Þarf ekki að fara sömu leið og aðrir

Karl Torsten Ställ­born hætti í skóla 18 ára til að sinna list­inni.

Þarf ekki að fara sömu leið og aðrir

Það sem hefur haft mest áhrif á líf mitt var þegar ég fatt­aði að ég þyrfti ekki að fara sama veg og allir aðrir. Ég hætti í mennta­skóla 18 ára því ég vildi bara vera í hljóm­sveit­inni minni og fór að vinna á fullu. Ég byrj­aði að læra á gítar þegar ég var 11 ára. Mér hafði alltaf fund­ist það mjög skemmti­legt og það var mér mjög nátt­úru­legt. Þannig að í stað­inn fyrir að reyna að klára nám sem ég fann mig ekki í bjó ég frekar til mín eigin tæki­færi og eigin ævin­týri.

Ég vann í nokkur ár í Kram­búð­inni og síðan fann ég leið mína aftur í skóla, en það var í Mynd­lista­skól­ann í Reykja­vík þar sem ég hélt áfram að gera það sem ég vildi gera og þróa mína list. Ég komst inn og síðan eftir að ég lauk því námi fór ég í Lista­há­skól­ann í mynd­list.

Þetta hefur alveg verið hark og ég hef þurft að vinna alls konar vinnu, meðal ann­ars á kaffi­húsum, en ég hef getað unnið við mynd­list og tón­list og það sem mér finnst bara skemmti­legt. Ég sé ekki eftir neinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár