Ráðuneytisstjórinn brýndi fyrir Sigríði að undirbúa málið betur

Ragn­hildur Arn­ljóts­dóttir, settur ráðu­neyt­is­stjóri í Lands­rétt­ar­mál­inu taldi rann­sókn og rök­stuðn­ing dóms­mála­ráð­herra ekki full­nægj­andi með til­liti til reglna stjórn­sýslu­réttar.

Ráðuneytisstjórinn brýndi fyrir Sigríði að undirbúa málið betur

Ragn­hildur Arn­ljóts­dóttir, settur ráðu­neyt­is­stjóri dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara, ráð­lagði Sigríði Andersen ein­dregið að und­ir­búa betur til­lögu sína til Alþingis um skipun dóm­ara til að tryggja að rann­sóknin á hæfni dóm­ara­efna stæð­ist reglur stjórn­sýslu­réttar. Þetta kemur fram í tölvu­pósti ráðu­neyt­is­stjór­ans til dóms­mála­ráð­herra sem frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur greindi frá í kvöld. 

Áður hafði Stundin birt sams konar ráð­legg­ingar og athuga­semdir starfs­manna fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem fylgdu gögnum sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fékk afhent frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu þann 18. jan­úar. 

Í pósti Ragn­hildar, sem er dag­settur 28. maí – dag­inn áður en Sigríður Andersen leggur til­lögu sína um skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara fyrir Alþingi – fer hún yfir mögu­leik­ana í stöð­unni.

Sá fyrsti sé að ráð­herr­ann greini þing­inu frá óánægju sinni með for­send­urnar í mati dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður, leggi fram frum­varp sem fresti mál­inu til 1. októ­ber og vísi því aftur til dóm­nefnd­ar­innar með óskum um að dóm­ara­reynsla fái aukið vægi í mati hennar. Annar mögu­leiki sé að ráð­herra senda þing­inu til­lögur að breyttri upp­röðun þar sem dóm­ara­reynsla fái aukið vægi. Til þess þurfi vand­aðan rök­stuðn­ing og er lögð sér­stök áhersla á að leggja þurfi sams konar mat á alla umsækj­endur. Í ljósi þess að það hafði ekki verið gert býðst ráðu­neyt­is­stjór­inn til að setja af stað vinnu í ráðu­neyt­inu strax um kvöldið. 

Tölvu­póst­ur­inn sem Kveikur birti í kvöldHér má sjá skjá­skot af tölvu­póst­inum.

Sigíður Andersen dóms­mála­ráð­herra ákvað að gera ekki ítar­lega rann­sókn á hæfni umsækj­enda í sam­ræmi við ráð­gjöf­ina sem hún fékk frá ráðu­neyt­is­stjór­anum og fleiri sér­fræð­ingum í ráðu­neyt­unum dag­ana á undan.

Eins og Hæsti­réttur stað­festi þann 19. des­em­ber síð­ast­lið­inn braut ráð­herra þannig lög og bak­aði rík­inu miska­bóta­skyldu gagn­vart umsækj­endum sem gengið var fram­hjá. Aðfinnslur Hæsta­réttar voru í full­komnu sam­ræmi við lög­fræði­ráð­gjöf­ina sem Sigríður huns­aði.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár