að hafa verið full yfir­lýs­ingaglöð. „Ég hefði viljað að hér hefði verið mynduð vinstri­st­jórn, og í ljósi alls sem á undan var gengið hvarfl­aði ekki að mér annað en að vinstri­flokk­arnir myndu fá afger­andi umboð kjós­enda til að mynda slíka stjórn. Það fékkst ekki og nið­ur­stöður kosn­ing­anna urðu aðrar en ég og aðrir félagar VG hefðum viljað,“ skrif­aði hún í aðdrag­anda flokks­ráðs­fundar VG þar sem stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórn­ar­innar var sam­þykktur. „Þó sú rík­is­stjórn sem er í burð­ar­liðnum sé ekki sú rík­is­stjórn sem ég hefði kosið þá er hún nið­ur­staða kosn­ing­anna og það er ekki úti­lokað að hún geti komið góðum verkum til leiðar. Ég vona það að minnsta kosti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár