Móðir Hauks vill ekki að vinir hans leggi sig í hættu við leit

Eva Hauks­dóttir er hrædd um vini Hauks, fari þeir að leita hans á ótryggu átaka­svæði. Er ævareið yfir aðgerð­ar­leysi íslenskra yfir­valda við að afla upp­lýs­inga um heim­ildir tyrk­neskra fjöl­miðla um mál Hauks.

Móðir Hauks vill ekki að vinir hans leggi sig í hættu við leit
Vill ekki að neinn setji sig í hættu Eva Hauks­dóttir, móðir Hauks Hilm­ars­sonar sem saknað er í Sýrlandi, vill ekki að vinir hans fari á átaka­svæði að leita hans og leggi sig með því í hættu. Hún seg­ist hins vegar ekki ráða því hvað gert verði. Mynd: Wikimedia / Oddur Ben

Eva Hauks­dóttir, móðir Hauks Hilm­ars­sonar sem saknað er í Sýrlandi, vill ekki að vinir Hauks fari á svæðið til að leita hans. Hún seg­ist ekki vilja að leik­menn fari á átaka­svæði þar sem ástand er ótryggt til leitar að sinni, hún vilji í það minnsta bíða þar til Rauði hálf­mán­inn hafi leitað á svæð­inu. „Mér þætti hrylli­legt ef vinir Hauks færu slíka för án öygg­is­ráð­staf­ana og svo fengjum við kannski aldrei að sjá þau framar. Þannig að á meðan við höfum ekki beina vís­bend­ingu um að hann sé á lífi þá kysi ég frekar að þessu yrði frestað eitt­hvað,“ segir Eva í sam­tali við Stundina.

Lárus Páll Birg­is­son, vinur Hauks, lýsti því í við­tali við Stundina 10. apríl síð­ast­lið­inn að fólk væri í bið­stöðu, til­búið að fara til Sýrlands til leitar. Hann kall­aði eftir því að íslensk stjórn­völd settu sig í sam­band við stjórn­völd í Tyrk­landi og færu fram á að vinum Hauks yrði tryggð örugg för um svæðið. Ef slíkt næð­ist ekki fram yrði engu að síður farið og Hauks leitað.

Enginn má setja sig í óþarfa hættu

Eva segir að hún vilji ekki að neinn setji sig í hættu við þá leit. „Við verðum að fá réttar upp­lýs­ingar um hvað varð um Hauk, þannig að ég er algjör­lega hlynnt því að verið sé að kanna mögu­leika á því að kom­ast á svæðið en það má eng­inn setja sig í óþarfa hættu. Ef ég mætti ráða þá munu menn að minnsta kosti bíða þar til Rauði hálf­mán­inn er búinn að leita að líkum á svæð­inu. Það er ekk­ert sér­stak­lega lík­legt að það komi neitt út úr þeirri leit, líkin verða senni­lega sett í fjölda­gröf og tyrk­nesk stjórn­völd þykj­ast ekk­ert vita. Ég ræð ekki yfir Lalla sjúkra­liða eða öðrum sem ætla í þennan leið­angur en mér þætti hrylli­legt ef vinir Hauks færu slíka för án öygg­is­ráð­staf­ana og svo fengjum við kannski aldrei að sjá þau framar. Þannig að á meðan við höfum ekki beina vís­bend­ingu um að hann sé á lífi þá kysi ég frekar að þessu yrði frestað eitt­hvað.“

„Ég ræð ekki yfir Lalla sjúkra­liða eða öðrum sem ætla í þennan leið­angur“

Vill staðfestingu á samskiptum

Utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis fékk loks í gær minn­is­blað frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um aðgerðir íslenskra yfir­valda varð­andi leit­ina að Hauki. Kallað var eftir slíku minn­is­blaði fyrir mán­uði síðan en en ekk­ert barst fyrr en í gær, þrátt fyrir ítrek­anir. Þá brá svo við að inni­hald minn­is­blaðs­ins var bundið trún­aði. Eva seg­ist ekki skilja hví það sé, hún og aðstand­endur Hauks hafi fengið í hendur minn­is­blað um leit­ina að Hauki og hún sjái ekki hvað í því sé þess eðlis að trún­aður eigi að ríkja um það. Hún er hins vegar mjög ósátt við ýmis­legt sem þar kemur fram, í gögn­unum séu skráð ýmis sam­skipti sem engin stað­fest­ing fáist á, þrátt fyrir að hún hafi kallað eftir því. „Það er frekar þunnur þrett­ándi að fá bara að vita að „aðili á staðnum“ hafi verið beð­inn um aðstoð en ekk­ert hvers­konar aðili það er eða hvað hann nákvæm­lega var spurður um. Ég hef tekið fram að ég er ekk­ert að biðja um nöfn eða net­föng en þetta segir mér ekk­ert. Er átt við blaða­mann, ein­hvern úr tyrk­neskri stjórn­sýslu, liðs­mann and­spyrnu­hreyf­ingar eða bara frænda ein­hvers Íslend­ings? Það er líka mjög ótrú­verð­ugt að mik­il­vægir almanna­hags­munir hindri ráðu­neytið i því að gefa upp nákvæm­lega hvað erlend ríki og alþjóða­stofn­anir voru beðin um að gera í leit­inni að Hauki. Ég er síðan ævareið yfir því að hvorki ráðu­neytið né lög­reglan hafi gert neinn reka að því að graf­ast fyrir um heim­ildir tyrk­nesku miðl­anna sem sögðu að Tyrkir væru með líkið. Tyrk­neskir fjöl­miðlar eru ekki frjálsir og því ekki lík­legt að þetta sé bara hug­detta ein­hvers blaða­manns.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár