Laun íslenskra bæjarstjóra hærri en í erlendum stórborgum

Árslaun bæj­ar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borg­ar­stjóra New York og London. Báðir bæj­ar­stjórar eru á hærri launum en for­sæt­is­ráð­herra. Laun bæj­ar­stjóra Kópavogs hækk­uðu um tæp 58% á kjör­tíma­bil­inu og laun bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar um 36%. „Allt órétt­læti mun kalla á meiri óánægju,“ segir for­maður stétt­ar­fé­lags­ins BSRB.

Laun íslenskra bæjarstjóra hærri en í erlendum stórborgum
Launa­hæstir Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri Garða­bæjar, og Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs, tróna á toppnum yfir launa­hæstu bæj­ar­stjóra lands­ins, með hærri mán­að­ar­laun en borg­ar­stjórar London og New York.

Launa­hæstu bæj­ar­stjórar Íslands eru á hærri launum en borg­ar­stjórar sumra fjöl­menn­ustu stór­borga heims. Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri Garða­bæjar, og Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs, tróna á toppnum með hærri mán­að­ar­laun en borg­ar­stjórar London og New York.

Stundin óskaði eftir upp­lýs­ingum um laun bæj­ar­stjóra í 19 fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Gunnar er launa­hæstur bæj­ar­stjóra, með 2.272.304 kr. á mán­uði. Þar að auki fær Gunnar bif­reið til afnota, auk þess sem hann fékk greiddar 507 þús­und krónur árið 2017 fyrir fund­ar­setu sem vara­maður í bæj­ar­stjórn. Hann er einnig í stjórn Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og fær fyrir það 130.604 kr. á mán­uði. Gunnar var kjör­inn sem aðal­maður í bæj­ar­stjórn í nýaf­stöðnum kosn­ingum, en þar bætti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn við sig einum manni og hélt hreinum meiri­hluta. Í svari til Stund­ar­innar kom fram að Gunnar hyggst ekki þiggja laun fyrir setu í bæj­ar­stjórn á kjör­tíma­bil­inu.

Á hæla hans fylgir Ármann, með 2.159.670 kr. á mán­uði. Laun hans …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2018

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár