Femínískt pönk, burlesque og draumkennd raftónlist um áramótin

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 22. des­em­ber 2017 til 11. jan­úar 2018.

Femínískt pönk, burlesque og draumkennd raftónlist um áramótin

Norður og niður

Hvar? Harpa
Hvenær? 27.–30. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 20.990 kr.

Skrítnu, furðu­legu, dásam­legu og heill­andi strák­arnir í Sigur Rós ákváðu að spila ekki aðeins fjóra tón­leika á fjórum dögum, heldur hafa þeir boðið nokkrum tugum vina sinna að taka þátt í tón­list­ar­há­tíð til að fagna vax­andi birtu í myrkasta svart­nætt­inu. Meðal gesta eru Peaches, Dustin O’Halloran, Amiina, Mogwai, JFDR, Sin Fang og fleiri.

Spünk, Dauðyflin, xGADDAVíRx, ROHT

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 27. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis

Þessar fjórar pönk­hljóm­sveitir efna til tón­leika sem kall­ast „Milli njóla og nýfárs“. Búast má við miklum hávaða, mik­illi orku og dug­legu moshi frá öllum pönk­ur­unum sem hafa setið fúlir heima með hendur í vösum á meðan almúg­ur­inn hefur verið hel­tek­inn af smá­borg­ara­lega jóla­and­anum.

Dömur og herra burlesque sýning

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 28. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Burlesque-senan í Reykja­vík hefur farið vax­andi á und­an­förnum árum; Dömur og herra er nýjasti hóp­ur­inn sem stígur fram í sviðs­ljósið, en hann kom fyrst fram á þessu ári. Þetta er þeirra þriðja sýn­ing og má búast við fjöl­breyttum atriðum, allt frá klass­ísku burlesque og dúska­sveiflum yfir í létt grín yfir íslenskum jóla- og ára­móta­veru­leika. 

Vök & aYia

Hvar? Húrra
Hvenær? 28. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Á þessu kvöldi koma fram þær tvær hljóm­sveitir sem eru fremstar og færastar á sínu sviði. Indí-popp­ar­arnir Vök unnu Mús­íktil­raunir 2013 og hafa síðan þá gefið út tvær breið­skífur og spilað víðs vegar um heim­inn. aYia er dimmt og draumkennt raf­magnað þrí­eyki sem spilar tón­list sem passar varla inn í tíma eða rúm, eins og kafli úr miðri bók sem þú kann­ast ekki við, en getur ekki lagt frá þér.

Andrými í litum og tónum

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 29. des­em­ber kl. 12.10
Aðgangs­eyrir: Ókeypis

Íslenski flautukór­inn og Lista­safn Íslands standa fyrir hádeg­is­tón­leika­röð sem er haldin síð­asta föstu­dag hvers mán­aðar þar sem boðið er upp á fjöl­breytta tón­list. Til­gangur and­rým­is­ins er að gefa fólki kost á að eiga nær­andi stund við sam­tal milli sjón­listar og tón­listar.

Hórmónar, Gróa, Korter í flog, Tófa

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 29. des­em­ber kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Í annað skiptið á einum mán­uði spila ungu rokk­ar­arnir í Gróu með femínísku pönk­ur­unum í Hórmónum sem taka pláss, hafa hátt og spila til­finn­inga­ríka tón­list. Með þeim í för eru Korter í flog, sem komust á úrslita­kvöld Mús­íktil­rauna 2017, og Tófa sem hefur verið að spila list­rænt pönk í nokkur ár.

Heimkomutónleikar Mammúts

Hvar? Gamla bíó
Hvenær? 4. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 4.500 kr.

Kyngi­magn­aða list­ræna rokksveitin Mammút hefur verið á tón­list­ar­ferða­lagi um heim­inn síð­asta ár að kynna nýju plöt­una sína, „Kinder Versions“, en því ferða­lagi lýkur í Gamla bíói. Búast má við að platan verði tekin nán­ast í heild sinni, auk nokk­urra eldri laga af fyrri plötum hljóm­sveit­ar­innar „Komdu til mín svarta systir“ og „Karkari“.

Sólveig Matthildur, Madonna + Child, Nicolas Kunysz, åtåmåtån 

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 6. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Sólveig Matt­hildur hefur fryst hjörtu og opnað fyrir tára­kirtla með plötu sinni „Unex­plained myseries & the acceptance of sorrow“ sem kom út í haust. Sólveig er hljóð­gervils­spil­ari Kælunnar miklu, en hún hefur það hefur aðeins verið við örfá til­efni sem hún hefur komið fram á Íslandi með sól­ó­efni sitt. Á þessu kvöldi kryfur hún hug­tökin eymd og upp­lausn með döprum tónum og þremur öðrum hljóm­sveitum.

WANG WEN & For A Minor Reflection 

Hvar? Húrra
Hvenær? 10. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Kín­verska síð­rokks­hljóm­sveitin Wang Wen hefur verið að störfum í 18 ár. Á þeim tíma hefur hún gefið út níu breið­skífur og haldið í fjóra Evr­óput­úra, en hún kemur fram á Íslandi í fyrsta skiptið. Hún kemur fram með íslensku rokksveit­inni For a Minor Reflection sem hefur verið virk í rúman ára­tug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár