Teymi þjóðkirkjunnar hætt að kanna mál konu sem ásakaði prest um kynferðisbrot

Kona sem segir prest innan þjóð­kirkj­unnar hafa beitt sig kyn­ferð­is­of­beldi fyrir ell­efu árum síðan leit­aði til teymis kirkj­unnar vegna þess í nóv­em­ber í fyrra. Prest­ur­inn var sendur í leyfi í kjöl­farið.

Teymi þjóð­kirkj­unnar um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni, ofbeldi og um með­ferð kyn­ferð­is­brota innan kirkj­unnar hefur hætt könnun á máli konu sem segir prest hafa beitt sig kyn­ferð­is­of­beldi árið 2011 þegar hún var starfs­maður í sókn hans um tíma. Í kjöl­far þess að konan til­kynnti málið til teym­is­ins var prest­ur­inn leystur tíma­bundið frá störfum á meðan að það var til skoð­unar hjá teym­inu. Hann er enn í leyfi sam­kvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu þeirrar kirkju sem hann starfar hjá.

Ástæða þess að teymið hætti könnun máls­ins er sú að konan bað um það. Hún telur teymið ekki vera óháð í störfum sínum og treystir því ekki. Í tölvu­pósti sem hún sendi á teymið í sumar segir að hún muni „ekki hafa sam­band meira og lít á vinnu ykkar sem lokna af minni hálfu. Ég læt ykkur ekki koma fram við mig eins og ykkur sýn­ist ég er búin að fá nóg af því frá hendi kirkj­unnar fólki og þið eruð algjör­lega fram­leng­ing af kirkj­unnar fólki og ekk­ert annað.“

Sagði fyrst frá í byrjun árs 2019

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um málið í frétta­skýr­ingu í des­em­ber í fyrra. Konan, sem vill ekki koma fram undir nafni, var kölluð Anna í umfjöll­un­inni.

Þar kom fram að hún hafi fyrst sagt frá hinu meinta kyn­ferð­is­of­beldi í byrjun árs 2019. Þá leit­aði hún til ann­ars prests og djákna sem hún treysti. Mannauðs­stjóri var í kjöl­farið kall­aður til og sagt að það þyrfti að láta Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands, vita af mál­inu.

Anna treysti sér ekki til að fara sjálf á fund Agn­esar bisk­ups. Hún treysti því ekki að biskup myndi trúa henni eða taka orð hennar alvar­lega. Prest­ur­inn og djákn­inn sem hún leit­aði til virtu þá ósk hennar og fóru þau á fund bisk­ups fyrir hennar hönd í byrjun árs 2019 til þess að láta biskup vita af ásök­un­un­um. Anna fékk afhent ábyrgð­ar­bréf frá bisk­upi í lok apríl sama ár.

Árið 2019 tók teymi þjóð­­kirkj­unn­­ar við umsjón og aðgæslu „fagráðs“ sem var ábyrgt fyrir mál­efn­inu frá árinu 1998. Um er að ræða teymi sem á að vera óháð kirkj­unni og hefur það yfir­lýsta hlut­verk að stuðla að aðgerðum gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni, ofbeldi og veita stuðn­ing og ráð­gjöf við með­ferð kyn­ferð­is­brota er kunna að koma upp innan þjóð­kirkj­unn­ar.

Teymi þjóð­­kirkj­unnar er ein­ungis skipað fag­­fólki og engum full­­trúa kirkj­unnar – enda er teymið sjálf­­stæður vett­vangur utan kirkj­unn­­ar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Bisk­ups­stofu. Starfs­­fólk þjóð­­kirkj­unn­­ar, þar með bisk­­up, hafi ekki annað aðgengi að teym­inu en að vísa málum þang­að í ferl­ið.

Anna treysti ekki fagráð­inu áður en því var breytt af þeirri ástæðu að í því sat alltaf prestur og vegna fyrri reynslu treysti hún ekki presti til að taka fag­lega á hennar máli.

Viðtal fékk hana til að leyta til teymisins

Þjóð­kirkjan hefur sætt gagn­rýni í gegnum tíð­ina fyrir að taka illa á kyn­ferð­is­af­brota­málum innan kirkj­unnar.

Pétur Georg Markan sam­skipta­stjóri Bisk­ups­stofu sagði í sam­tali við Kjarn­ann þann 22. októ­ber í fyrra að það væri skylda kirkj­unnar að læra af þeirri sögu. Í við­tal­inu greindi Pétur einnig frá því að eitt mál hefði borist inn á borð bisk­ups sem Agnes hefði beint í form­legt ferli. Mál Önnu.

Viðtalið við Pétur fékk Önnu til að leita til hins nýja teymis þjóð­kirkj­unnar og hún fund­aði með því 29. nóv­em­ber í fyrra.

Anna var svo kölluð á ný á fund teym­is­ins 27. jan­úar í ár þar sem hún veitti frek­ari upp­lýs­ingar um atvik máls­ins. Í kjöl­farið hófst form­leg með­ferð þess hjá teym­inu og var stefnt að því að ljúka gerð álits um málið fyrir 1. maí. Í sam­ræmi við verk­lags­reglur boð­aði það umræddan prest á fund sinn til að bera ásak­anir kon­unnar undir hann. Á meðan að á könnun máls­ins stóð sendi Anna líka tugi tölvu­pósta á teymið með við­bót­ar­upp­lýs­ingum um málið. Þar gagn­rýndi hún líka störf teym­is­ins og setti fram efa­semdir um að það bæri hag hennar fyrir brjósti.

Þegar leið á vorið varð teym­inu ljóst að það myndi ekki ná að ljúka vinn­unni fyrir til­sett tíma­mörk og 25. apríl óskaði það eftir því við Bisk­ups­stofu að leyfi prests­ins frá störfum yrði fram­lengt til 1. júlí.

Við þeirri beiðni var orðið.

Telur teymið ekki óháð og treystir því ekki

Í pósti sem for­maður teymis þjóð­kirkj­unnar, lög­mað­ur­inn Bragi Björns­son, sendi kon­unni snemma í sumar segir að í því við­tali sem tekið hafi verið við prest­inn sem hún sakar um að hafa beitt sig kyn­ferð­is­of­beldi fyrir ell­efu árum síðan hafi komið fram upp­lýs­ingar sem teymið taldi rétt að fá við­brögð hennar við. Í við­tal­inu sagði prest­ur­inn meðal ann­ars að hann og konan hefðu átt í kyn­ferð­is­sam­bandi um nokk­urt skeið fyrir mörgum árum síðan en neit­aði því stað­fast­lega að hafa beitt hana ofbeldi og ásak­aði kon­una þess í stað um að beita sig and­legu ofbeldi með ýmsum hætti.

Konan sendi síðan tölvu­póst á teymið 2. júní síð­ast­lið­inn og til­kynnti þeim þar að hún vildi að það hætti vinnu við hennar mál. Hún teldi það ekki óháð í störfum sínum og að traust hennar á teym­inu væri ekk­ert. Þá sagði konan að hún teldi fram­komu for­manns teym­is­ins í sinn garð ófor­svar­an­lega „Ég mun ekki hafa sam­band meira og lít á vinnu ykkar sem lokna af minni hálfu. Ég læt ykkur ekki koma fram við mig eins og ykkur sýn­ist ég er búin að fá nóg af því frá hendi kirkj­unnar fólki og þið eruð algjör­lega fram­leng­ing af kirkj­unnar fólki og ekk­ert annað.“

Í tölvu­pósti sem for­maður teym­is­ins sendi henni degi síðar sagði hann að teymið hefði staðið í þeirri trú að Anna vildi ekki koma til við­tals til að veita andsvör við þeim upp­lýs­ingum sem prest­ur­inn hefði veitt í við­tali sínu og því ynni það að áliti í mál­inu sem byggði á fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum. Það stæði þó til boða að konan kæmi til við­tals ef hún kysi svo.

Ekki á færi teymisins að taka afstöðu

Þann 9. júní til­kynnti teymið kon­unni að það hefði, í sam­ræmi við beiðni hennar, hætt könnun máls­ins og lokið því form­lega með ritun bréfs þar sem til­kynnt yrði um mála­lok og ástæður þeirra.

Í loka­sam­an­tekt um málið sem konan fékk senda, og er dag­sett 28. júní, segir það liggi fyrir að það væri ekki á færi teym­is­ins að taka afstöðu til ásak­ana kon­unnar um að umræddur prestur hafi beitt hana kyn­ferð­is­of­beldi þar sem slík hátt­semi varð­aði við hegn­ing­ar­lög og rann­sókn slíkra saka­mála væri í höndum lög­reglu. Þá yrði ekki séð að aðrar ávirð­ingar hennar á hendur prest­inum „er varða slæma fram­komu hans í hennar garð og hunsun séu þess eðlis að þær falli undir starfs­svið teym­is­ins“. Var þar vísað í að ávirð­ingar kon­un­anar ættu rætur í „per­sónu­legum sam­skiptum þeirra á milli í einka­lífi en snúa ekki að hegðun X í starfi sem prests“.

Við það lauk könnun teym­is­ins á erindi kon­unnar. Umræddur prestur er enn í leyfi sam­kvæmt upp­lýs­ingar á heima­síðu þeirrar kirkju sem hann starfar hjá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár