Gagnrýnir prófíl-mynd þingkonu sem kvartar undan áreitni

Við­skipta­fræð­ing­ur­inn Ragnar Önund­ar­son, fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, bendir á prófíl­mynd af Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur og telur hana þurfa að leita ráð­gjafar almanna­teng­ils vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni.

Gagnrýnir prófíl-mynd þingkonu sem kvartar undan áreitni
Mynd Áslaugar Áslaug Arna birti með­fylgj­andi mynd af sér í sumar, með text­anum: Sumar. Mynd: Facebook

Fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ragnar Önund­ar­son, gerir athuga­semdir við prófíl­mynd  Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hún birti í sumar, vegna frá­sagna hennar af kyn­ferð­is­legri áreitni. 

Færsla RagnarsHann biður fólk að dæma prófíl­mynd Áslaugar Örnu vegna kvart­ana hennar um kyn­ferð­is­lega áreitni en seg­ist ekk­ert hafa verið að meina með því.

„Þessi unga kona var í sjón­varpi í kvöld að ræða um kyn­ferð­is­lega áreitni við konur í stjórn­málum. Með­fylgj­andi mynd hefur hún notað sem ,,prófíl­mynd“ á FB. Sjálf­sagt finnst sumum engu skipta hvernig myndir fólk í stjórn­málum notar til að kynna sig. Dæmi hver fyrir sig,“ segir Ragnar.

Þegar Áslaug Arna spyr Ragnar hvað hann sé að meina með athuga­semd­inni, svarar Ragnar: „Kannski ætt­irðu að leita ráð­gjafar almanna­teng­ils ?“

„Þessi ummæli þín og aðdrótt­anir eru til skammar“

Ragnar er harð­lega gagn­rýndur undir færslu sinni um mynda­val Áslaugar Örnu. „ Í fyrsta lagi er ekk­ert að þess­ari mynd. Í öðru lagi eru sam­skipta­miðlar ekki bara fyrir fólk til að kynna sig. Þessi mynd er á per­sónu­legri síðu Áslaugar Örnu, ekki póli­tísku síð­unni hennar. Þetta er síðan sem hún notar m.a. í sam­skiptum við vini og fjöl­skyldu, síða sem hún ræður yfir og má að sjálf­sögðu hafa eins og henni sýn­ist. Þessi ummæli þín og aðdrótt­anir eru til skammar Ragnar en segja meira um þig en hana,“ segir Margrét Tryggva­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Karlar taki ábyrgð

Yfir þrjú hund­ruð konur í stjórn­málum rit­uðu nafn sitt á lista í dag með áskorun til stjórn­mála­manna vegna áreitni og kröfu um að allir karlar taki ábyrgð. 

Þrjár stjórn­mála­konur komu fram í Kast­ljósi Rúv í kvöld og greindu frá reynslu sinni, þar á meðal Áslaug Arna. „Það sem snýr kannski mest að mér eru kyn­ferð­is­legar athuga­semdir um að maður sé ekki starfi sínu vax­inn, ekki eins hæfi­leik­a­ríkur og staða manns gefi til kynna og að maður sé ekki nógu góður í starfi svo maður hljóti að hafa sofið hjá þeim sem völdin hafa til þess að kom­ast á þann stað sem maður er,“ sagði hún meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár