Kári segir hégóma Dags B. leggja félagshyggju hans að velli

For­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar vandar borg­ar­stjóra ekki kveðj­urnar og segir tíma hans að kveldi kom­inn. Segir fjár­munum ausið í skrípa­leik og fáfengi meðan leik­skólar séu fjársveltir.

Kári segir hégóma Dags B. leggja félagshyggju hans að velli
Gagn­rýnir borg­ar­stjóra Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, er ekki par hrif­inn af fram­kvæmdum við Miklu­braut, kallar þær skrípa­leik og vandar Degi B. Egg­erts­syni ekki kveðj­urnar vegna þeirra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fram­kvæmdir borg­ar­innar við Miklu­braut ofan Klambratúns voru skrípa­leikur sem kost­aði gríð­ar­lega fjár­muni, sem betur hefðu verið nýttir fyrir fjársvelta leik­skóla borg­ar­innar. Þetta skrifar Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, í pistli í Frétta­blað­inu þar sem hann vandar Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra síst kveðj­urnar.

Kári lýsir í grein sinni í löngu máli hverja gleði hann hafði af því sem barn að iðka leiki sína, ásamt öðrum börnum, á Klambra­tún­inu. Landið hefði þar gert sitt til að ala upp börnin sín, þar hefði í þeirra huga verið helgur staður og það hefði aldrei kunnað góðri lukku að stýra að van­virða slíka staði á Íslandi.  

Dagur og Trump vilji báðir reisa veggi

„Í fyrra sumar sáum við svo núver­andi borg­ar­stjóra burð­ast við að reisa vegg með­fram suð­ur­hlið Klambratúns. Umferð um Miklu­braut milli Löngu­hlíðar og Rauð­ar­árs­stígs riðl­að­ist svo mán­uðum skipti og her manns hafði vinnu af þessum skrípa­leik. Heild­ar­kostn­aður af veggnum og fikt­inu í Miklu­braut var um fimm hund­ruð milljón krónur, sem hefði ann­ars mátt nýta fyrir fjársvelta leik­skóla borg­ar­innnar,“ skrifar Kári. Hann bætir við að löng­unin til að reisa veggi virð­ist hafa til­hneig­ingu til að bera skyn­semi stjórn­mála­manna ofur­liði, það sjá­ist best á Degi B. Egg­ertsyni og Donald Trump. Lengra nær þó sam­an­burður Kára ekki heldur segir hann mun­inn á þeim tveimur liggja í því að „Trump er yfir­lýstur fas­isti þannig að það býst eng­inn við öðru en hann reisi veggi þar sem hann fær því við komið, en Dagur er félags­hyggju­maður sem við hefðum búist við að setti þarfir barna ofar löngun sinni til þess að skreyta Klambra­túnið með hráka­smíð.“

Innheimta leikskólagjalda grátleg

Dagur B. Egg­erts­sonBorg­ar­stjóri hefði betur sett pen­inga í leik­skóla heldur en hringl og glingur að mati Kára Stef­áns­sonar.

Kári heldur áfram að gagn­rýna það sem honum sýn­ist döpur með­ferð á almannafé og minnir á að Dagur hafi eytt tals­verðum fjár­munum í að láta mála myndir eftir Erró á fjöl­býl­is­hús í Breið­holti. „Hann er borg­ar­stjóri þar sem leik­skólar eru eina stig skóla­kerf­is­ins þar sem nem­endur borga skóla­gjöld, sem er grát­legt vegna þess að for­eldrar þeirra eru á þeim aldri þegar tekjur þeirra og eignir eru minnstar og nauð­synja­út­gjöld hæst. Það er dap­ur­legt að fylgj­ast með því hversu auð­veld­lega hégóm­inn leggur félags­hyggj­una að velli þegar menn kom­ast til valda. Við þurfum hins vegar ekki að hafa áhyggjur af því að Dagur fái mörg fleiri tæki­færi til þess að brjóta póli­tísk prinsipp sem hann seg­ist aðhyll­ast vegna þess að Klambra­túnið er hefnigjarnt og fyr­ir­gefur ekki dóna­skap eins og veggómynd­ina. Það er farið að rökkva og Dagur að kveldi kom­inn.“

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár