Eitt mál formlega komið á borð KKÍ

Körfuknatt­leiks­sam­band Íslands hvetur þá sem telja á sér brotið að til­kynna um slík mál – öðru­vísi sé ekki hægt að taka á þeim.

Eitt mál er varðar kyn­ferð­is­legt áreiti hefur komið form­lega inn á borð Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands (KKÍ) á síð­ustu 10 árum.

Þetta kemur fram í svari KKÍ við fyr­ir­spurn Kjarnans. Málið var „tekið föstum tökum“, að því er fram kemur í svar­inu.

„Mál koma form­lega inn á borð til okkar með því að þol­andi eða ein­stak­lingur tengdur þolenda með beina vit­neskju til­kynnir okkur um mál. Hvort sem er í beinu sam­tali, gegnum síma eða tölvu­pósti,“ segir í svar­inu.

KKÍ hvetur þá sem telja á sér brotið að tilkynna slík mál

Samkvæmt KKÍ er sam­bandið með verk­ferla fyrir slík mál.

„Í stuttu máli er það þannig að ef upp kemur mál þá eru for­maður og vara­for­maður fyrstu snertifletir. Málið er yfir­farið og tekin ákvörðun um hvort þurfi að til­kynna til lög­reglu sem við teljum þann far­veg sem svona alvar­leg mál eigi að fara.

Í dag höfum við einnig sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta-og æsku­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem á að fá öll mál til sín. En samt sem áður þurfum við að virða óskir þolenda ef þær eru aðrar en að kalla til lög­reglu eða sam­skipta­ráð­gjafa. Þegar búið er að ná utan um málið er stjórn KKÍ upp­lýst og ítrek­aður trún­aður sem ríkir um svona alvar­leg mál. KKÍ hvetur þá sem telja á sér brotið að til­kynna um slík mál, öðru­vísi er ekki hægt að taka á þeim,“ segir í svar­inu.

Eitt mál til HSÍ

­[links]Mikil umfjöllun var í kringum Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) í sumar og haust vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi á hendur lands­liðs­manna í fót­bolta. KSÍ stað­festi við Kjarn­ann í sept­em­ber að ábend­ing hefði borist sam­band­inu snemm­sum­ars um yfir 10 ára gam­alt mál er varðar alvar­legar ásak­anir um kyn­ferð­is­of­beldi tveggja lands­liðs­manna gegn stúlku.

Kjarninn spurði Hand­knatt­leiks­sam­band Íslands (HSÍ) hvort mál hefðu borist á þeirra borð á síð­ustu árum og í svari sam­bands­ins kom fram að eitt erindi er varð­aði ótil­hlýði­lega hátt­semi starfs­manns hafi verið skoðað og sé nú lok­ið.

Sam­kvæmt HSÍ kom eitt mál óbeint á þeirra borð fyrir þann tíma en það varð­aði sjálf­boða­liða hjá þeim „sem varð sekur um ótil­hlýði­lega fram­komu vegna starfa hans í félag­i“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár