Fall íslenskra fjölmiðla og hjálpin frá hagsmunaaðilum

Erfitt rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla gerir það að verkum að til þess að halda úti fjöl­mennri rit­stjórn þurfa fjöl­miðlar að reiða sig á fjár­sterka aðila til að nið­ur­greiða tap­rekstur félags­ins. Íslensk stjórn­völd hafa ekki sýnt vilja til að styrkja sjálf­stæða blaða­mennsku, þrátt fyrir að for­sæt­is­ráð­herra hafi sagt fjöl­miðla lítið annað en skel vegna mann­eklu og fjár­skorts. Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hefur enn ekki skilað inn til­lögum til ráð­herra.

Helstu fjöl­miðlar lands­ins eru ýmist í gríð­ar­legum rekstr­ar­vanda, eða þegar farnir í þrot, og þurfa jafn­vel nið­ur­greiðslur hags­muna­að­ila til þess að lifa af.

Fjár­sterkir aðilar sjá hag sinn í því að nið­ur­greiða tap­rekstur Morg­un­blaðs­ins ár eftir ár, en fjár­festar sem ætl­uðu að reyna að snúa við stöð­unni hjá Pressu­veld­inu snar­hættu við þegar þeir fengu nán­ari upp­lýs­ingar um stöðu félags­ins. Skuldir Pressunnar og tengdra miðla við Toll­stjóra vegna van­gold­inna opin­berra gjalda nema um 300 millj­ónum króna og hefur Toll­stjóri sent inn gjald­þrota­beiðni á hendur DV ehf. Fari svo að ekki verði staðið við greiðslur á stað­greiðslu­skatti af starfs­fólki eða virð­is­auka­skatti geta stjórn­ar­menn og fram­kvæmda­stjóri félags­ins skapað sér refsi­á­byrgð.

Íslenskir blaða­menn búa áfram við óstöð­ug­leika og lítið starfs­ör­yggi, en auk upp­sagna hjá miðlum Pressunnar, vegna fjár­hags­erf­ið­leika fyr­ir­tæk­is­ins, fór Frétta­tím­inn í gjald­þrot á þessu ári. Þá er ákveðin óvissa uppi um fram­tíð Frétta­blaðs­ins eftir að Fjar­skipti keypti alla miðla 365, fyrir utan Frétta­blaðið og tísku­tíma­ritið Glamour.

Skortur á stuðn­ingi til handa fjöl­miðlum, tækni­breyt­ingar, staða Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði og aukin sam­keppni við alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki um aug­lýs­inga­tekjur gera rekstr­ar­um­hverfi íslenskra fjöl­miðla óhag­stætt, enda eru flestir íslenskir fjöl­miðlar reknir með tapi. Á sama tíma og Bjarni Bene­dikts­son sagði íslenska fjöl­miðla vera orðna svo veika að þeir gætu allt eins stofnað Facebook-síðu og leyft öllum að skrifa á vegg­inn, hækk­aði hann hins vegar virð­is­auka­skatt á sölu dag­blaða sem nú er með því hæsta sem ger­ist í Evrópu. Ísland er eina Norð­ur­landa­þjóðin sem ekki veitir fjöl­miðlum rík­is­styrki í þeim til­gangi að tryggja lýð­ræð­is­lega umræðu. 

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla átti að ljúka störfum í febr­úar síð­ast­liðnum, en hefur enn ekki skilað til­lögum til ráð­herra. Enginn starfs­maður fjöl­mið­ils, né Blaða­manna­fé­lag Íslands, fékk sæti í nefnd­inni en þess má geta að sam­bæri­leg nefnd í Noregi var fyrst og fremst skipuð full­trúum fjöl­miðla. 

Bjarni gagnrýnir fjölmiðla

Í ágúst í fyrra gagn­rýndi Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra fjöl­miðla harð­lega og lýsti þeim sem „skel“. Tilefnið var rit­stjórn­arp­ist­ill í Frétta­blað­inu þar sem úrræði rík­is­stjórn­ar­innar, „fyrsta fast­eign“, var gagn­rýnt. Bjarni sagði það meðal ann­ars undr­un­ar­efni hve margir fjöl­miðlar hér á landi starfi án þess að nokkur rit­stjórn­ar­stefna sé sjá­an­leg. Þess ber að geta að rit­stjórn­ar­stefnu allra skráðra fjöl­miðla hér á landi má finna á vef fjöl­miðla­nefndar.

„Hún ger­ist æ sterk­ari til­finn­ingin að vegna mann­eklu og fjár­skorts séu við­kom­andi miðlar orðnir lítið annað en skel, umgjörð um starf­semi þar sem hver fer fram á eigin for­sendum. Engin stefna, mark­mið eða skila­boð og þar með nán­ast eng­inn til­gangur, annar en sá að vera til staðar fyrir þá sem þar vinna. Þeir skipt­ast síðan á að grípa gjall­ar­hornið sem fjöl­mið­ill­inn er orð­inn fyrir þá og dæla út skoð­unum yfir sam­fé­lagið. Ein í dag – önnur á morgun. Borið út frítt. Hvers vegna ekki bara að opna Facebooksíðu og leyfa öllum að skrifa á vegg­inn?“ skrif­aði Bjarni meðal ann­ars á Facebook-síðu sína.

 

Umdeild ummæli um fjöl­miðlaBjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra, þá fjár­mála­ráð­herra, var harð­lega gagn­rýndur þegar hann sagð­ist hafa það á til­finn­ing­unni að vegna mann­eklu og fjár­skort væru fjöl­miðlar orðnir lítið annað en skel.

Harðlega gagnrýndur á þingi

Ummæli Bjarna vöktu gríð­ar­leg við­brögð og voru meðal ann­ars tekin upp á Alþingi dag­inn eftir. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði orð hans bera vott um að hann geri ekki mik­inn grein­ar­mun á sam­fé­lags­miðlum og fag­legum fjöl­miðlum. „Þetta eru ansi þung orð hjá for­manni stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, ekki síst í ljósi þeirrar stöðu sem fjöl­miðlar á Íslandi og ann­ars staðar í hinum vest­ræna heimi eiga í á tímum tækni­breyt­inga, á tímum sam­fé­lags­miðla, þar sem tekju­stofnar hefð­bund­inna fjöl­miðla hafa veikst þannig að þeir ráða illa við að halda úti hlut­verki sínu sem er að þjóna almenn­ingi og gera almenn­ingi kleift að gera mun á stað­festum upp­lýs­ingum og öðru því efni sem flýtur um sam­fé­lags­miðla, til dæmis frá okkur stjórn­mála­mönnum sem öll höldum úti okkar Facebook-síðum,“ sagði Katrín. Þá benti hún á að Ísland væri eina Norð­ur­landa­þjóðin sem væri ekki á topp tíu-lista yfir fjöl­miðla­frelsi í heim­inum og hefði hrapað um meira en tíu sæti á tveimur árum, ekki síst vegna umræðu stjórn­mála­manna um fjöl­miðla.

Bjarni sagð­ist telja ástæðu til að spyrja sig að því hvort eitt­hvað mætti gera í laga- eða skattaum­hverfi til að treysta betur umgjörð fjöl­miðla í land­inu og þann mik­il­væga til­gang sem þeir hefðu. Að öðru leyti gaf hann lítið fyrir umræð­una, um hafi verið að ræða „létta Facebook-færslu“ og þetta hafi bara verið ein­föld hug­renn­ing um stöðu fjöl­miðl­anna í land­inu og skort á öfl­ugum, sterkum fjöl­miðlum með skýr skila­boð þar sem ein­hver þráður væri frá degi til dags. „Menn geta alveg verið í fjöl­miðla­rekstri á Íslandi mín vegna og skipt um skoðun á hverjum degi og dælt út hvaða dellu sem er, gjörið svo vel. Þá verður það mín upp­lifun á við­kom­andi fjöl­miðli að hann sé ekki mark­verður, ekk­ert mark sé á því tak­andi sem þaðan streymir,“ sagði hann meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár