Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
Eyþór Arnalds Eyþór sagði í jan­úar að hann ætl­aði að slíta á tengsl sín við við­skipta­lífið, hlyti hann braut­ar­gengi í leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Framboð Eyþórs Arnalds

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, situr enn í stjórnum fimm eign­ar­halds­fé­laga, þrátt fyrir að hafa sagst ætla að víkja úr stjórnum fyr­ir­tækja. Tvö félag­anna halda utan um fjár­fest­ingar Eyþórs og eru eignir þeirra sam­tals um einn og hálfur millj­arður króna, sam­kvæmt árs­reikn­ingum 2016. Eitt félag­anna er Special Tours ehf., sem rekur starf­semi í ferða­mennsku við gömlu höfn­ina í Reykja­vík.

Eyþór var kjör­inn í borg­ar­stjórn í kosn­ing­unum 26. maí og hlaut Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn flest atkvæði, tæp 31%, og 8 full­trúa. Þegar leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins fór fram 27. jan­úar var hann stjórn­ar­maður í 26 eign­ar­halds­fé­lögum og fyr­ir­tækjum. Hann hefur verið umsvifa­mik­ill í við­skipta­líf­inu und­an­farin ár og því með tölu­verða fjár­hags­lega hags­muni tengda þessum félögum. Í sam­tali við Stundina 14. jan­úar síð­ast­lið­inn, áður en próf­kjörið fór fram, sagð­ist Eyþór ætla að skrá sig úr við­kom­andi stjórnum, og eða selja fyr­ir­tæki sín, að loknu próf­kjöri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár