Háskólanemum kennt að klámneysla og vændi dragi úr líkunum á kynferðisofbeldi

„Hann talar til að mynda um fólk með geð­sjúk­dóma sem aum­ingja og let­ingja og rétt­lætir kyn­ferð­is­of­beldi með því að segja að þeir sem geta ekki varið sig eigi það skilið að vera nauðgað,“ segir í kvört­un­ar­bréfi nem­enda vegna Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar.

Háskólanemum kennt að klámneysla og vændi dragi úr líkunum á kynferðisofbeldi

Bók Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar stjórn­mála­fræði­pró­fess­ors, þar sem talað er um að klám­neysla og vændis­kaup dragi úr lík­unum á að menn „beiti örþrifa­ráðum eins og nauðgun“, er skyldu­náms­efni við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands. 

Full­yrð­ingar sem fram koma í bók­inni hafa vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum und­an­farna daga en nýlega und­ir­rit­uði fjöldi fyrr­ver­andi og núver­andi stjórn­mála­fræði­nema yfir­lýs­ingu þar sem þess er kraf­ist að Hannes verði form­lega áminntur og kennslu­gögn hans tekin úr umferð. Er full­yrt að bók Hannesar og kennslu­hættir hans feli í sér kven­fyr­ir­litn­ingu, fitu­for­dóma, kyn­þátta­for­dóma og nið­ur­lægj­andi orð um fatl­aða.

Sagður réttlæta kynferðisofbeldi

DV birti form­lega kvörtun frá 2015 í fyrra­dag þar sem full­yrt er  að Hannes tali ógæti­lega um geð­sjúk­dóma og kyn­ferð­is­of­beldi í kennslu­stundum. „Hann talar til að mynda um fólk með geð­sjúk­dóma sem aum­ingja og let­ingja og rétt­lætir kyn­ferð­is­of­beldi með því að segja að þeir sem geta ekki varið sig eigi það skilið að vera nauðgað. Einnig talar hann um að oft sé ham­ingja nauð­gar­ans ein­fald­lega meiri en sorg þol­anda,“ segir meðal ann­ars í kvörtun­inni.

„Einnig talar hann um að oft sé ham­ingja nauð­gar­ans ein­fald­lega meiri en sorg þol­anda“

Nokkrum mán­uðum áður en kvörtunin barst hafði Hannes verið leystur undan stjórn­un­ar­skyldum sínum við háskól­ann og starfstil­högun hans verið breytt gegn vilja hans. Haldnir voru átaka­fundir vegna máls­ins þar sem Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, kom fram sem lög­maður Hannesar. 

Í gær brást Jón Steinar við gagn­rýni á Hannes og kennslu­hætti hans í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. „Hann er aðeins að fjalla um þjóð­fé­lags­mál sem eðli­legt er að fjallað sé um í þess­ari kennslu­grein. Hann er, eins og góðum fræði­manni sæmir, að velta uppi sjón­ar­miðum sem aug­ljós­lega skipta máli þegar um þau er fjallað,“ skrif­aði Jón Steinar sem taldi mála­til­búnað nem­enda og kenn­ara grafal­var­legan.

Liður í samstarfsverkefni með samtökum öfgaflokka

Bókin sem vakið hefur athygli á sam­fé­lags­miðlum heitir Saga stjórn­mála­kenn­inga og er sú kennslu­bók sem not­ast er við í skyldu­nám­skeið­inu Stjórn­mála­heim­speki við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands. Samning bók­ar­innar hlaut styrk úr Kennslu­mála­sjóði háskól­ans, en hún var end­ur­prentuð með leið­rétt­ingum árið 2017 og er útgáfan liður í sam­starfs­verk­efn­inu „Evrópa, Ísland og fram­tíð kap­ít­al­ism­ans“ á vegum frjáls­hyggju­hug­veitu Hannesar, Rann­sókn­ar­set­urs um nýsköpun og hag­vöxt, og AECR, Samtaka evr­ópskra íhalds­manna og umbóta­sinna. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er einn þriggja stjórn­mála­flokka á Norð­ur­lönd­unum sem eiga aðild að umræddum sam­tökum, en hinir flokk­arnir eru Færeyski fólka­flokk­ur­inn og Flokkur Finna, þjóð­ern­is­flokkur sem leggur mikið upp úr hefð­bundnum fjöl­skyldu­gildum og beitir sér gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra.

Aðrir flokkar þekktir fyrir þjóð­ern­is­of­stæki, and­stöðu við fóst­ur­eyð­ingar og lifn­að­ar­hætti hinseg­in­fólks og jafn­vel alræð­istil­burði eiga aðild að sam­tök­unum, en Sjálf­stæð­is­menn hafa þó hafnað því að um öfga­flokka sé að ræða. 

Hannes var einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum fram að hruni og vinnur nú að skýrslu um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins fyrir Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Hannesi var úthlutað verk­efnið árið 2014 og stefnt var að því að hann myndi skila skýrsl­unni sum­arið 2015 og fá 10 millj­ónir fyrir frá hinu opin­bera. Miklar tafir hafa orðið á skilum og kynn­ingu skýrsl­unnar, en nú er gert ráð fyrir að hún verði kynnt og birt í jan­úar 2018.

Aldrei verið sýnt fram á marktæk orsakatengsl

„Ef maður fær að skoða klám­blöð eða klám­myndir eða kaupa blíðu af konu í vænd­is­húsi, þá ættu líkur að minnka á því, að hann beiti örþrifa­ráðum eins og nauðgun eða lost­ugu athæfi á almanna­færi til þess að svala kyn­hvöt sinni.“

Þetta er á meðal full­yrð­inga sem fram koma í bók­inni, en ekki er vísað í neinar heim­ildir eða rann­sóknir henni til stuðn­ings. 

Helgi Gunn­laugs­sonfélags­fræði­pró­fessor kennir afbrota­fræði við HÍ

Stundin hafði sam­band við Helga Gunn­laugs­son, pró­fessor í félags­fræði sem kennir meðal ann­ars afbrota­fræði við Háskóla Íslands. Aðspurður um orsaka­sam­band klám­neyslu og kyn­ferð­is­brota segir hann að efnið hafi verið rann­sakað umtals­vert, ekki síst í Banda­ríkj­unum þar sem mál­efnið hefur lengi verið eld­fimt. 

„Reynslurök eru lík­lega besta leið­ar­ljósið í þessum efnum jafnt sem öðru, frekar en það hvað okkur finnst lík­legt,“ segir hann. „Sjón­ar­miðin sem Hannes setur fram heyr­ast oft. Að klám og vændi dragi úr ofbeldi gegn konum. Við heyrum mál­flutn­ing af þessu tagi frá til dæmis hags­mun­að­ilum í vændis- og klám­brans­anum og stundum frá vænd­is­konum. Rann­sóknir sem gerðar hafa verið á tíðni ofbeldis gegn konum eins og hún birt­ist í lög­reglu­gögnum og klám­notkun í sam­fé­lag­inu hafa samt yfir­leitt ekki sýnt nein mark­tæk tengsl þarna á milli - hvorki til hækk­unar né lækk­unar.“

„Við heyrum mál­flutn­ing af þessu tagi frá t.d. hags­mun­að­ilum í vændis- og klám­brans­anum“

Helgi segir að stundum nefni kyn­ferð­is­brota­menn að þeir hafi séð athæfi á borð við það sem þeir gerð­ust sjálfir sekir um í klámi eða ofbeld­is­myndefni. „En þa má alveg eins líta á afstöðu af þessu tagi sem rétt­læt­ingu frekar en skýr­ingu á ofbeld­inu. Spurn­ingin hvort ofbeld­is­fullt fjöl­miðla­efni hafi bein áhrif á ofbeldi í sam­fé­lag­inu er samt alltaf áleitin. Áhrifin eru almennt talin meiri gagn­vart við­kvæm­ari hópum í sam­fé­lag­inu sem standa veikt. Ung­mennum sem eiga fáar við­ur­kenndar fyr­ir­myndir og brotna skóla- og fjöl­skyldu­sögu á bak­inu. Áhrif myndefnis er felur í sér ofbeld­is­fullt klám­efni geti ýtt undir ofbeldi hjá hópum af þessu tagi en áhrifin séu minni á aðra hópa sem standa sterkar að vígi,“ segir hann og bendir á að fjallað sé um efnið í flestum texta­bókum í afbrota­fræði. „Ég nota til dæmis eina banda­ríska eftir Larry Siegel (2017) sem kemur inn á rann­sóknir á mál­efn­inu.“

Spyr hvort karlfyrirlitning hafi tekið við af kvenfyrirlitningu

Í skyldu­náms­efni Hannesar er fjallað sér­stak­lega um launa­mun kynj­anna og því velt upp hvort konur fái lægri laun en karlar vegna þess að störf þeirra feli „oft­ast í sér minni ábyrgð og meiri tæki­færi til fjar­vista í langan tíma“ auk þess sem Hannes gerir til­raun til að hrekja þá full­yrð­ingu kynja­fræði­pró­fess­ors við háskól­ann að við núver­andi aðstæður í sam­fé­lagi okkar og menn­ingu njóti karlar kyn­ferðis síns. Bendir Hannes meðal ann­ars á að fleiri karlar láti lífið vegna mann­drápa og lík­ams­árása heldur en konur. 

Þá vitnar Hannes í ummæli Sóleyjar Tóm­as­dóttur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa um að það sé „ekk­ert hræði­legt við það að eiga strák eins og [hún] hélt fyrst“ og spyr hvort „karl­fyr­ir­litn­ing [hafi] ef til vill tekið við af kven­fyr­ir­litn­ingu fyrri tíma“. 

Erfitt fyrir feita og fatlaða
að finna sér rekkjunaut

Hannes segir í bók­inni að því meiri tíma sem lög­reglu­þjónar verji til að elt­ast við klám­sala eða vændis­kaup­endur, því minni tíma eigi þeir afgangs til að gæta lífs, lima og eigna borg­ar­anna fyrir mis­ind­is­mönnum.

„Vændis­kaup­endur eru margs konar. Ætti sú stað­reynd, að þeir eru margir ófrýni­legir karl­skröggar, ekki að vekja samúð frekar en reiði? Hvert eiga þeir að leita, geta geta ekki útvegað sér rekkju­naut á neinn annan hátt en greiða fyrir hann, til dæmis fólk, sem á við fötlun, offitu eða aðra lík­ams­galla að etja?“

Þá bendir hann á að til eru skemmti­staðir þar sem mynd­ar­legir piltar fækka fötum auk þess sem „sveinar geta vita­skuld stundað vændi ekki síður en stúlkur“. Af þessu dregur Hannes þá ályktun að það sé hæpið að „klám og vændi eigi sér skýr fórn­ar­lömb í öðru kyn­inu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir tilboð ráðherra hafa gert erfiða fjárhagsstöðu skólans verri
FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár