Kvennahreyfingin afþakkar boð á framboðsfund vegna Ragnars Þórs

Mæta ekki á fund Kenn­ara­fé­lags Reykja­víkur sem Ragnar Þór Pét­urs­son, for­maður Kenn­ara­sam­bands­ins ávarpar. Hann var sak­aður um blygð­un­ar­brot. Kvenna­hreyf­ingin seg­ist ekki geta tekið þátt í „áfram­hald­andi hunsun og þöggun þolenda“.

Kvennahreyfingin afþakkar boð á framboðsfund vegna Ragnars Þórs
Kvenna­hreyf­ingin mætir ekki Kvenna­hreyf­ingin hyggst ekki senda full­trúa á fram­boðs­fund Kenn­ara­fé­lags Reykja­víkur vegna þess að Ragnar Þór Pét­urs­son ávarpar fund­inn.

Kvenna­hreyf­ingin, sem býður fram til kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga, hyggst ekki taka þátt í fundi Kenn­ara­fé­lags Reykja­víkur með fram­bjóð­endum sem fram fer í kvöld. Ástæðan er sú að fund­ur­inn hefst á opn­un­ar­er­indi nýs for­manns Kenn­ara­sam­bands­ins, Ragnars Þórs Pét­urs­sonar. Settar hafa verið fram ásak­anir á hendur Ragnari um blygð­un­ar­brot og telur Kvenna­hreyf­ingin sér ekki stætt á að taka þátt fund­inum þess vegna.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Kvenna­hreyf­ingin hefur sent frá sér. Þar segir að hreyf­ingin sé femínískt afl sem vilji upp­ræta ofbeldi, hlusta á raddir þolenda og taka þær alvar­lega. Á sama tíma vilji hreyf­ingin standa með kenn­urum sem séu van­metin lyk­il­stétt í sam­fé­lag­inu.

„Eftir ítar­lega yfir­ferð á mál­inu höfum við þó ákveðið að þiggja ekki boð um þátt­töku í fund­inum. Við getum ekki látið sem ekk­ert sé eftir allt sem á undan er gengið. Við getum ekki tekið þátt í áfram­hald­andi hunsun og þöggun þolenda með því að hlýða á opn­un­ar­er­indi manns sem ekki var til­bú­inn til að taka þátt og axla ábyrgð í kjöl­far #metoo. Okkur þykir það miður, því þannig verðum við af dýr­mætu sam­tali við stétt sem okkur þykir vænt um og metum mik­ils,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Kvenna­fram­boð­inu. Undir hana ritar odd­viti flokks­ins í Reykja­vík, Ólöf Magn­ús­dóttir. 

Yfir­lýs­ing­una í má lesa í heild sinni hér að neðan: 

„Í kvöld mun Kenn­ara­fé­lag Reykja­víkur standa fyrir fundi með fram­bjóð­endum til borg­ar­stjórnar. Fund­ur­inn mun hefj­ast á opn­un­ar­er­indi nýs for­manns Kenn­ara­sam­bands­ins, Ragnars Þórs Pét­urs­sonar.

Á lands­þingi KÍ var skorað á Ragnar Þór að taka ekki við for­mennsku sam­bands­ins nema að und­an­gegn­inni nýrri kosn­ingu, enda höfðu alvar­legar ásak­anir um blygð­un­ar­brot litið dags­ins ljós eftir að kosn­ing í emb­ættið fór fram. Til­lög­unni var vísað frá af naumum meiri­hluta þing­full­trúa og Ragnar Þór varð ekki við áskor­un­inni. Ákvörðun um að þiggja boð Kenn­ara­fé­lags­ins eða ekki reynd­ist okkur því mjög erfið.

Kvenna­hreyf­ingin er femínískt afl. Hún vill upp­ræta ofbeldi, hlusta á raddir þolenda og taka þær alvar­lega á sama tíma og hún vill standa með kenn­urum sem eru van­metin lyk­il­stétt í sam­fé­lag­inu. Kvenna­hreyf­ingin telur skóla­kerfið gegna mik­il­vægu hlut­verki í jafn­rétt­is­málum og telur brýnt að ræða þær leiðir sem færar eru til að tryggja að börnin okkar geti þroskast og elfst án skað­legra áhrifa stað­al­mynda kynj­anna og hvernig skóla­kerfið getur tekið þátt í að byggja örugg­ara umhverfi fyrir okkur öll.

Sú klemma sem við upp­lifum með fund­ar­boð­inu er gott dæmi um dag­leg við­fangs­efni fólks­ins í borg­inni okkar. Öll þekkjum við ger­endur og þolendur, meinta eða ekki. Við þurfum stöðugt að velta fyrir okkur áhrifum þess sem við gerum og segjum og hvernig við getum staðið með þolendum, jafn­vel þó það kosti fórnir, erf­iðar rök­ræður, útskýr­ingar og jafn­vel úthróp­anir.

Eftir ítar­lega yfir­ferð á mál­inu höfum við þó ákveðið að þiggja ekki boð um þátt­töku í fund­inum. Við getum ekki látið sem ekk­ert sé eftir allt sem á undan er gengið. Við getum ekki tekið þátt í áframa­hald­andi hunsun og þöggun þolenda með því að hlýða á opn­un­ar­er­indi manns sem ekki var til­bú­inn til að taka þátt og axla ábyrgð í kjöl­far #metoo. Okkur þykir það miður, því þannig verðum við af dýr­mætu sam­tali við stétt sem okkur þykir vænt um og metum mik­ils.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár