Katrín skipar héraðsdómara til að gera úttekt á máli Braga

For­sæt­is­ráð­herra hefur, að beiðni Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, óskað eftir úttekt á máli Braga Guð­brands­sonar. Tilefnið er umfjöllun Stund­ar­innar, en nið­ur­staða á að liggja fyrir í júní.

Katrín skipar héraðsdómara til að gera úttekt á máli Braga
Fundur vel­ferð­ar­nefndar Ásmundur Einar Daðason hélt því leyndu fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis að Bragi Guð­brands­son hefði farið út fyrir starfs­svið sitt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað Kjartan Bjarna Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ara til að fram­kvæma óháð úttekt á „til­teknum málum á sviði barna­verndar hér á landi“. Þetta kom fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í dag.

Tilefni úttekt­ar­innar er for­síðu­um­fjöllun Stund­ar­innar frá því á föstu­dag­inn þar sem greint var frá því að Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hefði í sam­ráði við föður máls­að­ila í barna­vernd­ar­máli, beitt sér fyrir því að faðir, sem barna­vernd­ar­nefnd og með­ferð­ar­að­ili ótt­uð­ust að hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn dætrum sínum, fengi að umgang­ast þær.

Samkvæmt til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins er úttektin unnin að ósk Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Í umfjöllun Stund­ar­innar kom fram að Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, bjó yfir ítar­legum upp­lýs­ingum um afskipti Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­mál­inu í Hafn­ar­firði og þrýst­ing­inn sem Bragi beitti barna­vernd­ar­starfs­mann af samúð við fjöl­skyldu manns sem grun­aður var um kyn­ferð­is­brot gegn dætrum sínum þegar rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn að útnefna Braga sem fram­bjóð­anda Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

„Í úttekt­inni verði farið yfir fyr­ir­liggj­andi gögn máls­ins og máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda, þ.e. þeirra barna­vernd­ar­nefnda sem tengj­ast við­kom­andi málum, Barna­vernd­ar­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neytis,“ segir í til­kynn­ing­unni. Kjartan Bjarni Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari, mun ann­ast verk­efnið ásamt Kristínu Bene­dikts­dóttur, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands.

Nið­ur­staða úttekt­ar­innar mun liggja fyrir í byrjun júní, sam­kvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins. Henni verður skilað til rík­is­stjórnar og í kjöl­farið birt opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár