Árið sem þolendur höfðu hátt

Árið 2017 var ár skelfi­legs kyn­bund­ins ofbeldis, en líka árið sem þögnin um kyn­bundið ofbeldi var rofin.

Árið byrj­aði með hvarfi Birnu Brjáns­dóttur, leit­inni sem þjóðin fylgd­ist með skelf­ingu lostin og leiddi til lík­fundar við Sel­vogs­vita þann 22. jan­úar. Þúsundir söfn­uð­ust saman í miðbæ Reykja­víkur, á Græn­landi og í Færeyjum og heiðr­uðu minn­ingu ungu kon­unnar sem kvaddi þennan heim aðeins 20 ára gömul. 

Önnur kona, Sanita Brauna, var myrt á heim­ili sínu í Vesturbæ Reykja­víkur í sept­em­ber og hefur maður á fer­tugs­aldri verið ákærður fyrir að hafa orðið henni að bana. 

Í febr­úar steig Þórdís Elva Þor­valds­dóttir fram með mann­inum sem nauðg­aði henni þegar hún var sextán ára, Tom Stranger, í fyr­ir­lestri sem fluttur var á Ted og vakti athygli víða um heim. Í kjöl­farið gáfu þau út bók­ina Handan fyr­ir­gefn­ingar þar sem þau gerðu upp ofbeldið sem Tom beitti hana og afleið­ingar þess, ferð­uð­ust um heimin og greindu frá reynslu sinni. 

Um mitt ár stigu fram fjórar konur sem höfðu verið beittar kyn­ferð­is­of­beldi af lög­mann­inum Robert Downey á ung­lings­ár­unum. Anna Katrín Snorra­dóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jóns­dóttir og Nína Rún Bergs­dóttir ögr­uðu rík­is­vald­inu sem hafði sæmt mann­inn „óflekk­uðu mann­orði“ sam­kvæmt laga­bók­staf og stjórn­sýslu­venjum sem var fylgt í blindni. Þær höfðu hátt og létu stjórn­mála­menn­ina sem gerðu lítið úr mál­inu og komu kerf­inu til varnar heyra það. 

Slíkt hið sama gerði brota­þol­inn í máli Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, manns sem hlaut fimm ára dóm árið 2004 fyrir að hafa níðst nær dag­lega á stjúp­dóttur sinni í 12 ár. Þegar kom í ljós að ráð­herrar höfðu leynt almenn­ing upp­lýs­ingum um málið í bága við upp­lýs­inga­lög og að faðir for­sæt­is­ráð­herra hefði skrifað með­mæli fyrir Hjalta sprakk rík­is­stjórnin. Hún féll „ekki vegna pen­inga, ekki vegna póli­tísks ágrein­ings at­vinnu­stjórn­mála­manna, held­ur vegna þess að kon­ur höfðu hátt,“ eins og Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands orð­aði það í ályktun. 

Nú, á und­an­förnum mán­uðum, hafa svo hrann­ast upp sögur af kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legri áreitni gagn­vart konum í hinum ýmsu starfs­stéttum. #MeToo-bylt­ingin tók við af #höf­um­hátt. Stjórn­mála­konur riðu á vaðið og í kjöl­farið fylgdu konur í sviðs­listum, tækni­geir­anum og háskólum, flug­freyjur, fjöl­miðla­konur; þær og svo miklu fleiri hafa komið saman og deilt reynslu­sögum með almenn­ingi; reynslu­sögum sem varpa ljósi á fár­sjúka menn­ingu kyn­ferð­is­áreitnis og ofbeldis sem virð­ist teygja sig inn í flesta króka og kima sam­fé­lags­ins.

Hér má sjá yfir­lit yfir stærstu frétta­mál árs­ins.

Leitin að Birnu Brjánsdóttur

Í jan­úar fylgd­ist þjóðin skelf­ingu lostin með leit­inni að Birnu Brjáns­dóttur, tví­tugri stúlku sem skil­aði sér ekki heim eftir að hafa farið út að skemmta sér í miðbæ Reykja­víkur. Almenn­ingur tók virkan þátt í leit­inni og eftir að Birna fannst við Sel­vogs­vita sunnu­dag­inn 22. jan­úar má segja að þjóðin hafi sam­ein­ast í sorg. Skelfi­leg­astur var miss­ir­inn fyrir aðstand­endur Birnu, fjöl­skyldu hennar og nán­ustu vini. Hér í blað­inu er rætt við móður hennar, Sig­ur­laugu Hreins­dóttur, en Birnu er minnst sem skap­andi og glað­beittrar ungrar konu sem var hug­mynda­rík, skemmti­leg en um leið lát­laus, ein­læg og trúði á það góða í fólki. 

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar

Fyrsta rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hóf störf í jan­úar 2017 í skugga hneyksl­is­máls þar sem í ljós hafði komið að skýrslum um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og dreif­ingu skulda­nið­ur­fell­ing­ar­innar hafði verið haldið leyndum fyrir almenn­ingi í aðdrag­anda kosn­inga. Stjórn­ar­sam­starf Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar við Sjálf­stæð­is­flokk­inn fékk lít­inn með­byr, en sam­an­lagt hafði fylgið hrunið úr 46,7 pró­sentum í kosn­ingum niður í 39,3 pró­sent þegar stjórnin var mynduð. Sam­starfið reynd­ist nið­ur­lægj­andi fyrir Viðreisn og Bjarta fram­tíð sem gáfu eftir sín stóru kosn­inga­mál, svo sem upp­boð afla­heim­ilda, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna við ESB og upp­töku evru og fyr­ir­heit um stór­fellda inn­viða­upp­bygg­ingu. Eftir að stjórn­ar­sam­starf­inu var slitið vegna hneyksl­is­mála er vörð­uðu upp­reist æru barn­a­níð­inga var báðum flokkum refsað harka­lega í kosn­ingum, einkum þó Bjartri fram­tíð sem missti alla sína þing­menn. Þá fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aðra verstu kosn­ingu sína í sögu flokks­ins.

Ónýtur húsnæðismarkaður

Hús­næð­is­málin voru mikið á milli tann­anna á fólki á árinu, en staðan hefur sjaldan verið jafn erfið. Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað tvö­falt á við laun í land­inu og hús­næð­is­verð hefur hækkað um nær 95 pró­sent frá árinu 2010. Hús­næð­is­skortur, fjölgun erlendra ferða­manna og upp­kaup stórra leigu­fé­laga á jafn­vel heilu íbúða­blokk­unum hefur ýtt undir þessa þróun, sem veldur því meðal ann­ars að fjöldi fólks kemst ekki úr for­eldra­húsum eða flýr land.

Höfðu hátt og sprengdu ríkisstjórn

Mikil reiði bloss­aði upp snemma í sumar þegar í ljós kom að Robert Downey, marg­dæmdur barn­a­níð­ingur, hefði fengið lög­manns­rétt­indi sín á ný eftir að hafa hlotið upp­reist æru. Þolendur Roberts, og aðstand­endur þeirra, stigu fram í dags­ljósið og kröfð­ust útskýr­inga. „Við viljum bara sann­leika og rétt­læti. Við erum ekki ref­siglatt fólk, langt í frá, en við þekkjum í brjósti okkar hvað rétt­læti er og erum að leita eftir því,“ sagði Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir Nínu Rúnar Bergs­dóttur, eins þol­anda Roberts, í við­tali við Stundina. Mikil leynd ríkti hins vegar yfir mál­inu og erf­ið­lega gekk að fá svör.

Málið vatt upp á sig þann 25. ágúst þegar Stundin greindi frá því að annar barn­a­níð­ingur, Hjalti Sigurjón Hauksson, hefði verið sæmdur óflekk­uðu mann­orði sama dag og Robert Downey. Hjalti hafði verið dæmdur árið 2004 fyrir að mis­nota stjúp­dóttur sína nær dag­lega í tólf ár. Eftir að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráðu­neytið ætti að afhenda öll gögn um máls­með­ferð og veit­ingu upp­reistar æru kom í ljós að faðir for­sæt­is­ráð­herra, Benedikt Sveins­son, hefði verið einn þeirra sem hefðu veitt Hjalta Sig­ur­jóni með­mæli vegna máls­ins. For­sæt­is­ráð­herra vissi af með­mæla­bréfi föður síns en lét ekki for­menn hinna stjórn­ar­flokk­anna vita, sem varð til þess að Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu og boðað var til kosn­inga, ein­ungis átta mán­uðum eftir að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar tók við völdum. 

Hræringar á fjölmiðlamarkaði

Nokkur ólga var á fjöl­miðla­mark­aði á árinu og reglu­lega sagðar fréttir af rekstr­ar­erf­ið­leikum fjöl­miðla. Útgáfu­fé­lag Frétta­tím­ans var tekið til gjald­þrota­skipta á árinu eftir að til­raunir til að end­ur­reisa mið­il­inn mistók­ust, fjar­skipta­fyr­ir­tækið Vodafone keypti alla miðla 365, utan Frétta­blaðs­ins og Glamour, og Eyþór Arnalds eign­að­ist fjórð­ungs­hlut í Morg­un­blað­inu og er þar með orð­inn stærsti ein­staki eig­andi útgáfu­fé­lags­ins. 

Stærstu deil­urnar hafa hins vegar staðið um útgáfu­fé­lagið Pressuna. Í apríl var greint frá því að sex nýir fjár­festar kæmu að hluta­fjár­aukn­ingu hjá Press­unni en til stóð að auka hlutafé félags­ins um 300 millj­ónir króna. Skuldir félags­ins numu hins vegar rúm­lega 700 millj­ónum og þar af voru um 300 millj­ónir við líf­eyr­is­sjóði og stétt­ar­fé­lög vegna van­gold­inna opin­berra gjalda. Hætt var við hluta­fjár­aukn­ing­una og eign­að­ist eign­ar­halds­fé­lagið Dalurinn, sem er meðal ann­ars í eigu Róberts Wessmann, meiri­hluta í félag­inu. Áður en ný stjórn tók sæti í félag­inu voru nær allar eignir Pressunnar hins vegar seldar til hæsta­rétt­ar­lög­manns­ins Sigurðar G. Guð­jóns­sonar, en Pressan hefur sjálf verið tekin til gjald­þrota­skipta. Miklar og opin­berar deilur standa enn yfir um málið.

Fjögur morðmál

Græn­lend­ing­ur­inn Thomas Möller Olsen var dæmdur í 19 ára fang­elsi fyrir morðið á Birnu Brjáns­dóttur í Hér­aðs­dómi Reykja­ness þann 29. sept­em­ber. Í sama mán­uði lést Sanita Brauna, lett­nesk kona á fimm­tugs­aldri, á heim­ili sínu á Hagamel í Vesturbæ Reykja­víkur en maður að nafni Khaled Cairo hefur verið ákærður vegna máls­ins. Ungur albanskur maður, Klevis Sula, lést þann 8. des­em­ber eft­ir að hafa verið stung­inn með hnífi á Aust­ur­velli af Íslend­ingi í byrjun mán­aðar. Árás­armað­ur­inn var í ann­ar­legu ástandi og Klevis hafði ætlað að hjálpa honum. Sveinn Gest­ur Tryggva­son var svo á dög­unum dæmd­ur í 6 ára fang­elsi fyrir að hafa ráð­ist á Arn­ar Jóns­son­ Asp­ar í Mos­fells­dal síð­asta sumar. Arnar lést af sárum sínum. 

Lögbann á umfjöllun um viðskipti forsætisráðherra

Stundin greindi frá því, í sam­vinnu við Reykja­vik Media og Guardian, þann 6. októ­ber að Bjarni Bene­dikts­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, hefði selt allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dag­ana 2. til 6. októ­ber árið 2008 auk þess sem hann hefði miðlað upp­lýs­ingum um störf Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni. Fjallað var ítar­lega um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og frænd­fólks hans; meðal ann­ars það hvernig Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna, seldi eignir í Sjóði sama dag og neyð­ar­lögin voru sett og hvernig Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna var leystur undan sjálf­skuld­ar­á­byrgð skömmu fyrir þjóð­nýt­ingu Glitnis. Skömmu síðar varp­aði Stundin ljósi á að fjár­festa­hópur Eng­ey­inga, undir for­ystu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­magn­aði kaup á Olíu­fé­lag­inu með kúlu­lánum frá Glitni og hvernig Bjarni losn­aði svo undan 50 millj­óna kúlu­láni í aðdrag­anda hruns. Frétta­flutn­ing­ur­inn af þessum mál­efnum tók skjótan endi þegar sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­þykkti lög­bann á alla umfjöllun upp úr skjölum Glitnis. Málið er nú fyrir dómi og fer aðal­með­ferðin fram í upp­hafi nýs árs. 

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Eftir að gengið hafði verið til þing­kosn­inga að nýju og stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður fjög­urra miðju- og vinstri­flokka ekki borið ávöxt ákvað for­ystu­fólk Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins að hefja stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Úr varð að mynduð var rík­is­stjórn undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur þann 30. nóv­em­ber. Stjórnin hefur ein­sett sér, sam­kvæmt mál­efna­samn­ingi, að ráð­ast í stór­auknar inn­viða­fjár­fest­ingar og efl­ingu sam­neysl­unnar sam­hliða skatta­lækk­unum. 

Þögnin að eilífu rofin - #metoo

Eftir að banda­ríski kvik­mynda­fram­leið­and­inn Harvey Weinstein var afhjúp­aður, og fjöldi kvenna steig fram og sak­aði hann um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi, reis upp alþjóð­leg bylgja kvenna sem höfðu orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi. Kraft­ur­inn náði meðal ann­ars hingað til lands og hafa mörg þús­und íslenskra kvenna deilt sögum sínum und­an­farna mán­uði. Konur í stjórn­málum voru þær fyrstu til að stíga fram og krefj­ast úrbóta, en síðan hafa konur í sviðs­listum og kvik­mynda­gerð, konur í tækni­geir­anum, konur í tón­list, úr rétt­ar­vörslu­kerf­inu, í vís­indum, í lækna­stétt, í flugi, í fjöl­miðlum, í heil­brigð­is­þjón­ustu, í mennta­kerf­inu og konur í verka­lýðs­hreyf­ing­unni skrifað undir yfir­lýs­ingar og deilt sögum sínum af kyn­bundnu mis­rétti, áreitni og ofbeldi í starfi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár