Bíóárið 2017: Ár hinna undirokuðu

Ung kona kemur fyrir her­ráð skipað jakka­fata­klæddum karl­mönnum og segir þeim til synd­anna – og fer svo á víg­stöðv­arnar og bindur enda á eins og eina heims­styrj­öld. Einni öld síðar segja ótal konur í Hollywood Harvey Weinstein og fleiri valda­miklum karl­mönnum til synd­anna, ein­ungis fáeinum mán­uðum eftir að við kynnt­umst þess­ari ungu konu sem stöðv­aði heims­styrj­öld­ina fyrri.

Wonder Woman
Wonder Woman Þrjár vin­sæl­ustu bíó­myndir árs­ins skört­uðu konum í aðal­hlut­verki í fyrsta skipti frá því árið 1958. Mynd: Frá framleiðanda

Unga konan er hin ódauð­lega Undra­kona, Wonder Woman, sem gekk inn í karla­heim tutt­ug­ustu ald­ar­innar og huns­aði flestar þeirra mis­gáfu­legu hefðir og batt enda á þeirra heimsku­lega stríð. Nið­ur­staðan varð þriðja vin­sælasta mynd árs­ins vestan hafs, og hinar tvær (The Last Jedi og Beauty and the Beast) skört­uðu líka kven­kyns hetju í stærsta hlut­verk­inu, eitt­hvað sem hefur ekki gerst í meira en 50 ár.

Wonder Woman var kannski ekki sú vin­sælasta af þessum þremur, en hún kjarn­aði árið öðrum fremur, ár #metoo og hall­ar­bylt­inga í Hollywood var líka árið sem Hollywood tókst loks­ins að gera almenni­lega ofur­hetju­mynd um konu, með kven­kyns­leik­stjóra í þokka­bót. Fyrir utan að ná að sýna stríð bæði með gests­augum og kven­læg­ari gildum – og nálg­ast þar með sann­leik­ann um styrj­aldir á dálítið öðru­vísi hátt en venju­lega.

Fríða og hund­arnir Hverjum til­kynnir maður nauðgun ef löggan sjálf nauðg­aði þér?
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár