Kennari og nem­andi stíga fram Sigrún Sól var kenn­ari í skól­anum sem gagn­rýndi aðferðir eins kenn­ara sem hún hafði ekki séð áður. Við hlið hennar stendur Rósa, en kenn­ari gekk út úr útskrift­ar­verk­efni hennar, eftir að hafa boðið fram aðstoð sína, vegna þess að hún hafn­aði honum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Skelfilegar sögur“ úr Kvikmyndaskóla Íslands

Kvikmynda­skóli Íslands hefur gjör­breytt lands­laginu í íslenskri kvik­myndagerð, enda hika nemendur ekki við að greiða rándýr skóla­gjöldin til að láta drauma sína rætast. Ungar konur sem hafa farið í gegnum leiklistar­námið segja hins vegar frá marka­leysi og óviðeigandi samskiptum við kennara, aðgerðar­leysi stjórn­enda og karllægum kúltúr þar sem nemendum var kennt að brjóst selja.

„Ég er heppin,“ segir Tanja Björk Ómars­dóttir, „af því að ég lenti ekki í neinu.“ Hún hefur varla sleppt orðinu þegar hún segir fyndið að hún taki þannig til orða, hún sem var 22 ára gömul, nýbyrjuð í skólanum og blaut á bakvið eyrun en með mikla drauma um leikferil þegar kennarinn hennar, miðaldra maður, bauð henni á barinn til þess að ræða bransann og ferilinn. Hún þáði boðið fegins hendi. „Ég var alveg græn, vissi ekkert um bransann og vildi þiggja góð ráð frá honum. Ég var svo ánægð með að hann væri að bjóðast til að hjálpa mér. Ég man að mér fannst skrítið að hann vildi fara yfir þetta á bar, seint að kvöldi, þar sem við værum bara tvö ein, en hugsaði ekki mikið út í það, enda átti ég ekki von á neinu. Hann hafði alltaf verið næs og virtist vita um hvað hann væri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið undanfarið ár