Vestur í Bandaríkjunum er nú verið að gera opinbera ýmsa skjalabunka úr fórum ríkisstjórnarinnar frá því á dögum Johns F. Kennedys forseta. Og í þessum bunkum leynist ýmislegt athyglisvert sem ekki kemur Kennedy beinlínis við.
Þar á meðal er furðuleg saga um Hussein Jórdaníukonungur og bandaríska leikkonu sem leyniþjónustan CIA fékk til að verða fylgikona hans.
Árið 1959 stóð fyrir dyrum heimsókn Husseins hins arabíska Jórdaníukonungs til Bandaríkjanna þar sem hann ætlaði að leita hófanna um fjárhagsaðstoð fyrir sitt fátæka ríki, sem ekki bjó að sömu olíulindunum og voru um þær mundir farnar að færa sumum öðrum Arabaríkjum fúlgur fjár.
Kóngur var 24ja ára, fráskilinn og kvensamur. Samkvæmt þeim skjölum sem nú hafa verið opinberuð í Bandaríkjunum hafði CIA milligöngu um undirbúning ferðar hans til Bandaríkjanna. Í minnisblaði úr fórum CIA sagði að kóngur „hefði sérstakan áhuga á kvenlegum félagsskap meðan hann gistir Los Angeles og farið var fram á að viðeigandi ráðstafanir yrðu gerðar af ábyggilegum aðila innan Stofnunarinnar svo ferð konungsins heppnist vel“.
Svo fór að leikkonan Susan Cabot var fengin til að halda kóngi kompaní í Los Angeles.
Ekki setti neinn fyrir sig að hún var af Gyðingaættum en Hussein að sjálfsögðu Arabi.
Cabot var 32ja ára og svo sem ekki í hópi þekktustu stjarna Hollywood, heldur hafði hún leikið í allskonar B-myndum svokölluðum, svo sem Vespukonunni sem hryllingsmyndakóngurinn Roger Corman leikstýrði.
Hussein var svo ánægður með félagsskap Cabot að CIA fékk leikkonuna til að hitta kónginn öðru sinni nokkru seinna og þá í New York.
Í það sinn sögðu CIA-mennirnir Cabot hreint út:
„Við viljum að þú sofir hjá kóngingum.“
Cabot hélt því fram síðar að hún hefði hafnað þessari „skipun“ leyniþjónustunnar en þó fallist á að fara í samkvæmi með Hussein í New York, og smátt og smátt hefði hún fallið fyrir hinum sjarmerandi kóngi.
Þau áttu í ástarsambandi í nokkur misseri og árið 1961 fæddi Cabot soninn Timothy.
Þar eð Gyðingdómur erfist að jafnaði í móðurætt taldist þessi launsonur hins arabíska Jórdaníukonungs þar með vera Gyðingur.
Fæðing drengsins var ekki gerð opinber.
Það sama ár gekk Hussein hins vegar að eiga enska stúlku, Antoinette „Toni“ Gardiner, sem varð drottning hans uns þau skildu 1972.
Árið 1968 gekk Cabot í hjónaband og eiginmaður hennar ættleiddi Timothy.
Timothy var dvergvaxinn við fæðingu en fékk þrisvar í viku hormónasprautur. Hormónin voru unnin úr heiladinglum dáins fólks úr líkhúsi Los Angeles, þar sem Cabot bjó.
Að lokum varð Timothy 150 sentímetrar á hæð. Lögmaður einn kallaði Timothy „misheppnaða tilraun til manns“. Var það dæmigert fyrir skammarlegt viðhorf til lágvaxins fólks í þá daga.
Cabot átti við geðræn vandamál að stríða síðar á ævinni, segir í ísraelska blaðinu Haaretz, og fannst látin á heimili sínu 1986. Hún hafði verið barin til bana með lyftingatæki.
Timothy sonur hennar, sem þá var 25 ára, var kærður fyrir manndráp.
Hann hélt því fram að móðir sín hefði ráðist á sig og því væri um sjálfsvörn að ræða.
Þar að auki væri hann óeðlilega vanstilltur vegna lyfjanna sem hann neyddist til taka.
Við réttarhöldin yfir Timothy kom á daginn að hann fékk 1.500 dollara á mánuði senda frá aðalskrifstofu konungsins í Jórdaniu.
Timothy var dæmdur árið 1989. Þá hafði hann setið inni í tvö og hálft ár og var það álitið nægjanleg refsing ef hann héldi almennt skilorð næstu þrjú árin.
Hann lést árið 2003. Í Haaretz segir að ösku hans hafi verið dreift á haf út.
Þá hafði konungurinn faðir hans legið í gröf sinni í fjögur ár og Abdullah yngri bróðir hans - sonur Husseins og hinnar ensku Toni Gardiner - var orðinn konungur Jórdaníu.
Hér má svo sjá bíómyndina The Wasp Woman með Susan Cabot í aðalhlutverki:
Athugasemdir