Arnarlax biðst afsökunar út af slysinu í Tálknafirði

Arnarlax hefur sent Umhverf­is­stofnun afsök­un­ar­beiðni vegna þess að fyr­ir­tækið til­kynnti ekki stofn­un­inni um það þegar lax­eld­is­kví fyr­ir­tæk­is­ins sökk að hluta til í sæ fyrr í mán­uð­inum eftir að flot­holt á henni brotn­aði. Um 50 þús­und laxar drápust við flutn­ing­inn yfir í nýja kví.

Arnarlax biðst afsökunar út af slysinu í Tálknafirði
Afsök­un­ar­beiðni og til­kynn­ing um bætt verk­lag Arnarlax hefur beðið Umhverf­is­stofnun afsök­unar á að hafa ekki til­kynnt stofn­un­inni um slys í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Tálkna­firði. Víkingur Gunn­ars­son er fram­kvæmda­stjóri Arnarlax. Mynd: Morgunblaðið/Helgi Bjarnason

„Við biðj­umst vel­virð­ingar á að til­kynn­ing var ekki send á alla aðila. Í fram­haldi af þessu atviki höfum við skerpt á og farið yfir verk­lag okkar. Fram­vegis verður passað upp á að UST [Umhverf­is­stofnun], MAST [Mat­væla­stofnun] og Fiski­stofa (ef við á) fái til­kynn­ingar um óhöpp í rekstr­inum,“ segir í tölvu­pósti frá Þóru Dögg Jör­unds­dóttur, gæða­stjóra Arnarlax, til Umhverf­is­stofn­unar um slysið sem átti sér stað hjá Arn­ar­laxi í Tálkna­firði fyrr í mán­uð­inum þar sem flot­holt eld­iskvíar brotn­aði með þeim afleið­ingum að hluti hennar sökk í sæ.

Stundin greindi frá slys­inu síð­ast­lið­inn mánu­dag sem og þeirri stað­reynd að Umhverf­is­stofnun fékk ekki til­kynn­ingu um málið, líkt og Stundin greindi frá. „Get nú stað­fest að við höfum ekki fengið til­kynn­ingu um rifna kví í Tálkna­firði,“ sagði í svari frá Birni Þor­láks­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Umhverf­is­stofn­unar, við spurn­ingu Stund­ar­innar um hvort til­kynn­ing um málið hafi borist til stofn­un­ar­innar. 

Möguleg meng­un­ar­slys, þar sem mögu­leiki er að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár