Stjórn Ferðafélags Íslands hafnar lýsingum fráfarandi forseta

Stjórn Ferða­fé­lags Íslands lýsir furðu og von­brigðum með lýs­ingar frá­far­andi for­seta á við­skiln­aði sínum við félagið. Stjórnin við­ur­kennir að sam­skipta­vandi hafi verið til staðar en að hann sé til­kom­inn vegna fram­komu hennar við fram­kvæmda­stjóra félags­ins

Stjórn Ferðafélags Íslands lýsir yfir vonbrigðum og furðu með hvernig fráfarandi forseti lýsir viðskilnaði sínum við félagið.
Stjórn Ferða­fé­lags Íslands lýsir yfir von­brigðum og furðu með hvernig frá­far­andi for­seti lýsir við­skiln­aði sínum við félagið. Mynd: EPA

Allt stjórn­ar­fólk í stjórn Ferða­fé­lags Íslands lýsir yfir von­brigðum og furðu með hvernig frá­far­andi for­seti lýsir við­skiln­aði sínum við félagið og hafnar þeim lýs­ingum sem frá­far­andi for­seti hefur komið fram með.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ferða­fé­lagi Íslands vegna afsagnar Önnu Dóru Sæþórs­dóttur, for­seta Ferða­fé­lags­ins, sem hún til­kynnti félag­inu í morgun. Í færslu sem Anna Dóra birti á Facebook sagð­ist hún ekki getað starfað í félagi þar sem stjórn­ar­hættir og sið­ferð­is­leg gildi, sem ganga þvert á hennar eigin gildi, ráða ríkj­um.

Afsögnin snýr að van­getu stjórnar Ferða­fé­lags Íslands að taka á málum sem snúa að áreitni og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Eitt málið varðar fyrr­ver­andi stjórn­ar­mann í félag­inu, Helga Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ing hjá Lands­virkjun.

Í til­kynn­ingu frá stjórn Ferða­fé­lags Íslands segir að stjórnin sé „skipuð fjöl­breyttum hópi ein­stak­linga úr ólíkum áttum, bæði konum og körlum.“ Stjórn­ina skipa, eftir afsögn Önnu Dóru, þau Sigrún Val­bergs­dóttir vara­for­seti, Pétur Magn­ús­son gjald­keri, Gísli Már Gíslason, Ólöf Kristín Sívert­sen, Tómas Guð­bjarts­son, Sigurður Ragn­ars­son og Gestur Pét­urs­son.

Stjórnin vísar „algjör­lega á bug þeim ásök­unum og lýs­ingum“ sem Anna Dóra setur fram í yfir­lýs­ingu sinni. Stjórnin segir fag­leg ferli og við­mið vera til staðar hjá félag­inu um hvernig tekið skal á málum sem koma upp í sam­skiptum innan félags­ins, þar með talið mál er varða kyn­ferð­is­lega áreitni. „Tekið hefur verið á öllum málum af þessu tagi með fag­legum og skipu­lögðum hætti og þau leidd til lykta,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Stjórnin stað­festir hins vegar að „til staðar hafa verið vanda­mál í sam­skiptum innan stjórnar við frá­far­andi for­seta. Þessi sam­skipta­vandi er til­kom­inn vegna stjórn­ar­hátta hennar og fram­komu hennar við fram­kvæmda­stjóra félags­ins.“ Fram­kvæmda­stjóri Ferða­fé­lags Íslands er Páll Guð­munds­son, sem hefur gegnt starf­inu frá 2004.

Uppfært klukkan 20:24: Upp­haf­lega sagði að Margrét Hall­gríms­dóttir ætti sæti í stjórn­inni en það er ekki rétt. Margrét sagði sig úr stjórn FÍ í vor þegar hún lét af störfum sem þjóð­minja­vörður. Beðist er vel­virð­ingar á þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár