Nýdanskur femínismi, ljúfir tónar og bullandi tómhyggja á nýju ári

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 12.–25. jan­úar.

Nýdanskur femínismi, ljúfir tónar og bullandi tómhyggja á nýju ári

Grit Teeth útgáfutónleikar

Hvar? Húrra
Hvenær? 12. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Fjór­menn­ing­arnir í Grit Teeth hafa verið virkir með­limir í harð­kjarna­senu Reykja­víkur síð­ustu ár, en eru núna fyrst að gefa út sína fyrstu breið­skífu, „Let It Be“. Með þeim spila Hark, Núll, og Snowed In á þessu útgáfu­hófi, en dag­inn eftir í R6013 rým­inu halda þeir ókeypis tón­leika með Dead Herring, ROHT og xGadda­vírx.

Myrkraverk og Kjarval: Líðandin – la durée

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 13. jan­úar kl. 16.00
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Tvær sýn­ingar opna sam­dæg­urs á Kjar­vals­stöðum; „Myrkra­verk“ er sam­sýn­ing sex ólíkra lista­manna af mis­mun­andi kyn­slóðum, en á henni er að finna verk sem hafa fengið inn­blástur úr þjóð­sögum og ævin­týrum. Á hinni sýn­ing­unni er að finna sjald­séð verk Kjarvals úr fyrri hluta starfsævi hans. Sýn­ing­arnar eru yfir­stand­andi til loka apríl.

Follies

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 13. og 14. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Söng­leik­ur­inn „Follies“ er byggður á sam­nefndri bók James Goldmans og fjallar um leikkonur sem unnu saman á sviði Weismann-leik­húss­ins sem var rifið 1971, en þær hitt­ast aftur 30 árum síðar, syngja saman lög og ljúga til um örlög sín. Söng­leik­ur­inn er fluttur í Breska Þjóð­leik­hús­inu og upp­töku af honum varpað á tjaldi Bíó Para­dísar.

Hatari x dada pogrom

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 13. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Á fyrstu Reykja­vík Goth Night tón­leikum árs­ins eru hinir kynn­gi­mögn­uðu Hatari fremst í fylk­ingu, en þessi gjörn­ingapönk-hljóm­sveit hefur aflað sér mik­ils stuðn­ings á skömmum tíma með glæsi­legri sviðs­fram­komu og skila­boðum sem tækla tóm­lausa neyslu­hyggju, rísandi fas­isma og sið­ferð­is­lega afstæð­is­hyggju með krítíska tóm­hyggju að vopni. Með þeim spila tech noire-verk­efnið Dada Pogrom og fleiri.

Iron & Wine

Hvar? Harpa
Hvenær? 14. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 4.990 kr.

Hinn skegg­prúði og ein­lægi Sam Beam hefur flutt popp­aða folk-tón­list í rúman ára­tug sem Iron & Wine og gefið út sex breið­skífur á þeim tíma; hann ratar einmitt á Íslands­strendur til að kynna nýj­ustu plötu sína „Beast Epic“. Með honum spilar sænska tvíeykið Pale Honey.

Snorri Helgason útgáfutónleikar

Hvar? Húrra
Hvenær? 17. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Hinn vin­sæli folk-tón­list­ar­maður Snorri Helgason fagnar útgáfu nýj­ustu breið­skífu sinnar, „Margt býr í þokunni“, en hún hefur hlotið mjög jákvæð við­brögð, sér­stak­lega þá fyrir vel heppn­aða laga­smíði. Auk nýrri alþýðu­laga má búast við því að heyra eldri slag­ara, en Snorri kemur fram með hljóm­sveit ásamt litlum kór.

Nýdanskur femínismi

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 23. jan­úar kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: Ókeypis.

Á meðan að umræður um jafn­rétti og femín­isma hafa skerpst á síð­ustu árum á Norð­ur­lönd­unum er sam­tvinnun gjarnan ekki til staðar og mál­efni fjalla oftar en ekki aðeins um aðstæður hvítra mið­stétt­ar­kvenna. Á þessu umræðu­kvöldi koma dönsku bar­áttu­kon­urnar og femínist­arnir Geeti Amiri og Natasha Al-Hariri og segja frá reynslu sinni, en þær eru af inn­flytj­enda­ættum frá Afganistan og Palest­ínu.

Myrkir músíkdagar

Hvar? Harpa
Hvenær? 25.–27. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 15.000 kr.

Það er komið að hinum árlegu Myrku mús­ík­dögum, en á þeim eru spiluð helstu fram­sækin ný verk eftir tón­skáld frá Íslandi og nágranna­löndum okkar. Í ár er lögð áhersla á til­rauna­kennda tón­list sem blandar ólíkum hefðum og tækni til að skapa eitt­hvað nýtt í svart­nætt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár