Kvikmyndaskólinn biðst afsökunar

Stjórn skól­ans og rektor bregð­ast við umfjöllun Stund­ar­innar, segja að kvart­anir hafi ekki verið „með­höndl­aðar með eðli­legum hætti“ og lofa úrbótum þegar á næstu önn.

Kvikmyndaskólinn biðst afsökunar
Stigu fram Sigrún Sól Ólafs­dóttir og Rósa Ásgeirs­dóttir voru á meðal fjöl­margra kvenna sem stigu fram í síð­asta blaði til þess að greina frá marka­leysi í sam­skiptum kenn­ara við nem­endur í Kvik­mynda­skól­anum. Rósa þurfti að end­ur­gera útskrift­ar­verk­efnið sitt á viku eftir að kenn­ari í skól­anum reyndi að kyssa hana og gekk út úr verk­efn­inu þegar hún hafn­aði honum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kvik­mynda­skóli Íslands hefur greint nem­endum skól­ans frá því að brugð­ist verði við frá­sögnum fyrr­ver­andi nem­enda og kenn­ara skól­ans, sem greindu frá marka­leysi, vald­beit­ingu og kyn­ferð­is­legum sam­skiptum kenn­ara við nem­endur og aðgerð­ar­leysi stjórn­enda, í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar. 

„Ætli hann hafi ekki farið eins langt og hann taldi sig kom­ast með hverja og eina, því hver hefur mis­mun­andi mörk. Fyrir utan að fólk á mis­auð­velt með að setja mörk,“ sagði Tanja Björk Ómars­dóttir, sem var boðið á bar­inn af kenn­ar­anum til að ræða fer­il­inn og fram­tíð­ina en þurfti að sitja undir kyn­lífs­lýs­ingum hans.

Önnur, Íris Krist­ins­dóttir, sagð­ist hafa til­kynnt fram­göngu kenn­ar­ans til deild­ar­stjóra og fengið þau skila­boð að hún ætti ekki að tala um þetta. „Ég varð vitni að því þegar hún fór með þetta lengra og horfði upp á að það væri ekk­ert aðhafst. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár