Borgarstjórinn vísaði Eyþóri Arnalds af fundi í Höfða

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, bauð Eyþóri Arnalds á fund þing­manna með borg­ar­stjórn Reykja­víkur, þótt Eyþór væri ekki borg­ar­full­trúi og ekki þing­maður. Dagur B. Egg­erts­son vís­aði honum af fund­inum.

Borgarstjórinn vísaði Eyþóri Arnalds af fundi í Höfða
Eyþór Arnalds Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík mætti á fund í boði Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eyþóri Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, var vísað af fundi í Höfða í gær. Sá sem vís­aði honum af fund­inum var Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur.

Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins var Eyþór mættur á fund sem ætl­aður var borg­ar­full­trúum og þing­mönnum kjör­dæm­is­ins. Borg­ar­stjórn Reykja­víkur hafði boðað til fund­ar­ins. Eyþór Arnalds er hvorki þing­maður né borg­ar­full­trúi, en sem odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík verður hann vænt­an­lega borg­ar­full­trúi eftir kosn­ing­arnar í lok maí. Hann segir í sam­tali við Frétta­blaðið að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi sér­stak­lega boðið sér með á fund­inn.

„Guð­laugur Þór utan­rík­is­ráð­herra biður mig að mæta með sér klukkan hálf þrjú að hitta borg­ar­stjórn. Ég er nýr odd­viti í þeim flokki sem er stærstur og þigg það strax,“ segir Eyþór í sam­tali við Frétta­blaðið. „En þá bar svo við að Dagur vildi ekki þiggja þess aðstoð og sagði þetta ekki fram­bjóð­enda­fund.“ Eyþór undr­ast að hann hafi ekki fengið að sitja fund­inn. „Þetta er mjög óvenju­legt því alls staðar sem ég kem þá taka for­stöðu­menn stofn­ana taka þeir vel á móti mér.“ 

Dagur B. Egg­erts­son, sem er núver­andi borg­ar­stjóri, er odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­inni. Borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar verða haldnar 26. maí næst­kom­andi. Í sam­tali við Vísi.is sagði Dagur að Eyþór hafi mætt á fund­inn fyrir „ein­hvers konar mis­tök“.

Vigdís Hauks­dóttir, odd­viti Mið­flokks­ins, sem er ekki heldur borg­ar­full­trúi, hafi fengið boð frá þing­manni eða borg­ar­full­trúa um að sitja fund­inn. „Fram­bjóð­endum var alls ekki boðið. Ég er viss um að Vigdís Hauks­dóttir hefði líka verið til í að koma. Það verður bara að halda sér­fund fyrir þau. Við gerum það bara ef áhugi er fyrir hendi,“ segir Dagur við Vísi.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár