Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Berst gegn umgengnistálmunum en hélt sjálfur barni frá móður þess

Gunn­ar Waage, fram­bjóð­andi Karla­list­ans, hef­ur lát­ið mik­ið að sér kveða í um­ræðu um um­gengn­istálm­an­ir. Sjálf­ur hef­ur hann ít­rek­að hald­ið dótt­ur sinni frá móð­ur henn­ar og for­sjár­að­ila, en í eitt skipti sótti barn­ið ekki skóla um margra vikna skeið.

Berst gegn umgengnistálmunum en hélt sjálfur barni frá móður þess
Segist fórnarlamb tálmunar Gunnar Waage hefur lýst því opinberlega að barnsmóðir sín sé veik, hafi logið upp á sig og tálmað umgengni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Gunnar Waage, varaformaður Karlalistans og baráttumaður gegn umgengnistálmunum, hefur ítrekað haldið dóttur sinni frá móður hennar og forsjáraðila. Í eitt skiptið braust Gunnar inn á heimili mæðgnanna samkvæmt dagbók lögreglu og nam barnið á brott. Í annað skipti hélt hann dóttur sinni frá skóla um nokkurra vikna skeið og neitaði að skila henni til móður sinnar þrátt fyrir að hún færi með fulla forsjá. Stúlkan fór ekki heim til móður sinnar fyrr en eftir að innsetningarkrafa hafði verið tekin til meðferðar í héraðsdómi og dómssátt verið gerð. 

Barnsmóðir Gunnars leitaði til Kvennaathvarfsins meðan þau bjuggu saman árið 2008, en bæði hún og sonur hennar úr fyrra sambandi hafa sakað Gunnar um ofbeldi. Barnaverndaryfirvöld höfðu ítrekað afskipti af málefum barnsins og komu fram þungar ásakanir frá foreldrum á báða bóga sem aldrei leiddu þó til ákæru eða dóms.

Gunnar segir í samtali við Stundina að barnsmóðir sín sé veik og hafi ítrekað logið upp á sig. Í þessu samhengi bendir hann meðal annars á að dómari hafi látið þau orð falla í réttarsal samkvæmt hljóðupptöku að ásakanir móður væru falskar. Jafnframt vísar Gunnar til álitsgerðar matsmanns sem lögð var fram í aðdraganda dómssáttar árið 2016, en þar kemur fram að báðir foreldrar séu forsjárhæfir en vangeta þeirra til að leysa úr ágreiningi sín á milli kunni að jaðra við vanhæfni.

Berst gegn umgengnistálmunum

Gunnar Waage hefur undanfarna mánuði látið mikið að sér kveða í umræðu um umgengnistálmanir og haldið úti vefsvæði þar sem hann gagnrýnir femínista af krafti. Þá hefur hann stofnað til stjórnmálaframboðs undir þeim formerkjum að brotið sé á rétti feðra. Hann er varaformaður Karlalistans og skipar annað sæti á framboðslista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar.

 

Flokkurinn var stofnaður þann 25. apríl síðastliðinn „til að bæta stöðu karla, feðra og barna í jafnréttisbaráttunni“ að því er fram kemur í pistli eftir formanninn, Gunnar Kristin Þórðarson. Boðskapur Karlalistans og hópa sem tengjast honum, svo sem Samtaka umgengnisforeldra og félagsskaparins #DaddyToo, hefur að miklu leyti hverfst um umgengnistálmanir forsjárforeldra eða „tálmunarmæðra“ eins og þær hafa verið kallaðar. 

Gunnar Waage hefur tjáð sig um eigin umgengnisdeilu á netinu. „Ég er löngu hættur að láta þessa veiku konu koma mér úr jafnvægi,“ skrifaði hann á Facebook í fyrra. „Þar sem að óprúttin kenning gengur um það á vegum fyrrverandi konu minnar að ég hafi einhvern tímann tálmað umgengni, þá leiðrétti ég það hér með. Rétt er að eftir áralangar tálmanir hennar á umgengni dóttur minnar við mig, þá ákvað hún að saka mig um tálmun,“ skrifaði hann jafnframt. „Ríkissaksóknari fór nefnilega vandlega yfir málið og sendi síðan til mín bréf sem inniheldur niðurstöðu embættisins. Hún er sú að embættið telji ekki að um tálmun hafi verið að ræða enda hafi legið gildar ástæður því til grundvallar að barnið færi ekki til móður sinnar og eru þær ástæður tilgreindar í bréfinu.“

Stundin hefur gögn málsins undir höndum, en það lýtur að atviki þar sem Gunnar ruddist inn á lögheimili barnsins, samkvæmt dagbók lögreglu, og sótti það utan umsamins umgengnistíma, fór með það á heimili foreldra sinna þar sem hann bjó í kjallaraherbergi og neitaði að skila því til móður þess sem fór með fulla forsjá.

Í niðurstöðu ríkissaksóknara var ekki tekin afstaða til þess hvort „umgengnistálmun“ hefði farið fram. Niðurstaðan laut að því hvort Gunnar hefði brotið 193. gr. almennra hegningarlaga um forsjársviptingu af ásetningi, en ákæruvaldið komst að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. Var talið að málið snerist um umgengnis- og forsjárdeilur foreldra en ekki refsivert athæfi og var því ákvörðun lögreglustjóra um að hætta rannsókninni staðfest af embætti ríkissaksóknara þann 30. september 2014. 

Um er að ræða eitt af þremur skiptum þar sem Gunnar hélt barni sínu frá móður þess, en í tvö skiptanna gerði hann það þótt óumdeilt væri að hún færi með fulla forsjá samkvæmt gerðum samningum.

 

Leitaði til Kvennaathvarfsins

Samband Gunnars og konunnar má rekja aftur til ársins 2003. Þau hófu sambúð snemma árs 2004 og bjuggu fyrst með tveimur börnum konunnar úr fyrra hjónabandi. Sonur hennar flutti þó fljótlega til föður síns, að eigin sögn vegna þess að skapofsaköst Gunnars ollu honum vanlíðan. Í yfirlýsingu sem hann lagði síðar fram vegna umgengnisdeilu móður hans og Gunnars kemur fram að Gunnar hafi ráðist á hann jólin 2005 og rekið hann út úr húsinu. Þessa frásögn hafa þeir sem viðstaddir voru staðfest. 

Dóttir Gunnars og konunnar fæddist árið 2006. Nokkrum vikum síðar barst barnaverndaryfirvöldum nafnlaus tilkynning þar sem fram komu áhyggjur af því að Gunnar beitti barnsmóður sína „andlegu ofbeldi og einangri hana frá vinum og fjölskyldu“. Tveimur árum síðar, sumarið 2008, leitaði konan til Kvennaathvarfsins en samkvæmt staðfestingarbréfi frá vaktstýru í athvarfinu dvaldist hún þar dagana 15. og 16. júní. Í árslok 2009, eftir að samskipti Gunnars og eldri dóttur hennar höfðu versnað til muna og hún óttaðist að missa hana af heimilinu, skildu þau Gunnar. Hann yfirgaf heimilið um áramótin og upp hófst harkaleg forræðisdeila. 

Setti skilyrði fyrir því að skila barninu

Eftir skilnaðinn bjó stúlkan hjá móður sinni en umgekkst Gunnar aðra hvora helgi. Eina helgina, rétt eftir að móðurafi barnsins lést og var jarðsunginn, neitaði Gunnar að skila barninu. Að því er fram kemur í tölvupósti frá Katrínu Theodórsdóttur, lögmanni konnunar, til Daggar Pálsdóttur, lögmanns Gunnars, fékk móðirin ekki að hitta dóttur sína né ræða við hana. „Barnið sem er aðeins 3ja ára gömul telpa hefur verið hjá móður sinni frá fæðingu og er því hiklaust haldið fram að maðurinn geti valdið barninu varlegum skaða með aðgerðum sínum í þeim tilgangi einum að tryggja stöðu sína í bráðabirgðaforsjármáli sem lögmaður hans hefur komið af stað,“ skrifaði Katrín. 

Dögg svaraði á þá leið að Gunnar hefði óskað eftir jöfnum samvistum foreldra meðan forsjármálið væri rekið en móðirin hafnað því og hótað samvistarslitum. Gunnar hefði „alvarlegar áhyggjur af andlegu ástandi hennar [móðurinnar] og þar með af öryggi barnsins hjá henni“. Engu að síður gerði hún barnsmóðurinni eftirfarandi tilboð: „Ef umbjóðandi þinn er tilbúinn til að ganga nú þegar frá samkomulagi um viku / viku umgengni meðan forsjármálið er rekið þá mun umbjóðandi minn afhenda barnið í samræmi við það samkomulag enda gangist þú í ábyrgð fyrir að umbjóðandi þinn virði samkomulagið sín megin.“ 

Í svari Katrínar segir: „Þetta bréf er alveg ótrúlegt að mínu mati. Í annarri setningunni kemur fram að maðurinn hafi séð sig nauðbeygðan til að halda barninu frá móðurinni þar sem hann efaðist um andlegt heilbrigði hennar. Í næstu setningu er gefin sú skýring að tilgangurinn með gjörðum mannsins beinist að því að tryggja jafna umgengni; þ.e. viku/viku sem umbjóðandi minn hefur verið andsnúinn. Sum sé, það er í lagi að beita þeim úrræðum að neita að skila barni á lögheimili sitt, halda því frá móður sinni og leikskóla til að ná sínu fram í deilu um umgengni! Er þetta mat lögmannsins?“ Stúlkan var hjá pabba sínum allt þar til bráðabirgðadómssátt var gerð þann 12. maí 2010. Snemma árs 2011 fékk svo móðirin fulla forsjá yfir barninu en áfram var deilt um umgengni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2018

Laun íslenskra bæjarstjóra hærri en í erlendum stórborgum
ÚttektSveitarstjórnarkosningar 2018

Laun ís­lenskra bæj­ar­stjóra hærri en í er­lend­um stór­borg­um

Árs­laun bæj­ar­stjóra Garða­bæj­ar og Kópa­vogs eru hærri en borg­ar­stjóra New York og London. Báð­ir bæj­ar­stjór­ar eru á hærri laun­um en for­sæt­is­ráð­herra. Laun bæj­ar­stjóra Kópa­vogs hækk­uðu um tæp 58% á kjör­tíma­bil­inu og laun bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæj­ar um 36%. „Allt órétt­læti mun kalla á meiri óánægju,“ seg­ir formað­ur stétt­ar­fé­lags­ins BSRB.

Mest lesið

„Það er svo ótrúlega helvíti erfitt að fara frá honum“
6
Viðtal

„Það er svo ótrú­lega hel­víti erfitt að fara frá hon­um“

Krist­inn Hrafns­son ræð­ir stöð­una á mál­um Ju­li­an Assange en um­ræð­an byrj­aði að breyt­ast eft­ir að Nils Melzer, þá­ver­andi skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna, gaf út á bók ár­ið 2022 og lagði áherslu á að eng­inn hef­ur axl­að ábyrgð á stríðs­glæp­um þeim sem Wiki­Leaks af­hjúp­aði á með­an Ju­li­an sæt­ir pynt­ing­um og yf­ir­völd fjög­urra landa hafa marg­brot­ið á hon­um. Bók­in hef­ur haft áhrif, jafn­vel á Joe Biden og Olaf Sholz.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
7
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
7
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
9
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
10
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
4
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
10
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár