Ung stúlka skall í jörðina eftir að hafa tekið sopa á balli

„Ég vissi ekki hvort ég væri að fara að missa barnið mitt,“ segir móðir 19 ára stúlku sem lá köld og marin eftir að hafa tekið sopa af drykk á balli, sem hún telur hafa inni­haldið ólyfjan.

Ung stúlka skall í jörðina eftir að hafa tekið sopa á balli
Jenný og Perla Eftir skelfi­legt atvik um helg­ina, þar sem Jenný missti með­vit­und, vilja mæðgurnar vekja fólk til umhugs­unar.

Ung stúlka missti skyndi­lega með­vit­und á balli í Vest­manna­eyjum um helg­ina, skall í jörð­ina og missti and­ann. Móðir hennar seg­ist í sam­tali við Stundina ekki hafa vitað hvort hún væri að missa barnið sitt. 

Stúlkan, Jenný Jóhanns­dóttir, hafði verið að skemmta sér með vinum sínum á þrett­ánda­balli í bænum. Skömmu eftir að hún fékk sopa af drykk í glasi á dans­gólf­inu „fer hún að eiga erfitt með gang og finnst erfitt að anda og staul­ast út til að fá sér ferskt loft,“ segir móðir hennar, Perla Krist­ins­dóttir, í færslu á Facebook þar sem hún segir frá atvik­inu.

Sjálf fékk Perla sím­tal um nótt­ina, frá konu sem sagð­ist horfa á dóttur hennar með­vit­und­ar­lausa. „Vinkona mín hringdi í mig og sagði mér að hún væri að horfa á dóttur mína með­vit­und­ar­lausa og það sé verið að færa hana á sjúkra­börur,“ segir Perla. Maðurinn hennar var rok­inn út til að vitja dóttur þeirra. „Ég sat svo heima í nokkra klukku­tíma og beið við sím­ann, og vissi ekk­ert hvað hefði komið fyrir dóttur mína. Ég vissi ekki hvort ég væri að fara að missa barnið mitt. Hugsaðu þér ef hún hefði ákveðið strax, þegar hún fékk haus­verk­inn, að labba heim,“ segir hún í sam­tali við Stundina. 

Dóttir þín er meðvitundarlaus 

Samkvæmt frá­sögnum vina og Jennýjar sjálfrar hafði hún ekki drukkið mikið um kvöldið þegar hún missti skyndi­lega með­vit­und. Á spít­al­anum kom hins vegar í ljós að efni fund­ust í blóði hennar.  Faðir hennar, sem hafði fylgt henni upp á spít­ala, hafði þá verið sendur heim og það var ekki fyrr en næsta morgun sem for­eldrar hennar fengu að vita hvað olli því að dóttir þeirra hrundi niður um nótt­ina. Þar kom Perla að dóttur sinni blárri og mar­inni á spít­al­anum. 

„Hræðslan var bara svo mikil, að missa með­vit­und, ranka við sér og fá að vita að það er dóp í lík­am­anum þínum en vita ekk­ert hvernig það gerð­ist.“

„Ég veit ekki hvort var verra, biðin eftir svörum eða svip­ur­inn á dóttur minni þegar hún heyrði að efni hefðu fund­ist í blóð­inu. Hún var hrædd og hún var reið, aðal­lega hrædd, en líka von­svikin. Hún var alveg miður sín. Það var líka svo óþægi­legt að vita ekki hvaðan þetta kom. Henni leið bara eins og ein­hver hefði verið að reyna að drepa hana,“ segir Perla í við­tali við Stundina. „Þetta var bara hræði­legt. Þarna ertu með ung­ling sem er stans­laust að kvarta undan ágengni vegna dóps í Vest­manna­eyjum og er að reyna að vera dug­leg og segja nei takk, það getur verið erfitt, en því er svo þröngvað upp á hana.“

Óttaðist um dóttur sína Perla beið á milli vonar og ótta eftir svörum við því af hverju dóttir hennar missti með­vit­und á miðju balli.

Nið­ur­stöður rann­sókna sýndu að amfetamín var í blóði hennar. Eft­ir­köstin voru mikil. „Þetta var hræði­legt, hún kastaði upp í marga klukku­tíma, var með höf­uð­verk og skalf, lík­am­inn var enn í sjokki. Fyrst vorum við ekki viss hvernig hún hefði fengið amfetamín í blóðið. Hún skildi þetta ekki. Það var ekki fyrr en við fórum að tala við lög­regl­una að við fengum að vita að þetta væri sett í glös. Hræðslan var bara svo mikil, að missa með­vit­und, ranka við sér og fá að vita að það er dóp í lík­am­anum þínum en vita ekk­ert hvernig það gerð­ist. Það fór alveg með hana. Þarna voru völdin tekin af henni og hún svipt tæki­fær­inu á að segja nei.“

„Þessi lyf eru alltaf hættuleg“

Perla vill brýna fyrir fólki, bæði for­eldrum og krökkum, að taka ekki sopa af drykk sem þeir þekkja ekki, þar sem hann gæti inni­haldið hættu­leg efni. 

„Þegar sjúkra­bíll­inn kom var hún orðin mjög köld og með rosa­lega hraðan púls og illa gekk að gefa henni í æð uppi á spít­ala. Alls kyns rann­sóknir eru gerđar og loks finnst amfetamín í blóđi hennar ... þessi sak­lausi sopi á dans­gólf­inu inni­hélt sem sagt AMFETAMÍN! Hún endađi međvit­und­ar­laus vegna eins sopa! Þetta vissum viđ ekki ađ væri hrein­lega í gangi, ađ fólk væri farið að blanda dópi í drykk­ina sína og því langar mig að brýna fyrir ykkur sem lesið þetta að fræða krakk­ana ykkar, og hvern sem er því þetta er út um allt!“ skrifar hún í yfir­lýs­ingu á Facebook.

Tryggvi Ólafsson, lög­reglu­full­trúi í Vest­manna­eyjum, stað­festir að leitað hafi verið til lög­reglu vegna mögu­legrar byrl­unar. Hann seg­ist ekki hafa heyrt af slíkum til­fellum áður. „Hún var aðstoðuð. Það var kall­aður til sjúkra­bíll. Og lög­reglan fór líka á stað­inn. Það er hægt að drekka amfetamín, en þú ert lengur að ná því upp í gegnum mag­ann. Þessi lyf eru hættu­leg.“

Í maí síð­ast­liðnum kvaðst fræði­mað­ur­inn Robert Spencer hafa orðið fyrir því á bar í Reykja­vík að ókunn­ugur maður byrl­aði honum vímu­efnum. Robert, sem rit­stýrir vefnum Jihad Watch, sem snýst um að vara við fram­gangi íslams og ísla­mista, sagð­ist telja að það hefði verið gert af póli­tískum ástæðum. Lækna­skýrslur stað­festu að hann hefði mælst með MDMD og amfetamín í blóð­inu og taldi læknir hann hafa fengið kvíða­kast í kjöl­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár