Sigmundur Davíð þiggur húsnæðisgreiðslur þrátt fyrir tilvitnuð orð hans um annað

Nýbirtar upp­lýs­ingar um greiðslur til þing­manna stang­ast á við svör Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, sem birt voru í DV. Sagðist hann aldrei hafa þegið hús­næðis- og dval­ar­greiðslur. Alþingi hefur birt á vef sínum upp­lýs­ingar um fastan kostnað þing­manna auk þing­far­ar­kaups. Til stendur að birta óreglu­legan kostnað, þar með talið end­ur­greiðslur vegn ferða­kostn­aðar, og upp­lýs­ingar tíu ár aftur í tím­ann.

Sigmundur Davíð þiggur húsnæðisgreiðslur þrátt fyrir tilvitnuð orð hans um annað
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Sagðist árið 2013 ekki þiggja dreif­býl­is­styrk, ekki frekar en „ýmsar starfstengdar greiðslur sem ég hef ekki sótt um þótt þær standi þing­mönnum til boða“. Hann þiggur hins vegar dvalar- og hús­næð­is­kostnað. Mynd: Pressphotos

Samkvæmt nýbirtum upp­lýs­ingum á vef Alþingis þiggur Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, alls 134.401 kr. á mán­uði vegna hús­næðis- og dval­ar­kostn­aðar sem ætl­aður er þing­mönnum utan kjör­dæma höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Haft var eftir Sig­mundur Davíð í við­tali við DV fyrr í mán­uð­inum að hann hafi aldrei þegið greiðslur vegna hús­næð­is­kostn­aðar frá Alþingi, þó hann eigi rétt á þeim. 

Frétt DVSagt var frá því í DV fyrr í mán­uð­inum að Sig­mundur afsal­aði sér rétt­inum til að þiggja greiðslur vegna hús­næðis, en hann býr í Garðabæ og er með falskt lög­heim­ili á Akureyri.

Alþingi hefur nú birt upp­lýs­ingar um laun og fastan kostnað þing­manna á vef sínum, til að bregð­ast við umræðu und­an­far­inna mán­aða um end­ur­greiddan kostnað þing­manna. Til stendur að bæta inn á síð­una upp­lýs­ingum um breyti­legan kostnað í næstu viku, þar með talið endu­greiðslur fyrir útlagðan ferða­kostnað frá 1. jan­úar 2018. Síðar verða birt gögn frá liðnum tíma og mið­ast sá und­ir­bún­ingur við að farið verði um ára­tug aftur í tím­ann.

Birt var frétt í DV 16. febr­úar síð­ast­lið­inn þess efnis að Sig­mundur Davíð segð­ist aldrei hafa þegið greiðslur vegna hús­næðis- og dval­ar­kostn­aðar, eins og aðrir þing­menn lands­byggð­ar­innar, þrátt fyrir að hafa átt rétt á þeim. Lög­heim­ili Sig­mundar hefur verið nokkuð til umræðu en hann flutti lög­heim­ili sitt nýverið til Akur­eyrar eftir að lög­heim­il­is­skrán­ing hans á eyði­býl­inu Hrafna­björgum III í Jök­ulsár­hlíð var kærð skömmu eftir kosn­ingar. Þegar Stundin kann­aði málið kom í ljós að náms­menn eru búsettir á lög­heim­ili hans á Akureyri. Sig­mundur Davíð sjálfur býr í Garðabæ. 

Flutti sig um kjördæmi

Á árunum 2009 til 2013 var Sig­mundur Davíð þing­maður í Reykja­vík en bauð sig fram í Norð­aust­ur­kjör­dæmi árið 2013. Við þá til­færslu fékk Sig­mundur rétt á ríf­lega 134 þús­und króna skatt­frjálsum greiðslum á mán­uði í hús­næðis- og dval­ar­styrk.

Ekki náð­ist í Sigmund Davíð við gerð frétt­ar­innar, en síma­númer hans sem birt er á vef Alþingis er ótengt. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar, vildi ekki láta hafa neitt eftir sér vegna máls­ins.

Í við­tali við DV vorið 2013, þegar Sig­mundur Davíð flutti lög­heim­ili sitt á Jök­ulsár­hlíð, sagð­ist hann ekki ætla að taka við „ýmsum greiðslum“ og þar á meðal það sem hann nefndi „dreif­býl­is­styrk“.  „Dreif­býl­is­styrkur þessi, sem ég kann ekki einu sinni skil á, kom ekk­ert við sögu við ákvörð­un­ar­tök­una og ég hafði engin áform um að inn­heimta þann styrk frekar en ýmsar starfstengdar greiðslur sem ég hef ekki sótt um þótt þær standi þing­mönnum til boða,“ sagði hann í við­tal­inu.

Samkvæmt 2. gr. reglna um þing­far­ar­kostnað á alþing­is­maður fyrir kjör­dæmi utan Reykja­vík­ur­kjör­dæma og Suð­vest­ur­kjör­dæmis rétt á 134.041 kr. greiðslu mán­að­ar­lega í hús­næðis- og dval­ar­kostnað.  Fjár­hæðin er ætluð til að standa undir hús­næðis- og dval­ar­kostn­aði (gist­ingu, fæði) á höf­uð­borg­ar­svæði eða í kjör­dæm­inu ef þing­maður á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæði. Þingmenn eiga einnig rétt á 40% álags­greiðslu, ef þeir halda úti „aðal­heim­ili“ fjarri höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

DV gerði sér­staka frétt um að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti alþingis og fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna, fengi greiðslur vegna hús­næðis- og dval­ar­kostn­aðar. Stein­grímur J. þiggur hins vegar í heild nokkuð lægri fastar greiðslur frá Alþingi en Sig­mundur Davíð, eða 174 þús­und krónur á mán­uði, en Sig­mundur þiggur 204 þús­und krónur á mán­uði í fastar greiðslur, þrátt fyrir orð hans um að afþakka „ýmsar starfstengdar greiðslur“. Tíu þing­menn á Alþingi, af 63, þiggja hærri fastar greiðslur en Sig­mundur Davíð, sem er í 11. til 17. sæti af 63 yfir hæstu föstu greiðsl­urnar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Stundin fékk frá skrif­stofu Alþingis fá þing­menn úr lands­byggð­ar­kjör­dæmum sem hafa búsetu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en eiga lög­heim­ili ann­ars staðar sjálf­krafa greidda hús­næðis- og dval­ar­kostn­að­ar­greiðslu. Þá geta þeir sótt sér­stak­lega um álag á hús­næðis- og dval­ar­kostn­að­ar­greiðslu. Það hefur Sig­mundur Davíð ekki gert.

Talar nú um álagsgreiðslur

Á Facebook síðu sinni í gær, dag­inn áður en Alþingi birti upp­lýs­ing­arnar, skrif­aði Sig­mundur Davíð  pistil um kostn­að­ar­greiðslur frá þing­inu. Þar seg­ist hann ekki þiggja sér­staka 40% álags­greiðslu sem þing­mönnum er heim­ilt að óska eftir, haldi þeir aðal­heim­ili utan höf­uð­borg­ar­svæðis og annað heim­ili í Reykja­vík. Með „aðal­heim­ili“ þing­manns er átt við skráð íbúð­ar­hús­næði sem er aðsetur þing­manns­ins í kjör­dæm­inu og hann á eða hefur á leigu, hefur kostnað af allt árið og nýtir til búsetu.

„Eins og áður hefur komið fram hef ég ekki farið fram á greiðslur fyrir að eiga lög­heim­ili í kjör­dæm­inu og heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (53.161 kr. á mán­uði) né fer ég fram á að fá end­ur­greiddan ferða­kostnað milli heim­ilis og Reykja­víkur,“ skrif­aði Sig­mundur Davíð.

Þetta er hins vegar önnur heim­ild en sú sem hann sagð­ist hafa engin áform um að inn­heimta í við­tal­inu við DV 2013 og nær ein­göngu til þeirra sem halda heim­ili í kjör­dæm­inu. Eins og fram kom í umfjöllun Stund­ar­innar eru náms­menn búsettir á lög­heim­ili Sig­mundur á Akureyri og hann sjálfur búsettur í Garðabæ.

Andrés fékk lægstu upphæðina

Hæstu greiðslur í heild hlýtur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, alls 2.061.825 kr. á mán­uði, en hún þiggur aðeins 40 þús­und krónur á mán­uði í „fastar mán­að­ar­legar kostn­að­ar­greiðslur“, líkt og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þar á eftir fylgja ráð­herrar og for­menn stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi. Lægstar greiðslur hlýtur Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, sem sam­kvæmt þessum upp­lýs­ingum þiggur ekki fastan starfs­kostnað upp á 40.000 kr. sem þing­menn eiga rétt á mán­að­ar­lega ofan á þing­far­ar­kaup, heldur ein­göngu fastan ferða­kostnað í kjör­dæmi, sem er Reykja­vík norður.

Starfs­kostn­að­ar­greiðslu er ætlað að standa undir ýmsum starfstengdum útgjöldum, svo sem vegna ráð­stefna, nám­skeiða og leigu­bíla. Þing­mönnum er gef­inn kostur á að þiggja ekki föstu greiðsl­una, heldur skila upp­lýs­ingum um slíkan kostnað sér­stak­lega.

Laun og fastar greiðslur þingmanna í heild sinni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aksturskostnaður þingmanna

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár