Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks Íslands, fylgdi Sjálf­stæð­is­flokknum, Mið­flokknum og Flokki fólks­ins að þegar kosið var í ráð og nefndir á fyrsta fundi nýrrar borg­ar­stjórnar í dag. Sanna greinir frá því á Facebook að þetta hafi hún gert af praktískum ástæðum til að tryggja Sós­í­alista­flokknum fleiri sæti en flokk­ur­inn hefði ellegar fengið.

Vigdís Hauks­dóttir, full­trúi Mið­flokks­ins, sagði í upp­hafi borg­ar­stjórn­ar­fundar að minni­hluta­flokk­arnir hefðu ákveðið að bjóða fram og kjósa sam­eig­in­lega í ráð, nefndir og for­mennsku. Þetta gekk eftir. „Ég hefði þurft að láta segja mér tvisvar að Sanna myndi styðja Eyþór til for­mennsku í skipu­lags­ráði og Vigdísi í for­mannsku í umhverfis- og heil­brigð­is­ráði og að þau styddu hana á móti í for­mennsku í vel­ferð­ar­ráð,“ skrif­aði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri á Twitter í kvöld.

Á fund­inum sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins: „Ég vil upp­lýsa um að fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir á Helgu Björk Laxdal, skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórnar.“ 

Sanna hefur sætt harðri gagn­rýni á sam­fé­lags­miðlum fyrir að hafa stillt sér upp með minni­hluta­flokk­unum. Er þá meðal ann­ars vísað til pistils sem hún skrif­aði þann 30. maí síð­ast­lið­inn, þar sem hún vitn­aði í Malcolm X og not­aði lík­ing­ar­mál um hús­þræla til að rök­styðja hvers vegna hún vildi ekki taka þátt í við­ræðum eða meiri­hluta­sam­starfi við þá yfir­lýstu vinstri- og miðju­flokka sem þá áttu í óform­legum sam­tölum um hugs­an­legt meiri­hluta­sam­starf.

„Það er engin von að okkur tak­ist að byggja
upp sterka hreyf­ingu hinna valda­lausu bundin
við sam­komu­lag við hægri öflin og
miðj­una í stjórn­mál­unum“

„Fjölda­hreyf­ing þræl­anna á akrinum var sam­staða gegn órétt­læt­inu. Ekki beiðni um eilítið stærri mat­ar­skammt. Heldur sam­staða um að fella hið órétt­láta kerfi,“ skrif­aði Sanna. „Það er engin von að okkur tak­ist að byggja upp sterka hreyf­ingu hinna valda­lausu bundin við sam­komu­lag við hægri öflin og miðj­una í stjórn­mál­unum. Við munum ekki geta unnið að hags­munum fólks­ins á akrinum liggj­andi á dýnu í kjall­ara þræla­hald­ar­ans.“

Vill samstöðu með Sjálfstæðisflokknum,
Miðflokknum og Flokki fólksins

Sanna brást við harka­legri gagn­rýni á kosn­inga­blokk minni­hlut­ans á Facebook-hópi Sós­í­alista­flokks­ins í kvöld. Þar segir hún að kosn­inga­banda­lagið hafi þjónað þeim til­gangi að tryggja Sós­í­alista­flokknum fleiri sæti í ráðum, stjórnum og nefndum borg­ar­innar. Sós­í­alistar hafi skuld­bundið sig til að kjósa full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ann­arra flokka í veiga­mikil emb­ætti gegn því t.d. að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæfi Sós­í­alistum eftir sæti í stjórn Félags­bú­staða. 

„Flokkar í svoköll­uðum minni­hluta tóku sig til á tal við okkur eftir að meiri­hluta­sam­starf var sam­þykkt og buð­ust þeir með flesta kjörna full­trúa þar til að láta eftir fleiri sæti til okkar í ráð, stjórn og nefndir en við hefðum fengið ein á báti eða með hinum litla flokk­unum,“ skrifar hún. „Að bjóða fram slíkan sam­eig­in­legan lista tryggir sós­í­alistum fleiri sæti og áhrifa­stöðu til að láta mál­efnin okkar heyr­ast en ef við hefðum ekki gert svona. Án þess að vera bundin hefði D fengið öll sætin. Að kjósa með lista sem við lögðum fram er ekki litið svo á að styðja D heldur að sýna sam­stöðu stjórn­ar­and­stöðu. Slíkt er gert til að hrista upp í svoköll­uðum meiri­hluta. Vissum lika að slíkt myndi aldrei ná í gegn með 12 á móti 11. Sós­í­alistar fá meira með þessu. D lætur t.d. eftir sæti stjórn til Félags­bú­staði til Sós­í­alista­flokks­ins. Ég vona að þetta sé skýrt en skýri nánar frá að loknum fundi.“

Daníel Örn Arn­ars­son, vara­borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, tekur í sama streng og skrifar: „D græðir ekk­ert á okkur. Allt þetta sam­kurl er ein­göngu praktísks eðlis til þess að vera öflug stjórn­ar­and­staða úr báðum áttum. Þeir eru ennþá óvin­ur­inn en þau eru valda­lausi óvin­ur­inn í borg­inni. Ég end­ur­tek það er og verður aldrei neinn mál­efna­legur hljóm­grunnur á milli sós­í­alista og D“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár