Hvorki umhverfisráðuneytið né Umhverfisstofnun kolefnisjöfnuð

Hið opin­bera hvetur til kolefn­is­jöfn­unar en tekur sjálft tak­mark­aðan þátt. Stjórn­ar­for­maður Kolviðar er undr­andi á aðgerð­ar­leys­inu og vill sjá ríkið ganga á undan með góðu for­dæmi.

Hvorki umhverfisráðuneytið né Umhverfisstofnun kolefnisjöfnuð
Samn­ingar um kolefn­is­jöfnun Lands­virkjun er eitt örfárra rík­is­fyr­ir­tækja sem eru þátt­tak­endur í Kolviði. Reynir Krist­ins­son, stjórn­ar­for­maður Kolviðs, og Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, und­ir­rit­uðu samn­ing þar um árið 2013 og hefur fyr­ir­tækið verið þátt­tak­andi síðan. Mynd: Kolviður

Ekkert ráðu­neyti, engin rík­is­stofnun og nálega engin fyr­ir­tæki í eigu hins opin­bera eru þátt­tak­endur í Kolviði, sjóði sem hefur það verk­efni að gefa fyr­ir­tækjum, stofn­unum, félaga­sam­tökum og ein­stak­lingum færi á að ger­ast kolefn­is­hlut­laus. Hvorki umhverf­is­ráðu­neytið né Umhverf­is­stofnun eru þannig þátt­tak­endur í verk­efn­inu. Stjórn­ar­for­maður Kolviðar segir það koma sér spánskt fyrir sjónir að hið opin­bera ætlist til þess að aðrir kolefn­is­jafni sig en taki ekki þátt sjálft.

Kolviður er verk­efni sem ýtt var úr vör árið 2006 og hóf starf­semi árið 2007. Í stofn­skrá sjóðs­ins kemur fram að hann sé stofn­aður með stuðn­ingi rík­is­stjórnar Íslands en stofn­endur eru Land­vernd og Skóg­rækt­ar­fé­lag Íslands. Markmið Kolviðar er að binda kolefni með plöntun trjá­gróð­urs og draga þannig úr styrk koldí­oxíðs í and­rúms­lofti. Sjóð­ur­inn gerir aðilum kleyft að taka ábyrgð á eigin losun, sínu kolefn­is­fótspori, með því að greiða fyrir trjá­plöntun sem aftur kolefn­is­jafnar starf­semi fyr­ir­tækja, stofn­ana, félaga­sam­taka eða heim­ils­hald ein­stak­linga. Einkum er þar horft til sam­gangna, hvort sem er á láði, legi eða í lofti.

Efnahagshrunið dró úr þátttöku

Sjóð­ur­inn hóf sem fyrr segir starf­semi árið 2007 og strax fyrsta árið tóku tólf fyr­ir­tæki eða opin­berir aðilar þátt. Þar að auki voru öll ráðu­neytin þátt­tak­endur í verk­efn­inu og kolefn­is­jöfn­uðu bif­reiða­flota sinn. Meðal þeirra sem voru þátt­tak­endur á þessu fyrsta starfs­ári sjóðs­ins voru flug­fé­lögin Icelandair og Iceland Express, bíla­leigan Hertz og Garðabær. Árið eftir, árið 2008, fækk­aði þeim sem tóku þátt í verk­efn­inu tals­vert. Þannig var fjár­mála­ráðu­neytið eitt eftir af ráðu­neyt­unum, ekk­ert flug­fé­lag var þátt­tak­andi og ekk­ert sveit­ar­fé­lag. Árið 2009 hall­aði enn undan fæti og aðeins þrír aðilar tóku þátt í verk­efn­inu. Reynir Krist­ins­son, stjórn­ar­for­maður Kolviðar, segir að efna­hags­hrunið hafi þarna gert úts­lagið. „Það var heil­mikil vakn­ing þarna fyrir hrun, menn töldu jafn­vel að fjöl­skyldur myndu taka sig saman og kolefn­is­jafna heim­il­is­bíl­inn. Ekkert slíkt gerð­ist hins vegar, efna­hags­hrunið hafði slík áhrif að fólk og fyr­ir­tæki höfðu alveg nóg með að borga af skuld­bind­ingum sínum. Það var svo sem skilj­an­legt.“

Landið að rísa

Planta skógiKolviður plantar árlega um 100 þús­und trjá­plöntum til að kolefn­is­jafna starf­semi þeirra fyr­ir­tækja og sam­taka sem hafa gert samn­inga við sjóð­inn.

Eftir því sem frá hruni leið jókst þátt­taka í verk­efn­inu þó hægt og bít­andi, en alls ekki í eins miklu mæli og for­svars­menn sjóðs­ins hefðu viljað sjá. Á síð­asta ári voru það ekki nema 30 aðilar sem kolefn­is­jöfn­uðu starf­semi sína að ein­hverju eða öllu leyti í gegnum sjóð­inn. Reynir segir þó að þar á bæ hafi menn von um bjart­ari tíma.

„Festa, félag um sam­fé­lags­á­byrgð, fór af stað hvað þetta varðar og fékk ríf­lega 100 fyr­ir­tæki til að skrifa undir lofts­lags­yf­ir­lýs­ingu í tengslum við Par­ís­ar­sam­komu­lagið, í lok árs 2015. Þetta hefur ýtt við fyr­ir­tækjum, þau hafa látið vinna úttektir á sinni kolefn­islosun og þess vegna höfum við verið að fá þau hægt og bít­andi inn í verk­efnið hjá okkur. Sum þeirra hafa meira að segja óskað eftir því að kolefn­is­jafna sig aft­ur­virkt, við höfum til dæmis fengið inn fyr­ir­tæki hjá okkur sem óska eftir því að kolefn­is­jafna útblástur sinn á árunum 2016 og 2017 á þessu ári. Til þess að vera fyr­ir­myndar fyr­ir­tæki í sam­fé­lags­á­byrgð þurfa þau að tikka í þessi box og því erum við að sjá þau bæt­ast í hóp­inn.“

Vill að ríkið sýni gott fordæmi

Þrátt fyrir að hægt gangi að fjölga fyr­ir­tækjum í verk­efn­inu er staðan þó sú að Kolviður plantar um 100 þús­und trjá­plöntum á ári til að standa við skuld­bind­ingar sínar um kolefn­is­jöfnun þeirra aðila sem taka þátt í sam­starf­inu. Reynir segir að planta þurfi í ríf­lega 20 hekt­ara á ári og að í fram­tíð­inni muni þurfa ein­hver hund­ruð hekt­ara til skóg­ræktar.

Hins vegar séu það von­brigði að ekki hafi tek­ist að fá hið opin­bera til að taka þátt í verk­efn­inu. Til hafi staðið að kolefn­is­jafna flug­ferðir opin­berra starfs­manna en aldrei hafi orðið af því. Þá hafi bíla­floti hins opin­bera ekki verið kolefn­is­jafn­aður frá árinu 2007, sem fyrr segir. „Við viljum mjög gjarnan fá ríkið aftur inn í verk­efnið, að það kolefn­is­jafni starf­semi sína. Bara rekstur bíla­flota rík­is­ins, skipa­floti Land­helg­is­gæsl­unnar og flug opin­berra starfs­manna veldur gríð­ar­legum kolefn­is­út­blæstri. Ríkið ætl­ast til þess af fyr­ir­tækj­unum í land­inu að þau kolefn­is­jafni sig en gengur ekki á undan með góðu for­dæmi, alla vega alls ekki í nægi­lega miklum mæli. Mér finnst hæpið að ætl­ast til þess að aðrir geri ákveðna hluti en taka svo ekki þátt sjálfur. Það eru tveir aðilar sem við myndum sér­stak­lega gjarnan vilja sjá taka þátt. Það eru umhverf­is­ráðu­neytið og Umhverf­is­stofnun. Hvorugur aðil­inn hefur hins vegar ljáð því máls.“

Bílaleigur, rútufyrirtæki og flugfélög sitja hjá

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa í auknum mæli séð hag sinn í því að taka þátt í Kolviði að sögn Reynis. Hins vegar vanti þar inn þá aðila sem mengi lang­mest, bíla­leig­urnar, rútu­fyr­ir­tækin og flug­fé­lögin. „Ég veit ekki með hversu mörgum bíla­leigum við höfum átt fundi en þær hafa þrátt fyrir það ekki hoppað um borð. Það væri mjög æski­legt, og raunar eðli­legt, að þær tækju þátt í þessu verk­efni og ég verð að játa að ég er hissa á því að eng­inn þeirra hafi séð hag sinn í ríða á vaðið, taka þátt í Kolviði og mark­aðs­setja sig sem grænt fyr­ir­tæki. Við höfum heldur ekki séð rútu­fyr­ir­tækin í verk­efn­inu og flug­fé­lögin hafa eig­in­lega verið und­an­skilin í allri þess­ari umræðu, svo und­ar­legt sem það er.“

Berum öll ábyrgð

Þá eru engin sveit­ar­fé­lag­anna á land­inu þátt­tak­endur í Kolviði og ekki byggða­sam­lög eða fyr­ir­tæki á þeirra vegum. Þannig kolefn­is­jafnar Strætó sig til að mynda ekki í gegnum Kolvið. Útgerð­ar­fyr­ir­tæki hafa heldur ekki verið þátt­tak­endur. Reynir segir að þarna sé um aðila að ræða sem í mörgum til­vikum skilji mikið kolefn­is­fót­spor eftir sig og hvetur þá ein­dregið til að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð og kolefn­is­jafna sína starf­semi. „Það skiptir engu máli hversu lítið eða stórt kolefn­is­fótsporið er, það geta allir tekið þátt í verk­efn­inu. Við getum aðstoðað smærri aðila að áætla hversu mikið kolefn­is­fótsporið er, við erum með reikni­vél á heima­síð­unni okkar sem er tals­vert notuð. Þegar allt kemur til alls þá berum við öll saman ábyrgð á umhverfi okkar og eng­inn á að skor­ast úr leik í þeim efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár