Selur bílinn sinn til að borga ríkinu fyrir eigin brottflutning

Amir gift­ist íslenskum unnusta sínum á dög­unum. Nú þurfa þeir að selja bíl­inn sinn til þess að greiða íslenskum yfir­völdum kostn­að­inn við að flytja hann nauð­ugan úr landi.

Selur bílinn sinn til að borga ríkinu fyrir eigin brottflutning
Fluttur úr landi Amir Shokrgozar var fluttur á brott til Póllands og er nú á leið til Ítalíu. Mynd: Andri Snær Magnason

Amir Shokrgozar, sam­kyn­hneigður flótta­maður frá Íran, hefur aug­lýst bíl­inn sinn til sölu til þess að geta borgað íslenskum yfir­völdum reikn­ing vegna flug­fars lög­reglu­manna sem fóru með hann úr landi.

Amir bjó í tvö ár á Íslandi og hafði verið að læra íslensku, átt íslenskan unnusta og verið sjálf­boða­liði hjá Sam­tök­unum ’78 og Rauða kross­inum, áður en honum var vísað úr landi í febr­úar. 

Amir hugði á end­ur­komu til Íslands, en verður að greiða skuld sína til íslenskra yfir­valda eigi það að ganga eftir. Hann gift­ist íslenskum unnusta sínum á Sikiley fyrr í mán­uð­inum.

Skulda­yf­ir­lýs­ingAmir ber að greiða rík­inu and­virði dag­pen­inga og ferða­kostn­aðar lög­reglu­þjón­anna fimm sem fylgdu honum úr landi.

Í skulda­yf­ir­lýs­ingu vegna kostn­að­ar­ins við brott­vísun hans, sem hann birtir á Facebook, kemur fram að hann eigi að greiða 427.907 krónur fyrir fimm lög­reglu­þjóna sem fylgdu honum úr landi. Þá skuldar hann íslenska rík­inu dag­pen­inga til handa lög­reglu­þjón­unum, sam­tals 120.422 krónur. Samtals er skuldin, að með­töldu hans eigin flug­fari við brott­vís­un­ina, 634.944 krónur.

Samkvæmt útlend­inga­lögum er rík­inu heim­ilt að rukka hæl­is­um­sækj­endur, sem ekki fá sam­þykkta beiðni um hæli, fyrir brott­flutn­ing þeirra úr landi.

„Útlend­ingur sem færður er úr landi sam­kvæmt lögum þessum skal greiða kostnað af brott­för sinni. Útlend­ing­ur­inn skal einnig greiða kostnað af gæslu þegar hennar er þörf vegna þess að hann fer ekki úr landi af sjálfs­dáðum. Krafan er aðfar­ar­hæf og hún getur auk þess verið grund­völlur frá­vís­unar við síð­ari komu til lands­ins. Lög­regl­unni er heim­ilt að leggja hald á far­seðla sem finn­ast í fórum útlend­ings­ins til notk­unar við brott­för. Sama gildir um fjár­muni til greiðslu á kröfu vegna kostn­aðar við brott­för og gæslu sam­kvæmt ákvæði þessu.“ 

„Fyrir íslenskum yfir­völdum er ég einskis virði“

Amir seg­ist í sam­tali við Stundina þakka Íslend­ingum fyrir stuðn­ing sem hann hefur fengið, en hann kveðst hafa áhyggjur af fram­ferði íslenskra yfir­valda. „Mann­rétt­indi útlend­inga eru ekki virt,“ segir hann. „Ég er utan­að­kom­andi og fyrir íslenskum yfir­völdum er ég einskis virði.“

Amir flúði heima­landið vegna kyn­hneigðar sinnar, en sam­kyn­hneigðir geta átt von á refs­ingum í Íran. Hann segir yfir­völd hér á landi hafa staðið í vegi fyrir því að hann gæti gifst íslenskum unnusta sínum. „Við giftum okkur á Ítalíu vegna þess að íslensk yfir­völd synj­uðu okkur um heim­ild til að gifta okkur hér. Við viljum selja bíl­inn okkar til þess að láta íslensk yfir­völd fá pen­ing­inn. Ég kem aftur til Íslands, en svo lengi sem ég borga ekki má ég ekki koma aftur.“

Bíllinn, sem er Toyota Avensis frá árinu 2004, er til sölu á 400 þús­und krónur. „Ég vona að bíll­inn selj­ist eins fljótt og mögu­legt er til þess að ég geti borgað íslenskum yfir­völdum og snúið aftur eins fljótt og hægt er,“ segir Amir.

Amir er ekki eini inn­flytj­and­inn sem íslensk yfir­völd rukka fyrir að flytja úr landi. Eugene Imotu fær ekki að koma aftur til Íslands fyrr en hann hefur borgað fyrir brott­flutn­ing sinn úr landi. Hann var hand­tek­inn í sumar, aðskil­inn fjöl­skyldu sinni og fluttur úr landi, eftir að hafa búið á Íslandi í þrjú ár. Stuttu síðar fengu börnin hans þrjú dval­ar­leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár