Ósmekklegt bréf frá eiganda sem áreitti hana

Sigríður Lár­us­dóttir er ein fjöl­margra kvenna sem hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni á vinnu­stað. Eftir að hún kvart­aði undan fram­komu yfir­manns í garð starfs­fólks var henni sagt upp og segir hún að sá sem hafði áreitt hana hafi skrifað henni ósmekk­legt bréf með rök­stuðn­ingi fyrir upp­sögn­inni.

Reynslan
Reynslan Sigríður lítur á kyn­ferð­is­legu áreitn­ina sem hún varð fyrir sem kyn­bundið virð­ing­ar­leysi. Hún telur mik­il­vægt að fólk til­kynni kyn­ferð­is­lega áreitni á vinnu­stað. Mynd: Golli

Sigríður Lár­us­dóttir seg­ist vera af þeirri kyn­slóð sem jafn­vel hváði þegar rætt var um kyn­ferð­is­lega áreitni og seg­ist ekki viss hvort reynsla hennar sé nógu krassandi til að segja frá í við­tali. Hún hefur tvær ólíkar sögur að segja frá sitt­hvorum vinnu­staðnum og seg­ist ekki þurfa að bera þessa skömm sem fylgir þögn­inni.

„Ég vann hjá einka­fyr­ir­tæki þar sem voru nokkrir eig­endur. Einn þeirra var frá­skil­inn eða ekk­ill og var almennt mjög hlé­drægur í fram­komu. Hins vegar þegar vinnu­fé­lagar komu saman og fengu sér í glas, svo sem þegar farið var út að borða, á árs­há­tíð eða í vinnu­ferðir, þá fór hann alger­lega yfir strikið gagn­vart mér. Hann gerði sér meðal ann­ars far um að sitja við hlið­ina á mér, átti það til að strjúka mér undir borð­inu og tók undir arm­inn á mér óboð­inn þegar farið var á milli staða,“ segir Sigríður. 

„Maður …
Kjósa
85
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...

Mest lesið undanfarið ár