Þingmenn vilja að kannað verði hvort félagsmálaráðherra hafi uppfyllt lagaskyldu sína

Vilja að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd taki til skoð­unar hvort Ásmundur Einar Daðason hafi rækt skyldu sína um að upp­lýsa um þá þætti er sneru að rann­sókn vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á barna­vernd­ar­málum.

Þingmenn vilja að kannað verði hvort félagsmálaráðherra hafi uppfyllt lagaskyldu sína
Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd kanni málið Kallað var eftir því á Alþingi í dag að sam­skipti Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra við þing­heim og vel­ferð­ar­nefnd Alþingis yrðu tekin til skoð­unar. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Þingmenn kölluð eftir því í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta í dag að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd tæki til umfjöll­unar sam­skipti Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra við Alþingi. Þau sam­skipti sem þar er um að ræða snúa að því hvort ráð­herra hafi með full­nægj­andi hætti upp­lýst þing­heim, og ekki síst vel­ferð­ar­nefnd Alþingis, um alla þætti er snúa að rann­sókn vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á umkvört­unum á hendur Braga Guð­brands­syni, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, og starfs­mönnum Barna­vernd­ar­stofu. Stundin greindi ítar­lega frá mál­inu í for­síðu­frétt sinni síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, var máls­hefj­andi og kall­aði hún eftir því að for­seti Alþingis styddi við stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í því að taka málið til skoð­unar. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, tók undir með Þorgerði og sagði fulla ástæðu til að efast um að upp­lýs­inga­skylda ráð­herra hefði verið upp­fyllt. Slíkt hið sama gerði Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins sem sagði mik­il­vægt að eyða öllum vafa í mál­inu.

Fjöldi þing­manna tók undir þessa kröfu, einkum þing­menn minni­hlut­ans á Alþingi en einnig þing­menn meiri­hlut­ans. Þannig sagð­ist Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­maður í vel­ferð­ar­nefnd, fagna því að loks væri farið að tala um rétta nefnd í þessum efnum og lýsti óánægju sinni með það að vel­ferð­ar­nefnd hefði nú flækst inn í mál með við­kvæmum trún­að­ar­gögnum. Það teldi hann óeðli­legt. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagð­ist taka undir það ef þing­mönnum þætti ástæða til að skoða málið betur ætti það heima hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Hann sagði einnig að hann vildi þá að sá trún­að­ar­brestur sem hefði átt sér stað í mál­inu, með því að tölvu­póstum og öðrum gögnum hefði verið lekið til fjöl­miðla, yrði sömu­leiðis rann­sak­aður.

Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður í vel­ferð­ar­nefnd, var einnig á þeirri skoðun að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ætti að taka málið til skoð­unar. Hann sagð­ist jafn­framt þess full­viss að öll gögn í mál­inu væru aðgengi­leg þeim sem aðgang að þeim ættu að hafa, undir trún­aði, á nefnd­ar­sviði Alþingis.

Eftir því sem Stundin kemst næst mun verða tekin ákvörðun á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á föstu­dag­inn um hvort nefndin taki málið til skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár