„Við eigum sögu sem við þurfum heldur betur að læra af“

Sam­skipta­stjóri Bisk­ups­stofu segir að það sé skylda kirkj­unnar að læra af sögu hennar er varðar við­brögð við kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi. Ein form­leg ásökun hefur borist á borð Bisk­ups­stofu frá því Agnes M. Sigurðar­dóttir tók við emb­ætti.

Hallgrímskirkja
Hall­gríms­kirkja Mynd: Bára Huld Beck

Þjóð­kirkjan hefur svarta sögu er varðar við­brögð við kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi en hæst fór mál Ólafs Skúla­sonar, fyrr­ver­andi bisk­ups, á sínum tíma. Sam­skipta­stjóri Bisk­ups­stofu, Pétur Georg Markan, segir í sam­tali við Kjarnann að það sé skylda kirkj­unnar að læra af þess­ari sögu. Ekkert annað sé í boði en hann telur enn fremur að tíð Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur í emb­ætti bisk­ups verði minnst fyrir það að hún hafi tekið fast á slíkum málum.

Eitt mál hefur form­lega komið á borð Bisk­ups­stofu síðan Agnes tók við emb­ætti árið 2012, að því er fram kemur í svari Bisk­ups­stofu við fyr­ir­spurn Kjarnans. Í svar­inu segir að biskup hafi leið­beint þol­anda í form­legt ferli með pósti dag­settum 18. júní 2019. Sama bréf hafi farið í ábyrgð­ar­pósti til við­kom­andi. Einnig leið­beindi bisk­ups­rit­ari nýlega ein­stak­lingi til teymis þjóð­kirkj­unnar í gegnum síma.

Pétur hefur ekki upp­lýs­ingar um það hvort málið sem til­kynnt var í júní 2019 hafi ratað til lög­reglu eða fagráðs. Allavega fór málið ekki lengra innan Bisk­ups­stofu.

„Starfs­fólk kirkj­unnar (þar með biskup) fær engar upp­lýs­ingar um máls­með­ferð ein­staka þol­anda eða hvort mál séu í umsjón og aðgæslu sér­staks fag­hóps – sem stofnað var til og ber ábyrgð á vel­ferð þol­anda. Hugur bisk­ups er hjá hverjum þol­anda,“ segir í svar­inu.

[adspot]

Þá kemur fram hjá Bisk­ups­stofu að sér­stakt verk­lag fyrir þol­anda kyn­ferð­is­legs áreitni/áreitis eða ofbeldis hafi verið í stöðugri þróun innan kirkj­unnar í gegnum árin. Sértæk aðferð kirkj­unnar sé sjálf­stæður vett­vangur, sér­stakur fag­hópur, sem skipu­lagður sé til að þjóna þol­and­anum. Hópurinn beri fag­lega ábyrgð á stuðn­ingi og máls­með­ferð þol­and­ans.

Enginn fulltrúi kirkjunnar í teyminu

Árið 2019 tók vett­vang­ur­inn „teymi þjóð­kirkj­unnar“ við umsjón og aðgæslu „fagráðs“ sem var ábyrgt fyrir mál­efn­inu frá árinu 1998. Í svar­inu segir enn fremur að teymi þjóð­kirkj­unnar sé aðeins skipað fag­fólki og engum full­trúa kirkj­unnar – enda sé teymið sjálf­stæður vett­vangur utan kirkj­unnar. Teymi þjóð­kirkj­unnar stuðli einnig að fyr­ir­byggj­andi umbreyt­ingum á menn­ingu, skil­virkum aðgerðum gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi, ágengni, áreiti og ein­elti.

[links]Starfs­fólk þjóð­kirkj­unnar, þar með biskup, hefur ekki annað aðgengi að teym­inu en að vísa málum þangað, í ferlið. Verklag teym­is­ins boðar þagn­ar­skyldu eins og er að finna hjá starfs­fólki kirkj­unnar – hvar sem það er að finna, sam­kvæmt Bisk­ups­stofu.

Pétur segir að þau hafi metið það sem svo að það væri best fyrir við­kom­andi sem kvart­aði form­lega árið 2019 að leita til teym­is­ins með sitt mál. „Þetta er í raun og veru gert til að mynda eld­vegg á milli okkar og síðan stétt­ar­innar til þess að tryggja að málið sé algjör­lega óháð og fái með­höndlun á for­sendum þol­and­ans án þess að við komum þar nokkurn tím­ann nálægt,“ segir hann við Kjarnann.

Dularfulla bréfið

Í svari Bisk­ups­stofu eru mál nefnd sér­stak­lega sem fengið hafa umfjöllun í fjöl­miðlum og rekur Kjarninn þau hér fyrir neðan. Í fyrsta lagi má nefna mál séra Ólafs Jóhanns­sonar en hann var leystur frá em­bætti sem sóknar­prestur hjá þjóð­kirkj­unni í sept­em­ber 2019. Þetta var niður­staða bisk­ups­em­bætt­is­ins eftir fundi með fimm konum sem stigu fram og lýstu kyn­ferðis­legu á­reiti, sið­ferðis­brotum og ó­á­sættan­legri hegðun Ólafs, þegar þær störf­uðu með honum í Grens­ás­kirkju.

Í öðru lagi kom upp gam­alt mál sem varð­aði brot séra Þóris Steph­en­sen. Fjöl­miðlar greindu frá því árið 2018 að Þórir, sem var prestur um hálfrar aldar skeið og fyrr­ver­andi dóm­kirkju­prest­ur, hefði mætt á fund sem hald­inn var hjá bisk­upi Íslands þremur árum áður þar sem hann bað konu afsök­unar á að hafa brotið á henni um miðja síð­ustu öld. Þórir var um tví­tugt og í námi þegar þetta gerð­ist en stúlkan innan við ferm­ingu.

Fram til árs­ins 2018 sinnti Þórir hinum ýmsu emb­ætt­is­verk­um inn­an kirkj­unn­ar eft­ir að hann lét form­lega af emb­ætti. Það ár bað Agnes Þóri um að taka ekki að sér fleiri at­hafn­ir eða þjón­ustu. Þau voru sam­mála um það, að sögn Agnes­ar á sínum tíma.

Árið 2019 sendi Þórir kirkju­ráði umslag sem mátti ekki opna fyrr en ári eftir and­lát hans. Kirkjan gaf það út í fyrstu að hún myndi virða þessa ósk Þóris en ekk­ert var vitað um inni­hald umslags­ins. Kirkju­ráð sam­þykkti aftur á móti að skila bréf­inu en Agnes sagði í Kast­ljósi þá þessum tíma að hún myndi vilja að bréf­inu yrði skilað og að hún vissi ekki hvert inni­hald bréfs­ins væri.

Sagði að sam­viskan væri hrein

Í þriðja lagi fékk mál séra Helga Hró­bjarts­sonar umfjöllun í fjöl­miðlum við and­lát hans árið 2018. Í frétt DV frá þeim tíma var málið rifjað upp en árið 2010 ját­aði Helgi fyrir fagráði kirkj­unnar að hafa brotið á börnum. Í umfjöllun DV sagði að málið hefði verið mönnum sem þekktu til Helga mikið áfall enda var hann ekki þekktur fyrir annað en óeig­in­gjarnt starf og ósér­hlífni heima og erlendis.

Á Íslandi starf­aði hann sem prestur í Þor­láks­höfn, Hrísey og á Akureyri. Það var á Norð­ur­landi sem Helgi braut á börnum, sam­kvæmt DV. Erlendis var Helgi trú­boði um ára­bil í Eþíópíu en líka í Senegal. DV ræddi einnig við mann sem átti vin sem var mis­not­aður af Helga, þegar hann var 15 ára í ferð á vegum kirkj­unnar.

Í fjórða lagi rataði mál séra Gunnars Björns­sonar í fjöl­miðla en árið 2019 ræddi Stundin við sex kon­ur sem sögðu Gunn­ar hafa áreitt sig þeg­ar þær voru á barns- og ung­lings­aldri. At­vik­in áttu sér stað yf­ir meira en þriggja ára­tuga skeið á Ísa­firði, Flat­eyri og Sel­fossi þeg­ar Gunn­ar var sókn­ar­prest­ur og tón­list­ar­kenn­ari. Gunn­ar sagði við Stundina að sam­viska hans væri hrein.

Að end­ingu verður að nefna stærsta málið, sem þó var löngu fyrir tíð Agnesar, en árið 1996 stigu þrjár konur fram með ásak­anir á hendur séra Ólafi Skúla­syni, þáver­andi bisk­upi Íslands, um að hann hefði áreitt þær kyn­ferð­is­lega. Kirkjan hafði vitað af þessu þar sem ein kvenn­anna hafði til­kynnt Ólaf áður þegar hann var prestur í Bústaða­kirkju.

Ólafur kærði kon­urnar í kjöl­farið og studdi kirkjan hann á meðan þetta gekk yfir. Þetta sama ár til­kynnti hann afsögn sína. Eftir and­lát hans árið 2008 steig dóttir hans, Guðrún Ebba, fram og sagði frá því að Ólafur hefði mis­notað hana sem barn. Gagn­rýn­is­raddir heyrð­ust í sam­fé­lag­inu í kjöl­farið og töldu margir að kirkjan hefði brugð­ist í málum þess­ara kvenna.

Segjast ekki hika við að senda fólk í leyfi

Pétur ítrekar í sam­tali við Kjarnann að ef gamlir tímar hafi eitt­hvað kennt þeim þá væri það hversu mik­il­vægt það sé að vanda sig, læra af sög­unni og tryggja öruggt umhverfi innan kirkj­unnar.

Hann segir að með því að vísa málum til teym­is­ins þá séu þau að reyna að fara með þau eins fag­lega og skil­virkt og mögu­legt sé en eng­inn prestur situr í teym­inu. Hann segir að í raun og veru vilji þau ekki fá þessi mál inn á borð Bisk­ups­stofu. „Við viljum að þau fari beint í teymið því að það er fag­leg­asti vett­vang­ur­inn. En þegar, eins og í þessum til­fellum sem ég nefni í svar­inu, koma til okkar þá höfum við vísað málum í fagráðið og síðan teymið.“

Varðandi sím­talið sem nýlega barst Bisk­ups­stofu þá segir hann að þau hafi ekki tekið afstöðu til máls­ins heldur vísað á teymið. Þau hafi leyft við­kom­andi að njóta vafans. Ef þau fái meld­ingu frá teym­inu að eitt­hvað óvið­eig­andi hafi átt sér stað þá þurfi að setja þann aðila í leyfi undir eins. „Við hikum ekki við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár