Málsvörn Braga á skjön við gögn málsins – skráði ekkert sjálfur

Gögn og skráð sam­skipti benda til þess að afinn og amman hafi mátt hitta stúlk­urnar en Bragi Guð­brands­son hafi beitt sér fyrir því, í sam­ráði við afann, að móð­irin hætti að „tálma umgengni“ föður við börnin sín. Stundin birtir minn­is­blað Braga Guð­brands­sonar til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Málsvörn Braga á skjön við gögn málsins – skráði ekkert sjálfur

Mál­flutn­ingur Braga Guð­brands­sonar þess efnis að afskipti hans af barna­vernd­ar­mál­inu í Hafn­ar­firði hafi ekki tengst umgengni föður við dætur sínar stang­ast á við gögn máls­ins, tölvu­póst­sam­skipti, sím­tals­lýs­ingu Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar og minn­is­blað sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu skil­aði vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu vegna rann­sóknar þess á kvört­un­ar­efnum barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Allar þær upp­lýs­ingar sem Stundin hefur undir höndum sýna að Bragi Guð­brands­son hafði afskipti af umræddu máli vegna áhyggna af því að móð­irin væri að beita ólög­mætri tálmun með stuðn­ingi barna­vernd­ar­nefndar. Slík tálmun lýtur eðli máls­ins sam­kvæmt að aðila sem á sjálf­stæðan lögvar­inn rétt til umgengni við börn, en réttur afa og ömmu til slíkrar umgengni er í gegnum for­eldri, í þessu til­viki föð­ur­inn sem hafði verið til­kynntur til lög­reglu og Barna­húss vegna gruns um kyn­ferð­is­brot. 

„Snerist ekkert um föðurinn“

Stundin birti í gær stað­festan útdrátt úr sím­tali Braga Guð­brands­sonar við barna­vernd­ar­starfs­mann í Hafn­ar­firði sem átti sér stað þann 4. jan­úar 2017.

Í gögnum sem Barna­vernd­ar­stofa sendi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu þegar rann­sókn þess á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda stóð yfir er ekki að finna neina sam­tíma­skrán­ingu Braga eða Barna­vernd­ar­stofu á umræddu sím­tali. Bragi við­ur­kenndi í Kast­ljósi í kvöld að hafa sjálfur ekk­ert skráð um sam­skiptin. Aðspurður hvort ekki hefði verið eðli­legra að „dokúm­entera“ þau svar­aði Bragi: „Nei, það er engin ákvörðun sem ég er að taka í þessu máli. Ég er ekk­ert að stíga inn í málið. Ég er að afla upp­lýs­inga.“

Í við­tali við Speg­il­inn fyrr í dag sagð­ist Bragi hins vegar hafa látið „mjög sterk sjón­ar­mið í ljós“ í sam­tali sínu við barna­vernd­ar­starfs­mann­inn í Hafn­ar­firði þegar umgengni við dauð­vona ömmu stúlkn­anna bar á góma.

„Ég játa að ég lét mjög sterk sjón­ar­mið í ljósi um að þetta væri og ætti að kom­ast í kring. Ég þekki rétt barn­anna og börnin eiga rétt á umgengni við báðar fjöl­skyldur sínar. Í því sam­hengi og í þeim sam­skiptum sem ég átti þá sner­ist þetta ekk­ert um föð­ur­inn heldur um lögvar­inn rétt barn­anna til að kveðja dauð­vona ömmu sína og þess vegna lét ég þessi sjón­ar­mið í ljós.“

Raunin er sú að þegar Bragi skipti sér af mál­inu í des­em­ber 2016 bauðst ömmu og afa stúlkn­anna að hitta þær. Móðirin vildi hins vegar ekki að afinn og amman hittu stúlk­urnar ásamt föður þeirra meðan meint kyn­ferð­is­brot væru til skoð­unar.

Föð­ur­fjöl­skyldan leit á hátt­erni móð­ur­innar sem ólög­mæta tálmun og kvart­aði til for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu vegna gruns um að barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hefði „stutt móður barn­anna í að tálma umgengni þeirra“ eins og Bragi orðar það í minn­is­blaði sem hann sendi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu síðar.

Fullyrðir að grunnforsendan sé röng

Bragi Guð­brands­son neit­aði því í við­tali við Mbl.is í gær að hafa beitt sér fyrir því að faðir stúlkna fengi að umgang­ast þær þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um kyn­ferð­is­lega mis­notkun. Orðrétt segir í frétt Mbl.is um málið: 

„Sú grunn­for­senda í frétt Stund­ar­inn­ar að Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hafi haft af­skipti af máli með það að mark­miði að faðir barns­ins fái aðgang að því er bein­lín­is röng. Þetta seg­ir Bragi í sam­tali við mbl.is. „Þetta er ekk­ert flókn­ara. Það er verið að ætla mér gjörð sem ég er sak­laus af,“ seg­ir hann. Með því sé hann þó ekki að gera því skóna að það hefði verið glæp­ur, ef þetta hefði verið ástæðan. „Þessi grunn­for­senda er hins veg­ar ein­fald­lega röng og það ættu menn að hafa séð í gögn­un­um, ef að þeir hefðu lesið þau.“

Að sama skapi sagði Bragi í sam­tali við Stundina í síð­ustu viku að kjarni Hafn­ar­fjarð­ar­máls­ins væri sá að kvartað hefði verið undan meintum afskiptum barna­vernd­ar­nefndar af umgengn­is­deilum. Hann hefði brugð­ist við þeirri kvörtun með því að hringja í barna­vernd­ar­starfs­mann og spyrja spurn­inga. „Kjarninn í þessu máli er sá að það er verið að kvarta yfir því að barna­vernd­ar­nefndin hafi haft afskipti af umgengn­is­máli. Mín aðkoma að þessu hefur ekk­ert að gera með umgengn­is­deilu for­eldr­anna, ekki neitt, og hafði ekk­ert með það að gera að pabb­inn hitti barnið, hafði ekk­ert með það að gera,“ sagði Bragi. 

Tölvu­pósts­sam­skipti Braga og föður máls­að­ila og sam­tíma­lýs­ing Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar á sím­tali Braga og barna­vernd­ar­starfs­manns sýna hins vegar að sam­skipti Braga við barna­vernd­ar­nefnd­ina sner­ust meðal ann­ars um umgengni föður við dætur sínar. 

Minnisblað Braga

Eftir að kvörtun barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar barst vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu löngu síðar rit­aði Bragi minn­is­blað þar sem fram­setn­ingu Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar á afskiptum Braga er mót­mælt.

Fram­setn­ingin af hálfu barna­vernd­ar­nefnd­ar­innar birt­ist með eft­ir­far­andi hætti í tölvu­pósti Þórdísar Bjarna­dóttur, lög­manns og for­manns Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar, um miðjan nóv­em­ber 2017:

Í minn­is­blaði Braga Guð­brands­sonar til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kvört­unar barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar segir um umrætt barna­vernd­ar­mál:

Útstrik­anir eru Stund­ar­innar.

Þetta minn­is­blað er að mestu í sam­ræmi við mál­flutn­ing Braga í fjöl­miðlum und­an­farna daga en þarna kemur þó skýrt fram að Bragi hafði sam­band við barna­vernd­ar­nefnd­ina vegna gruns um að nefndin styddi „tálmun“ móður. 

Þegar Bragi ræddi við barna­vernd­ar­starfs­mann­inn á sínum tíma hafði til­vís­un­ar­bréf vegna máls­ins – þar sem vís­bend­ingum um meint kyn­ferð­is­brot var lýst – verið sent í Barnahús en legið óhreyft í póst­hólfi þess um nokk­urra vikna skeið auk þess sem tölvu­póst­kerfið bil­aði á sama tíma. Lögreglu hafði jafn­framt borist til­kynn­ing frá barna­vernd­ar­nefnd­inni en ákveðið að bíða eftir könn­un­ar­við­tali Barna­húss. Hafði barna­vernd­ar­nefndin þá ráð­lagt móð­ur­inni að halda stúlk­unum í „öruggu skjóli“.

Sím­tals­lýs­ing barna­vernd­ar­nefnd­ar­innar frá 4. jan­úar 2017 gengur í ber­högg við þá málsvörn Braga að í sam­tal­inu hafi hann ein­vörð­ungu verið að afla sér upp­lýs­inga og með engum hætti skipt sér af því hvort fað­ir­inn fengi að hitta dætur sínar. 

Fram kemur í sím­tals­lýs­ing­unni að barna­vernd­ar­starfs­mað­ur­inn hafi „ben[t] á að föð­ur­for­eldrum standi alltaf til boða að hitta stúlk­urnar á heim­ili stúlkn­anna og seg­ist Bragi vita það en að þá finn­ist þeim þau vera að svíkja son sinn sem þau trúa stað­fast­lega að sé sak­laus“. 

Jafn­framt segir í sím­tals­lýs­ing­unni:

„Föð­ur­amma og afi voru ekki til­búin til að hitta stúlk­urnar án föður og móðir ekki til­búin að leyfa umgengni þegar faðir væri við­staddur. Afstaða móður hafi legið fyrir skv. tölvu­póstum á milli lög­fræð­inga aðila.“

Stundin hefur umrædd tölvu­pósts­sam­skipti undir höndum og þau styðja þetta. 

Fram kemur að Bragi hafi lýst áhyggjum af því að móð­irin væri að „tálma umgengni“, en tálmun lýtur sam­kvæmt skil­grein­ingu að aðila sem er tal­inn eiga lögvar­inn rétt til umgengni við börn.

Að sama skapi kemur fram í minn­is­blaði Braga Guð­brands­sonar um málið, sem skrifað var síðar, að umkvörtun til Barna­vernd­ar­stofu hefði lotið að því að starfs­menn Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar hefðu „stutt móður barn­anna í að tálma umgengni þeirra“ og Bragi brugð­ist við þeirri kvörtun. 

Bragi sagði í Kast­ljósi í kvöld að sím­tals­lýs­ingin frá Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar fang­aði ekki efni sam­tals eins og hann minnt­ist þess. Í sím­tals­lýs­ing­unni eru meðal ann­ars eft­ir­far­andi ummæli höfð eftir honum: „Bragi segir að honum finn­ist ótrú­legt að ef mað­ur­inn sé raun­veru­lega með ped­ófílu að hann brjóti á dætrum sínum strax og hann fái að hitta þær.“ Þegar Stundin bar setn­ing­una undir hann í síð­ustu viku sagði hann: „Þetta sem þú ert að lesa upp kann­ast ég ekk­ert sér­stak­lega við. Ég er ekk­ert að segja að ég hafi ekki sagt neitt svona, ég veit það ekki. En þegar svona sam­tal er þá eru sam­starfs­að­ilar að velta upp flötum og í þessu til­viki þá kom í ljós að barna­vernd­ar­nefndin hafði gert ýmsar ráð­staf­anir til að greiða fyrir umgengni.“ 

„Ég er ekk­ert að segja að ég hafi ekki
sagt neitt svona, ég veit það ekki“

Aðspurður hvort hann teldi ummælin tekin úr sam­hengi játti hann því en bætti svo við að honum þætti ólík­legt að hann hefði sagt þetta. Ef hann hefði sagt eitt­hvað í þessa veru hefði til­gang­ur­inn verið sá að leggja „beittar spurn­ingar fyrir barna­vernd­ar­starfs­mann­inn til að kalla eftir hans við­brögðum“. Bragi útskýrði málið með sams konar hætti í Kast­ljósi í kvöld og sagð­ist hafa viljað „laða fram“ sjón­ar­mið barna­vernd­ar­starfs­manns­ins.

Dagsektarúrskurður sýslumanns var felldur úr gildi

Líkt og áður hefur komið fram taldi móð­irin sig beita föður lög­mætri tálmun í ljósi vís­bend­inga sem fram höfðu komið um kyn­ferð­is­brot og skömmu áður verið til­kynnt.

Föð­ur­fjöl­skyldan og Bragi kröfð­ust þess hins vegar að umgengn­is­samn­ingur frá 2015 yrði virtur og afinn og amman fengju að hitta stúlk­urnar ásamt föður þeirra.

Um þetta var deilt í des­em­ber 2016 sam­kvæmt gögnum máls­ins. Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hafði hins vegar ráð­lagt móð­ur­inni að halda stúlk­unum í „öruggu skjóli“ líkt og kemur fram í tölvu­pósti sem föð­urnum barst 5. des­em­ber 2016, sama dag og málið var til­kynnt til lög­reglu og til­vísun send í Barnahús. 

Eftir sím­talið sendi Bragi afanum tövu­póst og sagð­ist hafa skilið barna­vernd­ar­starfs­mann­inn svo að „barna­verndin hafi ekk­ert við það að athuga að faðir systr­anna umgang­ist þær“. 

Þetta er ekki í sam­ræmi við sím­tals­lýs­ingu barna­vernd­ar­nefnd­ar­innar og vekur einnig spurn­ingar í ljósi fyrri ráð­gjafar barna­vernd­ar­nefndar til móð­ur­innar um að tryggja stúlk­unum „öruggt skjól“. 

Úr tölvu­pósti Braga til föður máls­að­ila.

Síðar átti Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir að úrskurða um dag­sektir á móð­ur­ina og nota ummæli úr tölvu­pósti Braga því til rétt­læt­ingar.

Dóms­mála­ráðu­neytið felldi hins vegar úrskurð­inn úr gildi, meðal ann­ars á þeim grund­velli að meint kyn­ferð­is­brot gegn stúlk­unum væru enn til skoð­unar. Í úrskurði ráðu­neyt­is­ins er ekki tekin bein afstaða til þess hvort tálmun móður hafi verið lög­mæt en hins vegar er nið­ur­staðan sú að ekki sé rétt­mætt að beita móð­ur­ina dags­sektum vegna tálm­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár