Í eldhúsi óperustjórans

Steinunn Birna Ragn­ars­dóttir, óperu­stjóri Íslensku óper­unnar, hefur búið erlendis og það hefur áhrif á elda­mennsk­una. Hún segir hér frá upp­skriftum sem hún tengir við góðar minn­ingar og fugla­söng, en fyrst vorið er að læða sér inn valdi hún rétti sem henta vel í hlýj­unni sem hlýtur að bíða okkar eftir erf­iðan og krefj­andi vetur.

Í eldhúsi óperustjórans

 

Gazpacho Hefð­bundin köld súpa frá Spáni.

Gazpacho frá Katalóníu

Ég bjó um tíma í Barcelona þar sem ég kynnt­ist mörgu skemmti­legu fólki og á meðal þeirra var háöldruð kona af aðal­sættum sem deildi með mér ætt­ar­upp­skrift að þess­ari þjóð­legu súpu. Spán­verjar eiga mjög gjarnan Gazpacho í ísskápnum og hafa trölla­trú á lækn­inga­mætti hennar og telja hana meðal ann­ars hið besta ráð við timb­ur­mönnum. Gamla konan var aðeins farin að missa úr og ég man alltaf þegar hún sagði hneyksluð yfir dán­ar­fregnum í dag­blað­inu: „Ég skil þetta bara ekki, það er fólk að deyja sem hefur aldrei dáið áður.“ Svona setn­ingar eru auð­vitað óborg­an­legar en hér kemur upp­skriftin.

Hráefnið er sett beint í blandar­ann, fyrst þarf að skera 10 tómata gróft niður, síðan hálfa rauða papriku og hálfa græna. Afhýðið síðan 2 hvít­laus­krif og bætið við ásamt 1/2 teskeið af grófu sjáv­ar­salti og svörtum pipar. Þrjár brauð­sneiðar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár