Biskupinn hækkaði um hálfa milljón í launum og segir það „kyrrstöðu“

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, hefur brugð­ist við gagn­rýni á 270 þús­und króna launa­hækkun hennar með yfir­lýs­ingu um „tólf ára kyrr­stöðu“ í launa­kjörum.

Biskupinn hækkaði um hálfa milljón í launum og segir það „kyrrstöðu“
Biskup Íslands Launa­þróun bisk­ups er í sam­ræmi við launa­þróun almennt hlut­falls­lega, en í krónum talið hafa laun hennar hækkað langt umfram almenna þróun. Mynd: Pressphotos

Biskup Íslands, sem hefur fengið um hálfa milljón króna í launa­hækkun síð­asta ára­tug­inn, segir nýlega hækkun kjara­ráðs á launum bisk­ups vera „tólf ára kyrr­stöðu að und­an­skil­inni kjara­skerð­ingu hjá presta­stétt­inni á árinu 2009“.

Þetta kemur fram í stutt­legum við­brögðum Agnesar Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups við gagn­rýni á 270 þús­und króna aft­ur­virka launa­hækkun henni til handa, sem kjara­ráð ákvað um helg­ina. Með hækk­un­inni aft­ur­virkt til 1. jan­úar á þessu ári fær Agnes hátt í 3,3 millj­ónir króna í ein­greiðslu. 

Biskup segir í yfir­lýs­ingu sinni að hún vilji „að gefnu til­efni áétta að það er ekki í hans verka­hring að tjá sig efn­is­lega um nið­ur­stöð­una“.

„Kyrrstaða“

Biskup Íslands fékk 648.757 krónur í grunn­laun á mán­uði í júní 2007, eins og sjá má á úrskurði kjara­ráðs það ár. Til við­bótar komu 34 yfir­vinnu­stundir á 5.462 króna tíma­launum. Samtals voru laun bisk­ups því 834.465 krónur. Með hækkun kjara­ráðs nú fær­ist biskup upp í 1.170.443 krónur í grunn­laun og fær þar að auki greidda 40 yfir­vinnu­tíma, sam­tals 382.880 krónur.

Þannig hafa mán­að­ar­laun bisk­ups farið úr 834 þús­und krónum í 1,55 millj­ónir króna á sama tíma­bili og biskup segir að „kyrr­staða“ hafi verið. Þess ber hins vegar að geta að 834 þús­und krónur á verð­lagi árs­ins 2007 jafn­gilda rúm­lega 1,35 millj­ónum króna og því er raun­hækkun launa á tíma­bil­inu um 200 þús­und krónur á mán­uði.

Laun bisk­ups hafa þró­ast með sam­bæri­legum hætti og almenn launa­vísi­tala. Þau hafa hækkað um 86,2 pró­sent á tíu árum, en almennar launa­hækk­anir eru 85,7 pró­sent á sama tíma­bili. Þess ber þó að geta að í krónum talið vegur pró­sentu­hækkun mun meira hjá biskup en öðrum, þar sem launa­maður með 500 þús­und króna tekjur fær 50 þús­und króna hækkun ef hún er 10 pró­sent en biskup fengi ríf­lega 150 þús­und krónur út úr 10 pró­sent hækkun héðan af.

Skrifaði bréf til kjararáðs

Launa­hækkun til handa biskup kemur í kjöl­far þess að hún sendi kjara­ráði bréf. „Í bréf­inu er þess óskað að kjara­ráð end­ur­meti launa­kjör bisk­ups Íslands með hlið­sjón af ábyrgð og umfangi emb­ætt­is­ins,“ segir í úrskurði kjara­ráðs. 

Þar kemur fram að biskup hafi ríkar skyldur sem helst eigi sér hlið­stæður í störfum for­sæt­is­ráð­herra og for­seta. „Marg­vís­legar opin­berar skyldur, hér­lendis og erlendis, felist í því að vera leið­togi og fyr­ir­svars­maður hinnar stjórn­ar­skrár­bundnu, evang­elisku lút­ersku þjóð­kirkju. Megi þar helst til sam­an­burðar nefna ýmsar þær opin­beru skyldur sem hvíli á for­seta Íslands og for­sæt­is­ráð­herra.“

Í ákvörðun kjara­ráðs var horft til þess að „ gæta inn­byrðis sam­ræmis í starfs­kjörum þeim sem það ákveður, og að þau séu á hverjum tíma í sam­ræmi við laun í þjóð­fé­lag­inu hjá þeim sem sam­bæri­legir geta talist með til­liti til starfa og ábyrgðar.“

Þá vekur athygli að grunn­laun bisk­ups hafa nú verið hækkuð lít­il­lega yfir þing­far­ar­kaup Alþing­is­manna, sem kjara­ráð hækk­aði um 44 pró­sent í einni hend­ingu á kjör­dag, 29. októ­ber 2016. Því er ljóst að kjara­ráð hefur með ákvörð­unum sínum raskað inn­byrðis sam­ræmi, sem það vegur nú upp með hækkun á launum bisk­ups.

Yfirlýsing biskups

Í fram­haldi af úrskurði Kjara­ráðs um launa­kjör í presta­stétt vill biskup Íslands að gefnu til­efni árétta að það er ekki í hans verka­hring að tjá sig efn­is­lega um nið­ur­stöð­una. Eðlilegt er þó að benda á að um er að ræða kerf­is­breyt­ingar og launa­leið­rétt­ingar eftir tólf ára kyrr­stöðu að und­an­skil­inni kjara­skerð­ingu hjá presta­stétt­inni á árinu 2009.

Presta­fé­lag Íslands lagði mikla vinnu í að gera kjara­ráði grein fyrir starfs­um­hverfi og starfs­skyldum  presta og bisk­upa. Á meðal þeirra gagna sem lögð voru fram var lýs­ing á dag­legum verk­efnum bisk­ups Íslands sem hann vann að beiðni félags­ins. Nið­ur­staða ítar­legrar skoð­unar og end­ur­mats kjara­ráðs á starfs­kjörum bisk­upa og presta liggur nú fyrir og þarf ekki að koma á óvart að ástæða hafi þótt til ýmissa breyt­inga og leið­rétt­inga. Að öðru leyti mun biskup Íslands ekki tjá sig um nið­ur­stöð­urnar né svara fyr­ir­spurnum um per­sónu­lega afstöðu sína til þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár