Tveir fyrrum nemendur „kannast við heimboð Ragnars Þórs“ og gagnrýna framgöngu hans

Tveir sam­nem­endur manns­ins sem sak­aði verð­andi for­mann Kenn­ara­sam­bands Íslands um blygð­un­ar­sem­is­brot á Tálkna­firði hafa und­ir­ritað yfir­lýs­ingu þar sem þeir segja Ragnar Þór Pét­urs­son hafa „borið rangt um ýmsar stað­reyndir“ og gengið harka­lega fram gagn­vart æsku­vini þeirra.

Tveir fyrrum nemendur „kannast við heimboð Ragnars Þórs“ og gagnrýna framgöngu hans
Ragnar Þór Pét­urs­son Hefur lýst því yfir að reynt verði að fella hann úr stóli for­manns Kenn­ara­sam­bands­ins.

Tveir fyrr­ver­andi nem­endur Ragnars Þórs Pét­urs­sonar, verð­andi for­manns Kenn­ara­sam­bands Íslands, segja hann hafa „borið rangt um ýmsar stað­reyndir“ þegar hann hefur varist ásök­unum um blygð­un­ar­sem­is­brot á Tálkna­firði. Þeir stað­festa að hafa verið heima hjá Ragnari Þór á því tíma­bili sem „meint brot“ áttu sér stað og segj­ast „kann­ast við heim­boð Ragnars Þórs Pét­urs­sonar kenn­ara í fleiri en eitt skipti“. 

Vísir fjall­aði ítar­lega um málið í fyrra, rétt eftir að Ragnar Þór var kjör­inn for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands.

Nafni Ragnars, Ragnar Þór Mar­in­ós­son, sem hér eftir verður kall­aður Raggi til aðgrein­ingar frá kenn­ar­anum, steig fram í við­tali við Vísi.is í fyrra ásamt fjöl­skyldu sinni og greindi frá því að til­kynn­ingin um óeðli­lega hátt­semi sem Ragnar fjall­aði um á vett­vangi fjöl­miðla og í bloggskrifum árið 2013, hefði snú­ist um sig og atburði sem áttu sér stað á Tálkna­firði fyrir um 20 árum. Kenn­ar­inn hefði sýnt sér klám á heim­ili sínu þar sem kúkur kom við sögu. Ragnar hefur hafnað því að hafa boðið drengjum heim til sín en sagt Ragga einu sinni hafa bankað upp á hjá sér með hópi af krökkum. 

Tveir fyrrum nem­endur Ragnars Þórs og æsku­vinir Ragga hafa nú und­ir­ritað yfir­lýs­ingu þar sem þeir stað­festa að hafa verið heima hjá Ragnari Þór Pét­urs­syni sem nem­endur hans, auk ann­arra drengja sem hann kenndi og voru sam­tíða þeim í grunn­skóla í Tálkna­firði, á því tíma­bili sem um ræðir. 

Yfir­lýs­ing­arnir, sem Stundin hefur undir höndum, voru afhentar Kenn­ara­sam­bandi Íslands með milli­göngu lög­manns fyrir sam­bands­þingið sem nú stendur yfir. Þingið var sett í gær en Ragnar Þór tekur form­lega við for­manns­emb­ætti á föstu­dag. 

Titringur innan Kennarasambandsins

Ásakanir fyrrum nem­anda Ragnars og umræða um þær hafa valdið tals­verðum titr­ingi innan Kenn­ara­sam­bands­ins. Ragnar birti blogg­pistil á Stund­inni í gær þar sem hann sagði að sér hefði borist til að eyrna að búið væri að „skipu­leggja loka­til­raun“ og jafn­vel „sýnd­ar­rétt­ar­höld“ til að koma í veg fyrir að hann tæki við for­mennsku í félag­inu. Hann rekur þetta til þess að „sumir ótt­ast breyt­ingar eða bylt­ingar“. Guðríður Arn­ar­dóttir, for­maður Félags fram­halds­skóla­kenn­ara sem bauð sig fram á móti Ragnari sem for­maður Kenn­ara­sam­bands­ins, gagn­rýnir Ragnar í athuga­semd við blogg­færsl­una, frá­biður sér „sam­sær­is­kenn­ingar“ og furðar sig á því að á fyrsta degi Kenn­ara­sam­bands­þings­ins kjósi hann að „halda áfram skít­kasti á félaga [s]ína innan sem utan stjórnar KÍ“. 

Ragnar Þór hætti að kenna um tíma árið 2013 eftir að Reykja­vík­ur­borg barst ábend­ing undir nafn­leynd um að hann hefði sýnt af sér óeðli­lega hátt­semi gagn­vart nem­anda. Ragnar gagn­rýndi harð­lega hvernig staðið var að með­ferð máls­ins, fékk mik­inn stuðn­ing frá nem­endum og kenn­urum, kom fram í Kast­ljósi og skrif­aði fjölda greina um málið. Í einni þeirra tal­aði hann um „óbermið sem nýtti sér nafn­leynd til að ráð­ast á mig […] til að svala illsku sinni og heift“. Á þeim tíma vissi Ragnar Þór ekki hvaðan ásök­unin kom, en síðar kom í ljós að systir Ragga, Ragnars Þórs Mar­ín­ós­sonar, fyrrum nem­anda Ragnars Þórs á Tálkna­firði, hafði greint yfir­manni sínum hjá félags­mið­stöð Norð­linga­skóla frá því sem Raggi hafði sagt henni, án vit­undar Ragga, og yfir­mað­ur­inn komið upp­lýs­ing­unum áfram til Skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar. Raggi kærði svo málið til lög­reglu í jan­úar 2014 en málið var fyrnt og því ekki rann­sakað. 

Eftir að Ragnar Þór hafði lesið lög­reglu­skýrsl­una og kom­ist að því hvaðan ásök­unin kom sagði hann í blogg­færslu að ljóst væri að „í miðju máls­ins væri mann­eskja sem ætti mjög erfitt“. Hann hefði aldrei opnað málið upp á gátt í fjöl­miðlum hefði hann vitað það. „Ég veit ekk­ert hvað hann hefur lifað þótt ég viti að þetta er ekki eitt af því. Og ég ætla ekki að dæma hann eða leita hefnda. Ég vona heitt og inni­lega að líf hans sé betra í dag en það var miðað við lýs­ing­una sem ég las á lög­reglu­stöð­inni. Og ég vona að líf hans batni enn. En ég er fokvondur við kerfið. Bullandi reiður,“ skrif­aði hann. 

Telja Ragnar Þór hafa gengið harkalega fram

Raggi og fjöl­skylda hans telja Ragnar Þór hafa gengið harka­lega fram og talað með niðr­andi hætti um aðil­ann sem sé hið raun­veru­lega fórn­ar­lamb í mál­inu. „Raggi hefur ekki bara verið ásak­aður um lygar heldur einnig verið bendl­aður við sam­sær­is­kenn­ingar um valda­bar­áttu innan Kenn­ara­sam­bands­ins,“ sagði fjöl­skyldan í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á Vísi þann 11. des­em­ber 2017. Töldu þau kennar­ann hafa  „nýtt þá stöðu sína að vera eini nafn­greindi aðil­inn í mál­inu“ og ítrekað kastað rýrð á Ragga. „Svo heldur hann bara áfram og áfram og áfram. Svo núna málar hann mig sem eitt­hvað grey í þess­ari grein,“ sagði Raggi í við­tali við Vísi.

Fram kom í máli fjöl­skyld­unnar að nokkrir ungir menn, á sama aldri og Raggi, hefðu sagt þeim frá því að þeir hefðu verið nokkrir saman heima hjá Ragnari Þór. Yfir­lýs­ing tveggja sam­nem­enda Ragga, sem nú hafa verið lagðar fram, styðja þetta. „Ég, ásamt fleiri fyrrum nem­endum Ragnars Þór Pét­urs­sonar frá Tálkna­firði, hef orðið var við þá umræðu sem hlaust af mál­inu, enda hefur Ragnar Þór Pét­urs­son birt pistla það varð­andi á Stund­inni auk færslna á facebook síðu sinni,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Hefur Ragnar Þór Pét­urs­son verið óvæg­inn í umfjöllun sinni um Ragnar Þór Mar­in­ós­son og stað­hæft ýmis­legt um hann sem ekki fæst stað­ist og fer gegn því sem okkur félaga hans frá barna­skóla hefur birst, bæði í nútíð og frá fyrri tíð.“

Fram kemur að meint blygð­un­ar­semis brot hafi átt sér stað á Tálkna­firði á þeim tíma sem drengirnir voru 12 til 14 ára. „Þá hefur Ragnar Þór Mar­in­ós­son greint mér og fleirum frá meintum atvikum oftar en einu sinni, löngu áður en mál þetta kom upp. Ég set fram yfir­lýs­ingu þessa án þess að málið varði mig að öðru leyti en því að sann­leik­ur­inn hefur a.m.k. verið lag­færður í frá­sögn Ragnars Þórs Pét­urs­sonar,“ segir í und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ing­unum.

Ragnar Þór svar­aði fjöl­skyldu Ragga í athuga­semd á Vísi.is á sínum tíma og sagð­ist aldrei nokkurn tím­ann hafa reynt að draga Ragnar Þór Mar­ín­ós­son inn í umræð­una um ásak­anir á hendur sér. „Ég fann til með honum og taldi víst að ásök­unin staf­aði af veru­legum erf­ið­leikum – frekar en mein­fýsni eða illsku,“ skrif­aði hann. Þá vís­aði hann því á bug að hafa boðið nem­endum í heim­sókn til sín. „Ég man að hópur nem­enda þáver­andi sam­býl­is­konu minnar kom í heim­sókn til hennar.

„Það má vel vera að ein­hverjir hafi bankað
upp á – en það var aldrei í mínu boði og
ég sýndi þeim svo sann­ar­lega ekki klám“

Ég man eftir einum nem­anda mínum sem kom og gaf mér kveðju­gjöf skömmu áður en ég flutti. Og þegar ég tal­aði við þáver­andi sam­býl­is­konu mína mundi hún eftir einum öðrum nem­anda sem heim­sótti hana. Það má vel vera að ein­hverjir hafi bankað upp á – en það var aldrei í mínu boði og ég sýndi þeim svo sann­ar­lega ekki klám eða vonda fram­komu. Það er ein­fald­lega ekki sú mann­eskja sem ég er – og þótt ég hafi þroskast heil­mikið frá því ég var tví­tugur er það heldur ekki sú mann­eskja sem ég var.“

Hér má sjá yfir­lýs­ingu nem­end­anna tveggja í heild, en þær eru sam­hljóða: 

Stundin ræddi við Ragnar Þór Pét­urs­son við vinnslu frétt­ar­innar en hann hefur fjallað ítar­lega um málið á bloggi sínu, í fjöl­miðlum og á Facebook. 

Uppfært: Ragnar Þór Pét­urs­son hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna yfir­lýs­ingar nem­end­anna tveggja. Þar segir meðal ann­ars að hann geri enga athuga­semd við það atriði að nem­endur hafi komið í heim­sókn til hans og sam­býl­is­konu hans þegar þau kenndu á Tálkna­firði. „Ekkert kemur fram um að neitt óeðli­legt hafi verið við þær heim­sóknir – enda var það ekki,“ segir Ragnar Þór. Þá seg­ist hann hafa reynt að sýna Ragnari Þór Mar­inós­syni og fjöl­skyldu hans nær­gætni í mál­inu „þrátt fyrir að ýmsu hafi verið haldið fram sem hvorki er for­svar­an­legt né lög­legt. Ýmsir hafa hvatt mig til að ganga miklu harðar fram og leita réttar míns,“ skrifar Ragnar Þór. Hér má lesa yfir­lýs­ingu hans í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár