Þrjú hundruð stjórnmálakonur skora á stjórnvöld: „Hótað nauðgun vegna skoðana minna“

305 íslenskar stjórn­mála­konur skrifa undir áskorun til stjórn­mál­anna umað taka kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi alvar­lega. Níu reynslu­sögur fylgja áskor­un­inni, þar sem þær segja frá því hvernig þeim var haldið niðri með slíkri fram­komu.

Þrjú hundruð stjórnmálakonur skora á stjórnvöld: „Hótað nauðgun vegna skoðana minna“

„Já, ég er ein­hleyp, ung kona, en ég gekk ekki inn í stjórn­mála­starf til þess að hafa ofan af fyrir giftum mönnum sem eru ef til vill orðnir leiðir á kon­unum sínum,“ segir ónafn­greind íslensk stjórn­mála­kona.

Ríflega 300 íslenskar konur úr öllum flokkum hafa sent frá sér áskorun til stjórn­mál­anna um að taka á kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni af festu, þar sem allir flokkar setja sér við­bragðs­reglur og lofi kon­unum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær fái stuðn­ing.

Samhliða því sendu stjórn­mála­kon­urnar níu reynslu­sögur ónafn­greinda kvenna, sem greina frá áreitni sem þær hafa orðið fyrir. Ein segir þar frá því að henni hafi verið hótað nauðgun vegna skoð­ana sinna og önnur segir það þekkt á alþjóð­legum fundum hvaða stjórn­mála­menn séu mestu perr­arnir, því þær hafi margar lent í þeim.

Sögurnar má allar lesa hér að neðan, sem og yfir­lýs­ing­una í heild sinni.

 

„ Margar hafa fengið beina hótun um að póli­tískur fer­ill þeirra yrði bara ekki að neinu ef þær væru ekki til í að borga fyrir það ein­hvern­veg­inn“

1. Síðan ég byrj­aði að starfa í póli­tík hafa nokkrir menn úr stjórn­mála­flokknum, og þá flestir giftir menn verið að senda mér skila­boð á kvöldin. Menn gera sér upp mis­jöfn til­efni til þess að hafa sam­band. Segjast vilja hjálpa mér ef mig vanti ein­hverja hjálp t.d. Ég velti því fyrir mér hvort að þeir vilji eiga inni hjá mér greiða eða hvort þeir séu að sýna að þeir séu valda­meiri. Svo koma komment eins og: þú ferð nú í fram­boð er það ekki? Þú hefur alla­vega kinn­beinin í það. (Já, stelpur, þið sem eruð með kinn­bein, drífið ykkur í fram­boð!) Svo hef ég líka fengið: þú ert nú með rödd­ina í það, oh þessi rödd! Einn af þessum mönnum veit ég til að hefur verið að hafa sam­band við fleiri ungar konur í flokknum. Já ég er ein­hleyp, ung kona, en ég gekk ekki inn í stjórn­mála­starf til þess að hafa ofan af fyrir giftum mönnum sem eru ef til vill orðnir leiðir á kon­unum sínum.

 2. Ég var einu sinni í Finn­landi á UNR sem er Ungmenna þing Norð­ur­landa­ráðs sumsé þvert á alla flokka þegar ég mæti í kjól og hælum fyrir dinn­er­inn segir hann NEI loks­ins sexy og sæt kona í vinstri póli­tík, sama kvöld tal­aði hann við nokkra aðra stráka um þetta og í hvert skipti sem ég og sænsk vin­kona mín gengum nálægt honum þá þurfti hann að kommenta á útlit okkar. Óþolandi og gerði mig alltof með­vit­aða um sjálfa mig, áttum svo eftir heilan dag af þing­inu og ég meik­aði bara ekki að tjá mig dag­inn eftir á fund­inum. 

Annars á svip­uðum event sat ég með nokkrum ungum konum af öllum flokkum þar sem var farið yfir hvaða þing­menn væru mestu perr­arnir á þessum þingum. 

Það er því miður þannig að flestar af ungu kon­unum sem taka þátt í þessum þingum hafa lent í perra­köllum og sumar hafa bara mjög grófar og ógéðs­legar sögur. Margar hafa fengið beina hótun um að póli­tískur fer­ill þeirra yrði bara ekki að neinu ef þær væru ekki til í að borga fyrir það ein­hvern­veg­inn

„Ég sat þarna klemmd á milli mann­anna, eng­inn kom mér til varnar“

3. Eftir umræðu­fund um mál­efni tengt Íraks­stríð­inu hélt hóp­ur­inn á bar og þar sem ég sat og ræddi við stjórn­mála­menn tvo og einn vin þeirra um mál fund­ar­ins, fór vin­ur­inn upp úr þurru að benda á hvað ég væri með fal­lega brjósta­skoru. Mér þótti þetta aug­ljós­lega óþægi­legt og bað hann um að hætta þessu, en hann hélt áfram. Ég sat þarna klemmd á milli mann­anna, eng­inn kom mér til varnar, ég fór. Hvað hafði eig­in­lega gerst, í miðri mál­efna umræðu var ég á svip­stundu orðin hlutur í augum þriggja manna. Ég á fleiri svona sögur.

4. Er komin fram sagan af karl­kyns borg­ar­stjór­anum sem fór með gam­an­mál í fjöl­mennri veislu í Viðey á vegum borg­ar­innar? Þar fjall­aði hann um „gang­teg­undir“ kvenna. Þær hafa nefni­lega bara tvenns konar gang: frekju­gang og yfir­gang. Þetta var á þess­ari öld nota­bene.

5. Einn af upp­renn­andi stjórn­mála­mönn­unum er með margar „óstað­festar“ sögur um áreitni gangvart ungum konum. Innan flokks­ins var gert mál úr þessu og reynt að láta hann sæta ábyrgð. Ein­hverjar konur gátu ekki hugsað sér að starfa með flokknum vegna þessa manns. Ekkert kom útúr mál­inu og mað­ur­inn starfar í flokknum eins og ekk­ert hafi í skorist enda er svo rosa­lega dramat­ískt að hefta póli­tískan feril ungs manns þrátt fyrir sögu­sagnir.

„Nokkrir ganga lengra, niðr­andi komment og nið­ur­rif, örfáir en fleiri en tveir, káf og til­raunir til að kom­ast lengra“

6. Ég er nýkjörin for­maður í nýju kjör­dæm­is­fé­lagi flokks. Öflugt félag strax, fund­ar­her­ferðir, umræður og stuð ... Ýmsir karl­menn meika mig ekki og eru sífellt að reyna að skrúfa mig niður ... Nokkrir ganga lengra, niðr­andi komment og nið­ur­rif, örfáir en fleiri en tveir, káf og til­raunir til að kom­ast lengra ... Engum tókst en hafði þau áhrif að mig lang­aði ekki að vera í for­ystu ... þeirra.

7. Ég get ekki talið upp öll þau skipti sem mér hefur beint og óbeint verið hótað nauðgun vegna skoð­ana minna. Ég hef engan áhuga á að hafa það eftir, en ég hef oft lesið um alls­konar hluti sem ég hefði gott af og hvernig væri nú best að þagga niður í mér.

8. Að taka þátt í próf­kjöri var ávísun á að þurfa „þola“ kossa, þukl og faðm­lög frá flokks­Mönnum, helst með bros á vör, (ann­ars myndu Þeir ekki kjósa þig).

9. Ég hef verið þátt­tak­andi í póli­tísku starfi allt frá mennta­skóla­árum. Ég hef oft orðið fyrir nið­ur­lægj­andi ummælum og fram­komu sem bein­línis má rekja til þess að ég er kona, en ég hef ekki orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni eða ofbeldi í störfum mínum í nefndum, í fram­boði, í borg­ar­stjórn, á alþingi eða í ráðu­neyti. Það er ástæðan fyrir því að ég skrif­aði ekki undir áskor­un­ina en sé svo að það hafa nokkrar gert, sem eins er ástatt um. En utan hins póli­tíska vett­vangs - bæði í vinnu og í skemmt­ana­lífi hef ég lent í alls konar - eins og sagt er. 

 

Áskorun til stjórnmálanna

Í SKUGGA VALDSINS #METOO

1. Kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni á sér stað í stjórn­málum rétt eins og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. 

2. Með­fylgj­andi eru frá­sagnir kvenna sem lýsa reynslu sinni.

„Við krefj­umst þess að allir karlar taki ábyrgð“

3. Það verður að verða breyt­ing á. Við krefj­umst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir stjórn­mála­flokkar taki af festu á mál­inu, setji sér við­bragðs­reglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðn­ing.

Á meðal þeirra sem skrifa undir áskor­un­ina eru þing­konur, fyrr­ver­andi ráð­herrar og framá­konur í stjórn­málum. Þar má nefna Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur, fyrr­ver­andi for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, utan­rík­is­ráð­herra og borg­ar­stjóra sem nú starfar fyrir UN Women, Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og inn­an­rík­is­ráð­herra, sem og Svandísi Svav­ars­dóttur, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra og Oddnýju Harð­ar­dóttir sem stýrði fjár­mála­ráðu­neyt­inu um tíma. 

Ráð­herrar frá­far­andi rík­is­stjórnar eru einnig á list­anum, þær Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Björt Ólafs­dóttir og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, sem og aðstoð­ar­kona for­sæt­is­ráð­herra, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir. 

Undirskriftir:

1. Heiða Björg Hilm­is­dóttir, vara­for­maður og borg­ar­full­trúi. Sam­fylk­ingin.

2. Guðlaug Svala S Krist­jáns­dóttir, for­seti bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði. Björt fram­tíð.

3. Drífa Snædal, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri VG.

4. Sigríður Erla Sturlu­dóttir, 2. vara­for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna.

5. Claudia Overesch, Alþýðu­fylk­ingin.

6. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, vara­for­maður bráða­birgð­ar­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands.

7. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Viðreisn.

8. Silja Jóhann­es­dóttir, stjórn­ar­með­limur í Kvenna­hreyf­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar.

9. Jóhanna María Sig­munds­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

10. Nikólína Hildur Sveins­dóttir, alþjóða­rit­ari Ungra jafn­að­ar­manna, ung­liða­hreyf­ingar Sam­fylk­ing­ar­innar

11. Björt Ólafs­dóttir, ráð­herra. Björt Framtíð.

12.  Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

13. Hildur Þór­is­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi L-lista á Seyð­is­firði og for­maður Sam­fylk­ingar á Seyð­is­firði.

14. Þórey Vil­hjalms­dottir, fyrr­ver­andi for­maður Lands­sam­bands Sjálf­stæð­iskvenna.

15. Hulda Sigrún Guð­munds­dóttir, bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Fjarða­byggð.

16. Sabine Leskopf, vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar.

17. Herdís Sig­ur­jóns­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­manna í Mos­fellsbæ.

18. Dagrún Ósk Jóns­dóttir, rit­ari UVG.

19. Sigrún Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stýra Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Kópavogi.

20. Margrét Erla Þórs­dóttir, við­burða­stýra UVG.

21. Sigrún Skafta­dóttir, fyrrum Feminist Network Coordinator fyrir Young European Socialist, fyrrum alþjóða­rit­ari Ungra Jafn­að­ar­manna og núver­andi stjórn­ar­maður í kvenna­hreyf­inu Sam­fylk­ing­ar­innar. 

22. Sólveig Skafta­dóttir, stjórn­ar­með­limur í Kvenna­hreyf­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar.

23. Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna og for­seti borg­ar­stjórnar.

24. Margrét Lind Ólafs­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi og for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar.

25. Elín Margrét Böðv­ars­dóttir. Sjálf­stæð­is­flokknum. 

26. Krist­björg Þór­is­dóttir, vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

27. Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Vinstri grænna.

28. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

29. Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

30. Þórlaug Borg Ágúst­dóttir, ráðs­full­trúi og fyrr­ver­andi for­maður Pírata í RVK.

31. Eva Ein­ars­dottir, vara­borg­ar­full­trúi og fyrr­ver­andi vara­þing­kona. Björt Framtíð.

32. Sólveig Anna Jóns­dóttir, Sós­í­alista­flokki Íslands.

33. Aðal­heiður Björt Unn­ars­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi Fram­sóknar í Fljóts­dals­hér­aði.

34. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, fyrrrv. þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar.

35. Laufey Líndal Ólafs­dóttir, með­limur í bráða­birgða­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands.

36. Guðrún Arna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi vara­bæj­ar­full­trúi Garðabæ. Sam­fylk­ingin.

37. Pálína Mar­geirs­dóttir, bæj­ar­full­trúi Fram­sóknar í Fjarða­byggð.

38. Auður Lilja Erlings­dóttir. Vinstri Græn.

39. Margrét M. Norðdahl, vara­borg­ar­full­trúi í Reykja­vík. Sam­fylk­ingin.

40. Dagbjört Páls­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar á Akureyri.

41. Halldóra Mogensen, þing­kona Pírata.

42. Eva Pandora Bald­urs­dóttir, frá­far­andi þing­maður og odd­viti Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

43. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður þing­flokks VG.

44. Eydís Ásbjörns­dóttir, bæj­ar­full­trúi Fjarða­list­ans í Fjarða­byggð.

45. Ragn­heiður Her­geirs­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri og bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Árborg.

46. Bryndís Haralds, þing­kona og bæj­ar­full­trúi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

47. Arna Ír Gunn­ars­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Árborg.

48. Þór­hildur Hlín, ungir jafn­að­ar­menn.

49. Halla Signý Krist­jáns­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

50. Sóley Björk Stef­áns­dóttir, bæj­ar­full­trúi á Akureyri, Vinstri græn.

51. Sandra Rán Ásgríms­dóttir, for­maður Sambands ungra Fram­sókn­ar­manna.

52.  Ída Finn­boga­dóttir, vara­for­maður Ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík.

53. Kristín Elfa Guðna­dóttir, ráðs­full­trúi Pírata hjá Reykja­vík­ur­borg.

54. Rósanna Andr­és­dóttir, Sam­fylk­ing­unni.

55. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þin­maður, rit­ari og starf­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

56. Eva H. Bald­urs­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður Félags frjáls­lyndra jafn­að­ar­manna.

57. Esther Ösp Gunn­ars­dóttir, bæj­ar­full­trúi Fjarða­list­ans í Fjarða­byggð.

58. Anna Sigríður Guðna­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Mos­fellsbæ.

59.  Ingi­björg Þórð­ar­dóttir, vara­þing­maður. VG.

60. Sigrún Blöndal, bæj­ar­full­trúi L-list­ans á Fljóts­dals­hér­aði og for­maður Sambands sveit­ar­fé­laga á Aust­ur­landi.

61. Arna Lára Jóns­dóttir, bæj­ar­full­trúi Í-list­ans í Ísa­fjarð­arbæ og for­maður bæj­ar­ráðs.

62. Katla Hólm Þór­hild­ar­dóttir. Píratar.

63. Þóra Geirlaug Bjart­mars­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður UVG. Vinstri Græn.

64.  María Hjálm­ars­dóttir, vara­þing­maður sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­austur kjör­dæmi.

65. Margrét Gauja Magn­ús­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði. Sam­fylk­ingin.

66.  Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi.

67. Áslaug Hulda Jóns­dóttir, for­maður bæj­ar­ráðs Garða­bæjar. Sjálf­stæð­is­flokkur.

68. Hjördís Helga Seljan Þór­odds­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi Fjarða­list­ans í Fjarða­byggð.

69. Inga Björk Mar­grétar Bjarna­dóttir, Sam­fylk­ing­unni.

70. Silja Snædal Drífu­dóttir, fyrr­ver­andi alþjóða­rit­ari UVG og vara­maður í stjórn VG í Reykja­vík.

71. Erla Björg Guð­munds­dóttir, Sam­fylk­ing­unni.

72. Alma Lisa Johanns­dottir, VG.

73. Marta Sig­urð­ar­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Grinda­vík. Sam­fylk­ingin.

74. Tanja Rún Krist­manns­dóttir, vara­for­maður Sambands ungra fram­sókn­ar­manna.

75. Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi og rit­ari VG.

76.  Ingi­björg Ólöf Isaksen, bæj­ar­full­trúi á Akureyri. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

77. Oddný Sturlu­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar.

78. Theodóra S. Þor­steins­dóttir, for­maður bæj­ar­ráðs Kópa­vogs­bæjar og fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar.

79. Ingi­björg Ingva­dóttir, Fram­sókn­ar­flokki.

80. Eydís Blöndal, önnur vara­þing­kona VG í Reykja­vík suður.

81. Nichole Leigh Mosty, for­maður hverf­is­ráðs Breið­holts og fyrrum þing­maður Bjartar fram­tíðar.

82. Halla Gunn­ars­dóttir, vara­þing­maður VG.

83. Kristín Sæv­ars­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi.

84. Ásta Hlín Magn­ús­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sambands ungra fram­sókn­ar­manna.

85. Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Kvenna­fram­boði, Kvenna­lista, Reykja­vík­ur­lista og Sam­fylk­ingu.

86. Iðunn Garð­ars­dóttir, Vinstri græn.

87. Dóra Sif Tynes, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Við­reisnar.

88. Andrea Hjálms­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi VG á Akureyri.

89. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, ráðs­full­trúi Pírata hjá Reykja­vík­ur­borg.

90. Margrét Tryggva­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. 

91. Jónína Erna Arn­ar­dóttir, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

92. Guðrún Ágústs­dóttir, aðal- og vara­borg­ar­full­trúi á árunum 1978-1999. Forseti borg­ar­stjórnar frá 1994-1999. VG.

93. Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, vara­for­maður Við­reisnar.

94. Guðrún Jóna Jóns­dóttir, fyrrum forman Ungra jafn­að­ar­manna.

95. Sigríður Huld Jóns­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar á Akureyri.

96. Hildur Frið­riks­dóttir. VG.

97. Sigríður Pét­urs­dóttir, for­maður hverf­is­ráðs Kjal­ar­ness. VG.

98. Una Hild­ar­dóttir, gjald­keri og vara­þing­maður VG. 

99. Gyða Dröfn Hjalta­dóttir, for­maður Ungra Vinstri grænna.

100. Ása Elín Helga­dóttir, fram­kvæmd­ar­stjórn UJ. Sam­fylk­ingin.

101. Marzibil S. Sæmund­ar­dóttir, fyrr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar.

102.  Þorbjörg Helga Vig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

103. Dóra Magn­ús­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi í Rvk. Sam­fylk­ing.

104. Sema Erla Serdar, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi.

105. Gerður Jóns­dóttir, stofn­fé­lagi í Mið­flokknum. Fyrr­ver­andi for­maður Lands­sam­bands fram­sókn­ar­kvenna, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Fram­sóknar á Akureyri.

106. Adda María Jóhanns­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði.

107. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Ungra Pírata og vara­þing­maður Pírata.

108. Kristín María Birg­is­dóttir, for­maður bæj­ar­ráðs Grinda­vík­ur­bæjar. Listi Grind­vík­inga.

109. Anna Lísa Björns­dóttir. VG.

110. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, vara­for­maður bráða­birgð­ar­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands.

111. Gréta Ing­þórs­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

112. Ingi­björg Ólöf Vil­hjálms­dóttir. Fram­sókn­ar­flokki.

113. Ásta Guðrún Helga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata.

114. Inga Auðbjörg Straum­land, fyrr­ver­andi vara­for­maður ungra jafn­að­ar­manna.

115. Svala Jóns­dóttir, vara­maður í nefnd fyrir VG.

116. Freyja Stein­gríms­dóttir, stjórn­mála­ráð­gjafi og með­limur í Sam­fylk­ing­unni.

117. Val­gerður Blá­klukka Fjöln­is­dóttir, vara­for­maður UVG.

118. Helga Dögg Björg­vins­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Lands­sam­bands Sjálf­stæð­iskvenna.

119. Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins.

120. Guðný Hildur Magn­ús­dóttir, VG, fyrr­ver­andi for­maður VG á Vest­fjörðum og núver­andi stjórn­ar­kona VG á Vest­fjörðum.

121. Jóna Björg Sætran, 4 á lista Fram­sóknar- og flug­vall­ar­vina, á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins til alþing­is­kos­inga 2017.

122. Birna Hafstein, Viðreisn.

123. Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir, for­maður Kvenna­hreyf­ingar Sam­fylk­ing­ar­innar.

124.  Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata.

125. Bryndís Frið­geirs­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Ísa­fjarð­arbæ, fyrr­ver­andi for­maður Kvenna­hreyf­ingar Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á Vest­fjörðum.

126. Rannveig Ernu­dóttir, fyrr­ver­andi rit­ari Pírata og núver­andi vara­rit­ari Pírata, fram­bjóð­andi með Pírötum 2017.

127. Andrea Ósk Sig­ur­björns­dóttir, inn­an­starfs­full­trúi UVG.

128. Greta Björg Egils­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina og nú síð­ast á lista Mið­flokks­ins.

129. Elín Ýr Arnar Haf­dís­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­ráðs Pírata og núver­andi for­maður Pírata í Hafn­ar­firði.

130. Guðrún Ágústa þór­dís­ar­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Pírata.

131. Álf­heiður Eymars­dóttir, kafteinn Pírata á Suð­ur­landi og vara­þing­maður.

132.  Fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi á Akureyri til 12 ára, for­maður Félags versl­unar og skrif­stofu­fólks Akureyri í 10 ár. Mið­stjórn ASÍ og stjórn LÍV.

133. Úlf­hildur Rögn­valds­dóttir, stofn­fé­lagi í Mið­flokknum, áður í Framsókn.

134. Ása Richardsdóttir, Sam­fylk­ingin ,bæj­ar­full­trúi Kópavogi og vara­for­seti bæj­ar­stjórnar.

135. Ása Lind Finn­boga­dóttir, fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi Dögunar til Alþingis en er skráð bæði í Pírata og Sam­fylk­ingu.

136. Þor­gerður María Hall­dórs­dóttir, fv. Sjálf­stæð­is­flokknum.

137.  Margrét Kristín Helga­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Bjartrar fram­tíðar í bæj­ar­stjórn Akur­eyrar.

138. Guðrun Erla Geirs­dóttir, ein af stofn­endum Kvenna­fram­boðs­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar og fyr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúi.

139. Björk Vil­helms­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og Reykja­vík­ur­list­ans.

140. Þórhalla Rein Aðal­geirs­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður UJ í Gbæ og Álfta­nesi, fyrr­ver­andi stjórn Röskvu.

141. Halldóra Jón­as­dóttir, einka­þjálf­ari og flug­kona, virk innan Pírata og fram­bjóð­andi í SV fyrir Pírata 2017.

142. Hanna Bjart­mars Arn­ar­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar.

143. Þor­gerður Jóhann­es­dóttir, skrif­stofu­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi.

144. Silja Dōgg Bald­urs­dóttir bæj­ar­full­trúi á Akureyri. L- list­inn.

145. Sigrún H Páls­dóttir, bæj­ar­full­trúi Íbúa­hreyf­ing­ar­innar.

146. María Pét­urs­dóttir, Sós­í­alista­flokkur Íslands.

147. Ingi­björg Stef­áns­dóttir, í stjórn full­trúa­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík og vara­maður í fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar. Fyrr­ver­andi starfs­kona Kvenna­list­ans.

148. Sigríður Sig­mars­dóttir. Sjálf­stæð­is­flokkur.

149. Anna Margrét Guð­jóns­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, í stjórn full­trúa­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík.

150. Sigrún Rík­harðs­dóttir, fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar.

151.  Hólm­fríður Bjarna­dóttir. Pírati.

152. Unnur Tryggva­dóttir Flóvenz, fyrr­ver­andi vara­bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi og fyrr­ver­andi mál­efna­stýra Ungra jafn­að­ar­manna.

153. Sigríður M Guð­jóns­dóttir, bæj­ar­fulll­trúi Fjarð­s­list­ans í Fjarða­byggð.

154. Sigríður Gísla­dóttir, for­maður VG á Vest­fjörðum.

155. Eva Dögg Guð­munds­dóttir, stjórn­ar­með­limur í stjórn Sam­fylk­ing­ar­fé­lags  Reykja­víkur, SffR.

156. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra  Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

157. Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­kona VG.

158. Steinunn Rögn­valds­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Ungra vinstri grænna.

159. Geirlaug Jóhanns­dóttir, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Borg­ar­byggð. Sam­fylk­ing.

160.  Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar.

161. Guðrún Íris Vals­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Fjarða­list­ans í Fjarða­byggð.

162. Bryndís Sig­urð­ar­dóttir, fyrsti for­maður Sam­fylk­ingar í Hvera­gerði og á lista Sam­fylk­ingar í Suð­ur­kjör­dæmi fyrir nokkrum kosn­ingum.

163. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar.

164.  Guðrún Dóra Brynj­ólfs­dóttir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

165. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og borg­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

166.  Ásta Kristín Sig­ur­jóns­dóttir , fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

167.  Diljá Ámunda­dóttir, fyrr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúi Bjartrar Fram­tíðar.

168. Sigrún Björk Jak­obs­dóttir, bæj­ar­full­trúi og bæj­ar­stjóri á Akureyri. Sjálf­stæð­is­flokki.

169. Bryndís Gunn­laugs­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi, fyrr­ver­andi for­maður SUF og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Fram­sóknar.

170.  Ingi­björg Óðins­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

171. Elva Dögg Ásud. Krist­indóttir, odd­viti VG í Hafn­ar­firði og bæj­ar­full­trúi í bæj­ar­stjórn.

172. Borg­hildur Sölvey Sturlu­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi BF í Hafn­ar­firði.

173. Þor­gerður Anna Arn­ar­dóttir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

174. Val­gerður Hall­dórs­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði. Sam­fylk­ing.

175. Vilborg Odds­dóttir, 5. sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­víð suður fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar.

176. Jónína Sig­urð­ar­dóttir, stjórn­ar­maður í Heimdalli og odd­viti Vöku félags lýð­ræð­is­sinn­aðra stúd­enta á Mennta­vís­inda­sviði. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

 177. Tinna Dögg Guð­laugs­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­fé­lags Kópavogs og fyrr­vr­eandi vara­þing­maður.

178. Stefanía Sig­urð­ar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Við­reisnar.

179. Katrín Ósk, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokk­ins í SV, vara­for­maður Stefnis, félags ungra í Hafn­ar­firði og odd­viti Vöku, félags lýð­ræð­is­sinn­aðra stúd­enta við HÍ.

180. Jenný Heiða Zalewski, vara­for­maður Kvenna­hreyf­ingar Sam­fylk­ing­ar­innar.

181. Ásrún Birg­is­dóttir, rit­ari Félags sjálf­stæð­is­manna í Nes- og Mela­hverfi í Reykja­vík.

182. María Júlía Rún­ars­dóttir. Framsókn.

183. Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

184. Margrét Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra. Framsókn.

185. Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir, vara­þing­kona Fram­sóknar og stjórn­ar­með­limur SUF.

186. Erla Hlyns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pírata.

187. Dagbjört Hákon­ar­dóttir, fyrr­ver­andi gjald­keri og með­stjórn­andi Ungra Jafn­að­ar­manna, Röskvu­kona og fyrr­ver­andi for­maður Ungra Evr­ópu­sinna.

188. Inga Sæland, þing­maður og for­maður Flokks fólks­ins.

189. Ásrún Helga Krist­ins­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Grinda­vík fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

190. Eva Margrét Krist­ins­dóttir, fyrr­ver­andi vara­bæj­ar­full­trúi og fyrr­ver­andi for­maður ungra jafn­að­ar­manna á Sel­tjarn­ar­nesi. Sam­fylk­ing.

191. Ásgerður K. Gylfa­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Sveit­ar­fé­lag­inu Horna­firði og vara­þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi.

192. Guðrún Katrín, fyrr­ver­andi flokk­stjórn­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjótn­ar­maður á Seyð­is­firði fyrir Sam­fylk­ing­una.

193. Guðveig Eygló­ar­dóttir, odd­viti Fram­sóknar í sveit­ar­stjórn Borg­ar­byggðar.

194. Lára Björg Björns­dóttir, VG.

195. Sæunn Stef­áns­dóttir, fyrrum rit­ari og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

196. Dagný Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

197. Anna Björg Níels­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi fyrir Fram­fara­sinna.

198. Inga María Hlíðar Thor­stein­son, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

199. Sunna Rós Víð­is­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­ráðs Pírata.

200. Elsa Krist­jáns­dóttir, gjald­keri Pírata.

201. Ragn­hildur Vig­fús­dóttir, Kvenna­lista og síðar Sam­fylk­ingin.

202. Inga Þyri Kjart­ans­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands Fram­sókn­ar­kvenna, í mið­stjórn og vara­maður í kjör­dæm­is­ráði Fram­sókn­ar­flokks í SV.

203. Bryndís Ísfold Hlöðvers­dóttir, fyrr­ver­andi vara­borga­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar.

204. Fríða Rós Valdi­mars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi Kvenna­list­ans.

205. Kolbrún Birna Hall­gríms­dóttir Bachmann. Sam­fylk­ingin.

206.  Halla Sigríður Stein­ólfs­dóttir, vara­odd­viti í sveit­ar­stjórn Dala­byggðar og í stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

207. Hafdís Gunn­ars­dóttir, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í NV-kjör­dæmi og for­maður full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Ísa­fjarð­arbæ.

208.  Sif Huld Alberts­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Ísa­fjarð­arbæ.

209. Birna Lár­us­dóttir, Sjálf­stæð­is­flokki. Fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi og for­seti bæj­ar­stjórnar Ísa­fjarð­ar­bæjar, fyrr­ver­andi vara­þing­maður í NV-kjör­dæmi.

210. Hildur Knúts­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður VG.

211. Hrefna Guð­munds­dóttir, Björt fram­tíð, á lista bæði í sveita­stjórnar- og alþing­is­kosn­ingum.

212. Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir, for­maður jafn­réttis­nefndar Við­reisnar.

213. Þórunn Egils­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

214. Sara Oskars­son, vara­þing­maður Pírata.

215. Ásta Dís Guðjóns, for­maður Sjálfs­bjargar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Var í 2 sæti Rvk-N fyrir Dögun 2016 og í stjórn Dögunar. Sit í bráða­birgða­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins.

216. Jóhanna Vigdís Guð­munds­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður.

217. Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir, bæj­ar­full­trúi og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

218.  Jasmina Crnac, odd­viti Bjartar fram­tíðar í Suð­ur­kjör­dæmi. Einnig full­trúi vel­ferð­ar­nefndar í Reykja­nesbæ fyrir A-lista.

219.  Sigríður Elva Kon­ráðs­dóttir, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi.

220. Guðrún Inga Ing­ólfs­dottir, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

221. Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

222. Una María Ósk­ars­dóttir, upp­eldis-, mennt­unar- og lýð­heilsu­fræð­ingur, 1. vara­þing­maður Mið­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

223. Bryn­hildur S. Björns­dóttir. Björt fram­tíð.

224.  Halldóra Bald­urs­dóttir, full­trúi gæða­mála OR. Mið­flokk­ur­inn.

225. Ólína Frey­steins­dóttir, fjöl­skyldu­fræð­ingur, Sam­fylk­ingin.

226. Drífa Sig­fús­dóttir, MS í mannauðs­stjórnun, fyrr­ver­andi for­seti bæj­ar­stjórnar, vara­bæj­ar­stjóri og vara­maður á Alþingi, stjórn LFK, fram­kvæmda­stjórn o.fl. Fram­sókn­ar­flokki.

227. Anna Pála Sverr­is­dóttir, fyrrum for­maður Ungra jafn­að­ar­manna og fyrrum vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

228. Anna Lóa Ólafs­dóttir, bæj­ar­stjórn RNB 2014-15.

229. Jónína Holm, bæj­ar­full­trúi N list­ans, sem er þverpóli­tískt fram­boð í Garði.

230.  Sólveig Guð­jóns­dóttir, 3. sæti á lista Mið­flokks í suð­ur­kjör­dæmi. 

231.  Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­reisnar.

232. Auður Alfa Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar

233. Hildur Karen Svein­bjarn­ar­dóttir, Sjálf­stæð­is­flokki. 

234. Anna Bara Ólafs­dóttir, fram­kvæmd­ar­stjóri. Mið­flokk­ur­inn.

235. Sunna Snædal, vara­kona í Vel­ferð­ar­ráði, VG.

236. Val­gerður Sveins­dóttir, vara­þing­maður Mið­flokks­ins.

237. Ást­hildur Sturlu­dóttir, bæj­ar­stjóri og for­maður kjör­dæm­is­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í NV kjör­dæmi.

238. Áslaug Frið­riks­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

239.  Laufey Elísabet Giss­ur­ar­dóttir, fjöl­skyldu­nefnd á Sel­tjarn­ar­nesi. Sam­fylk­ing.

240. Oktavía Hrund Jóns­dóttir, 1. vara­þing­kona Pírata suð­vestur og stjórn­ar­for­maður Evr­ópskra Pírata.

241. Sigríður María Egils­dóttir, vara­þing­maður og stjórn­ar­með­limur Við­reisnar.

242. Lovísa Rósa Bjarna­dóttir, for­seti bæj­ar­stjórnar á Horna­firði. Sjálf­stæð­is­flokki. 

243.  Þorbjörg Þor­valds­dóttir. Sam­fylk­ing­unni

244. Þóra Magnea Magn­ús­dóttir, stjórn­ar­maður í VG, Reykja­vík.

245. Ásdís Bjarna­dóttir, 4. sæti á lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi.

246. Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður og þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

247. Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, rit­ari stjórnar VG í Reykja­vík.

248.  Margrét K. Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Frjáls­lynda flokks og síðar borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar.

249.  Herdís Hjör­leifs­dóttir, 7. sæti á lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi.

250. Sigríður Sólveig, gras­rótin í Sjálf­stæð­is­flokknum. 

251.  Nanný Arna Guð­munds­dóttir, for­seti bæj­ar­stjórnar Ísa­fjarð­ar­bæjar.

252. Jórunn Ein­ars­dóttir, fyrrum bæj­ar­full­trúi og vara­þing­maður VG.

253. Eva Magn­ús­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður fræðslu­nefndar í Mos­fellsbæ og fyrr­ver­andi vara­bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

254. Guðfinna Jóh. Guð­munds­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina

255. Þorbjörg S. Gunn­laugs­dóttir, aðstoð­ar­maður félags-og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og vara­þing­maður Við­reisnar. 

256.  Jóna Björg Hlöðvers­dóttir. VG.

257.  Sigríður Ind­riða­dóttir, for­seti bæj­ar­stjórnar á Akranesi, Sjálf­stæð­is­flokki.

258.  Rakel Ósk­ars­dóttir, bæj­ar­full­trúi Akranesi, Sjálf­stæð­is­flokki.

259. Anna Aurora Waage Ósk­ars­dóttir,fram­kvæmta­stjóri og í stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins í Mos­fellsbæ.

260.  Bergljót Krist­ins­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi og vara­bæj­ar­full­trúi.

261. Hildur Helga Gísla­dóttir, for­maður Kjör­dæm­is­sam­bands fram­sókn­ar­manna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

262. Lilja Alfreðs­dóttir, alþing­is­kona og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

263.  Linda Hrönn Þór­is­dóttir, for­maður Lands­sam­bands Fram­sókn­ar­kvenna.

264. Bjarn­veig Ingva­dóttir, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, rit­ari Land­sam­bands Fram­sókn­ar­kvenna.

265. Rakel Dögg Ósk­ars­dóttir. Framsókn og flug­vall­ar­vinir.

266. Elín Jóhanns­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

267.  Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, þing­maður og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

268. Vala Páls­dóttir, for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna.

269.  Elín Jóns­dóttir, for­maður sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Árbæ, Selás og Ártúni og með­limur í stjórn Varðar. 

270. Hreindís Ylva Garðarsd. Holm. VG.

271. Eygló Björg Jóhanns­dóttir, for­maður kjör­dæma­sam­bands fram­sókn­ar­manna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

272. Gyða R. Stef­áns­dóttir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

273. Gerður Páls­dóttir, fjöl­skyldu­nefnd Mos­fells­bæjar. Sam­fylk­ingin

274. Vilborg Þ. Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­full­trúi á Akranesi. Björt fram­tíð.

275. Aníta Rut Hilm­ars­dóttir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

276. Bryndís Bjarna­dóttir, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

277.  Margrét Pét­urs­dóttir, stjórn­ar­kona í VG.

278. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Sam­fylk­ingar.

279. Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og þing­kona Sam­fylk­ingar.

280. Silja Rán Arn­ars­dóttir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

281.  Erla Guðrún Gísla­dóttir. VG

282.  Frið­björg Matth­í­as­dóttir, for­seti bæj­ar­stjórnar Vest­ur­byggðar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

283. Vara­for­maður Lands­sam­bands Sjálf­stæð­iskvenna.

284.  Fyrrum aðstoð­ar­maður ràð­herra, Sam­fylk­ingin.

285. Andrea Eyland Sóleyjar- og Björg­vins­dóttir, fyrr­ver­andi kosn­inga­stýra í Reykja­vík. Sam­fylk­ingin.

286. Margrét Frímann. Sam­fylk­ing.

287. Björg Eva Erlends­dóttir,  fram­kvæmda­stjóri VG og fyrr­ver­andi stjórn­ar­full­trúi hér og þar.

288. Andrea Gunn­ars­dóttir, stjórn­ar­með­limur Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna.

289. Fyrr­ver­andi vara­þing­maður Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar.

290. Eydís Bára Jóhanns­dóttir, for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Húna­þings vestra.

291. Fyrr­ver­andi for­maður bæj­ar­ráðs og fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

292. Vara­for­seti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar og fyrr­ver­andi alþing­is­maður

Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

293. Fyrr­ver­andi Þing­flokks­for­maður Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar, Hreyf­ing­ar­innar og Pírata. 

294. Lilja Hrund Ava Lúð­víks­dóttir, stjórn ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík.

295. Hildur Sverr­is­dóttir, vara­þing­maður, Sjálf­stæð­is­flokki.

296. María Grét­ars­dóttir,  bæj­ar­full­trúi, FÓLKIÐ- í bænum, Garðabæ.

297. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis og vara­þing­maður, Sjálf­stæð­is­flokki.

298. Hildur Mar­grét­ar­dóttir, for­maður Íbúa­hreyf­ing­ar­innar í Mos­fellsbæ og 2.

vara­bæj­ar­full­trúi.

299. Hólm­fríður Garð­ars­dóttir, aðgerð­ar­sinni víða, meðal ann­ars í Sam­fylk­ingu og með Kvenna­lista.

300. Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, Sjálf­stæð­is­flokki.

301. Aldís Haf­steins­dóttir, bæj­ar­stjóri í Hvera­gerði og for­maður sveit­ar­stjórn­ar­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

302. Bergþóra Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks. VG.

303. Nanna Kristín Tryggva­dóttir, vara­maður í mið­stjórn. Sjálf­stæð­is­flokki.

304. Ásta Hlín Magn­ús­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sambands ungra

fram­sókn­ar­manna. 

305.  Guðrún M. Ó. Stein­unn­ar­dóttir. Fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Fjarða­list­ans í

Fjarða­byggð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár