Kosningar 2017: Björt framtíð eini flokkurinn sem vill ekki laxeldi í opnum sjókvíum

Björt fram­tíð og Vinstri grænir eru þeir flokkar sem gera minnsta fyr­ir­vara við mat Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar á banni við lax­eldi á frjóum eld­is­laxi í opnum sjó­kvíum í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Viðreisn er fylgj­andi lax­eldi í opnum sjó­kvíum með fyr­ir­vörum sem og Sam­fylk­ingin. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kýs að svara ekki spurn­ingum Stund­ar­innar um stefnu sína í lax­eld­is­málum.

Kosningar 2017: Björt framtíð eini flokkurinn sem  vill ekki laxeldi í opnum sjókvíum
Bara einn flokkur Einungis einn flokkur á Alþingi tekur skýra og afdrátt­ar­lausa afstöðu gegn notkun opinna sjó­kvía í lax­eldi við strendur Íslands. Þetta er Björt fram­tíð, flokkur sem ólík­legt er að fái kjörna full­trúa á Alþingi í kom­andi kosn­ingum. Myndin er tekin við lax­eld­iskvíar Laxeldis Aust­fjarða í Berufirði.

Björt fram­tíð er eini stjórn­mála­flokk­ur­inn á Alþingi sem er mót­fall­inn lax­eldi í opnum sjó­kvíum við Íslands­strendur. Í stað­inn vill flokk­ur­inn að not­ast verði við lok­aðar sjó­kvíar þar sem það er hægt eða að farið verði í fisk­eldi á landi. Í svari frá flokknum segir um þetta: „Björt fram­tíð er flokkur sem lætur sig umhverf­is­mál varða. Ísland stendur nú á kross­götum í fisk­eld­is­málum og stór­aukn­ing fisk­eldis á sjó í opnum kvíum er brýnt umhverf­is­mál. Flokk­ur­inn styður upp­bygg­ingu fisk­eldis á landi eða í lok­uðum kvíum á sjó en er and­vígur fisk­eldi á sjó í opnum kvíum.“ 

Svör Bjartrar fram­tíðar koma fram í svörum flokks­ins við spurn­ingum sem Stundin sendi til allra stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi um stefnu þeirra í lax­eld­is­málum. Harðar umræður hafa verið í íslensku sam­fé­lagi á síð­ustu árum um rétt­mæti lax­eldis í opnum sjó­kvíum við strendur lands­ins. Skoðanir á mál­inu eru mjög skiptar en mik­ill stuðn­ingur virð­ist vera við aukið lax­eldi í ýmsum byggða­lögum á lands­byggð­inni, meðal ann­ars á Vest­fjörðum eins og fram kom á nýlegum íbúa­fundi á Ísafirði. Haf­rann­sókn­ar­stofnun lagð­ist fyrr á árinu gegn lax­eldi á frjóum eld­is­laxi í opnum sjó­kvíum í Ísa­fjarð­ar­djúpi. 

„Dregið er sterk­lega í efa að opnar sjó­kvíar séu besta mögu­lega tæknin til að stunda fisk­eldi“

Svörin taka lítið tillit til þróunar í öðrum löndum

Laxeldi í opnum sjó­kvíum við strendur landa telst vera fisk­eld­is­að­ferð sem er á nokkru und­an­haldi í heim­inum. Norðmenn og norsk eld­is­fyr­ir­tæki vinna nú að því að þróa aðrar aðferðir sem eru ekki eins umhverf­is­spill­andi, líkt og Stundin og aðrir fjöl­miðlar á Íslandi hafa fjallað um.

Þá hefur sjó­kvía­eldi á regn­boga­sil­ungi í opnum kvíum verið bannað með dómum í Svíþjóð vegna umhverf­is­á­hrifa þess og sagði meðal ann­ars í einum dóm­inum fyrr á þessu ári: „Dregið er sterk­lega í efa að opnar sjó­kvíar séu besta mögu­lega tæknin til að stunda fisk­eldi: Á sama tíma og það er erfitt að meta umhverf­is­á­hrifin af starf­sem­inni þá má setja spurn­ing­ar­merki við þá tækni sem notuð er – opnar kvíar sem ekki veitir neinn mögu­leika á hreinsun á fóð­ur­leifum eða saur – sé besta mögu­lega tæknin.“

Stjórn­mála­flokk­arnir á Alþingi Íslands, nema Björt fram­tíð, hafa hins vegar stefnu í lax­eld­is­málum sem virð­ist ekki taka mikið til­lit til þess­arar þró­unar í lax­eld­is­málum í heim­inum. 

Sjálfstæðisflokkurinn svarar ekki

Eini flokk­ur­inn sem svar­aði ekki spurn­ingum Stund­ar­innar var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og því er stefna flokks­ins í mála­flokknum ekki birt með hér. Allir aðrir flokkar á þingi taka ekki eins skýra afstöðu gegn opnum sjó­kvíum og Björt fram­tíð. 

Miðað við síð­ustu skoð­ana­kann­anir er Björt fram­tíð hins vegar á leið út af Alþingi Íslend­inga og því kann að vera að skoð­anir flokks­ins á lax­eldi hafi engin áhrif á umræðu og laga­setn­ingu um efnið á þingi. 

Allir aðrir flokkar á Alþingi vilja ekki ganga svo langt að segja að þeir séu alfarið „and­vígir“ sjó­kvía­eldi í opnum kvíum. Í þessum skiln­ingi má segja að Björt fram­tíð sé umhverf­is­vænsti flokkur Íslands með til­liti til lax­eldis í opnum sjó­kvíum.

Vinstri græn ganga næst lengst

Sá flokkur sem gengur næst lengst í þá átt að draga úr notkun opinna sjó­kvía í lax­eldi eru Vinstri grænir. Í svörum frá þeim flokki segir meðal ann­ars: „VG telur að full­nægj­andi stefnu­mörkun liggi ekki fyrir í mála­flokknum á Íslandi en ljóst að sjó­kvía­eldi þurfi að lúta mjög stífum reglum og að stefnt skuli að því að slíkt eldi bygg­ist í fram­tíð­inni, eins og kostur er, upp í lok­uðum eld­iskvíum, auknu land­eldi og eldi á geld­fiski, en miklar fram­farir og sókn­ar­færi eru í slíku eldi og umhverf­is­vænum eld­is­lausnum.“

Vinstri grænir vilja því ekki leggj­ast alfarið gegn opnum sjó­kvíum en telja samt sem áður að eldið eigi að fara fram eins og „kostur er“ í lok­uðum eld­iskvíuum í sjó, að land­eldi verði aukið sem mest auk þess sem ófrjór eld­is­lax verði not­aður sem mest. 

Út frá þessu má segja að Vinstri græn séu næst umhverf­is­vænsti flokkur lands­ins þegar kemur að mati á stefnu þeirra í lax­eld­is­málum. 

Þetta á þó ekki við um alla þing­menn flokks­ins þar sem til dæmis Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, Suð­ur­eyr­ingur og odd­viti flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, hefur lýst yfir stuðn­ingi við sjó­kvía­eldi á Íslandi. „Fiskeldi er ný og blóm­strandi atvinnu­grein á Vest­fjörðum. Aðrir lands­hlutar hafa margra ára jákvæða reynslu af fisk­eldi á landi sem hefur skapað mörg störf, bæði fyrir konur og karla, fag­lærða og ófag­lærða. Á Vest­fjörðum sunnan Dýra­fjarðar er óheilla­þróun síð­ustu ára að snú­ast við, fólki fjölgar og fær atvinnu við hæfi,” sagði Lilja Rafney meðal ann­ars í aðsendri grein í dag­blaði í fyrra­haust. 

Ein­stakir þing­menn flokks­ins virð­ist því vilja ganga lengra í lax­eld­inu en stefna flokks­ins kveður á um.  Vinstri grænir virð­ast því vera nokkuð klofnir í afstöðu sinni til lax­eldis. 

„Það til­tekur þó ekki hvaða áhrif mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir gætu haft á áhættu­matið“

Viðreisn gerir færri fyrirvara

Öfugt við bæði Bjarta fram­tíð og Vinstri græn nefnir Viðreisn ekki að æski­legt sé að horfið verði frá því eins og kostur er að not­ast við opnar sjó­kvíar í lax­eldi við Íslands­strendur. Þá nefnir flokk­ur­inn heldur ekki land­eldi sem mögu­lega umhverf­is­vænni leið en sjó­kvía­eldi í opnum kvíum í sjó. 

Flokk­ur­inn hefur einnig breytt nokkuð um skoðun á lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi miðað við þá sýn sem núver­andi for­maður flokks­ins, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, hafði á mál­inu í sumar þegar áhættu­mat Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar um lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi og Stöðv­ar­firði lá fyrir og ljóst var að stofn­unin myndi leggj­ast gegn lax­eldi á frjóum eld­is­laxi á svæð­unum tveimur.

Þá sagði Þor­gerður Katrín, sem var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á þeim tíma, að vægi skýrslu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar væri „þungt“. Nú kemur hins vegar fram í svari frá Viðreisn að einnig þurfi að líta til hugs­an­legra mót­væg­is­að­gerða til að vinna gegn umhverf­is­á­hrifum sjó­kvía­eldis á svæð­unum: „Nauð­syn­legt er að áhættu­mat Haf­rann­sókna­stofn­unar hverju sinni verði útgangs­punktur útgef­inna leyfa. Ekki eru gerðar athuga­semdir við áhættu­matið í sjálfu sér, en það til­tekur þó ekki hvaða áhrif mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir gætu haft á áhættu­matið og þá hversu mikið hægt væri að ala án þess að stefna erfða­breyti­leika nær­liggj­andi áa eða öðrum umhverf­is­þáttum í hættu,“ segir í svari Við­reisnar. Viðreisn virð­ist því hafa breytt um stefnu í mála­flokknum að því leyt­inu til hversu miklu máli nið­ur­staða Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar skiptir. 

Byggðarökin fyrir laxeldi

Þessar skoð­anir Við­reisnar á lax­eld­inu nú ríma nokkuð við það mat sem fram hefur komið í skrifum fram­bjóð­anda flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, Gylfa Ólafs­sonar, en hann er efstur á lista Við­reisnar í kjör­dæm­inu.

Í grein í bæj­ar­blað­inu BB í byrjun októ­ber reif­aði Gylfi meðal ann­ars hvernig stuðla megi að því að fisk­eldi verði stundað í Ísa­fjarð­ar­djúpi undir fyr­ir­sögn­inni: „Svona hefjum við fisk­eldi í Djúpinu“. Í skrifum sínum gengur Gylfi lengra í mál­flutn­ingi sínum fyrir lax­eldi á Vest­fjörðum en til dæmis Þor­gerður Katrín hefur gert í sínum mál­flutn­ingi, meðal ann­ars á íbúa­fundi um lax­eldið á Ísafirði í lok sept­em­ber.

Gylfi sett í grein sinni fram klass­ísk byggðarök fyrir skoðun sinni á mik­il­vægi lax­eldis fyrir byggð á Ísafirði, Súðavík og Bol­ung­ar­vík:  „Allt er þetta á end­anum gert fyrir íbú­ana. Að byggða­festan sem fisk­eldið ber með sér gagn­ist byggð­unum við Djúp. Að íbúða­verð hækki, fólk máli húsin sín, unga fólkið setj­ist að með börnin,“ sagði meðal ann­ars í grein­inni.

Samfylkingin og Píratar taka undir

Sam­fylk­ingin og Píratar eru með sömu sýn og Viðreisn á því að taka þurfi til­lit til mót­væg­is­að­gerða þegar mat Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar á banni við lax­eldi með frjóum eld­is­laxi í Ísa­fjarð­ar­djúpi er metið. Hvorki Björt fram­tíð né Vinstri grænir gera þessa fyr­ir­vara í svörum sínum. 

Um þetta segir Sam­fylk­ingin meðal ann­ars: „Áhættu­mat Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem kynnt var í sumar  var ekki gert ráð fyrir mót­væg­is­að­gerðum, sem eðli­legt hefði verið að gera.“ Þá telja Píratar að „kald­rana­legt“ sé að banna allt lax­eldi á frjóum laxi í Ísa­fjarð­ar­djúpi. „Í skýrslu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar voru engin byggð­ar­sjón­ar­mið tekin með í reikn­ingin. Píratar eiga erfitt með að vera ósam­mála mati vís­indana. En það er heldur kald­rana­leg nálgun að taka fyrir allt lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi,“ segir í svari Pírata þar sem flokk­ur­inn tekur fram að hann hafi ekki myndað sér stefnu í lax­eld­is­málum. 

Spurn­ingar Stund­ar­innar og svör þeirra stjórn­mála­flokka sem svör­uðu þeim má sjá hér fyrir neðan. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn svar­aði ekki spurn­ingum Stund­ar­innar lið fyrir lið eins og hinir stjórn­mála­flokk­arnir heldur sendi flokk­ur­inn þess í stað almennt svar um stefnu flokks­ins í lax­eld­is­málum. 

Stærsti flokk­ur­inn svarar ekkiStærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, svarar ekki spurn­ingum um stefnu sína í lax­eld­is­málum.

Spurningar til allra stjórnmálaflokkanna á Alþingi

1. Hver er stefna þíns flokks í lax­eld­is­málum almennt séð? Er þinn flokkur fylgj­andi lax­eldi við strendur lands­ins eða mót­fall­inn? Rökstutt svar óskast. 

 2. Hver er stefna flokks þíns, eða mat, á mögu­legu banni við lax­eldi á frjóum eld­is­laxi í Ísa­fjarð­ar­djúpi og í Stöðv­ar­firði? Þetta var ein af nið­ur­stöðum áhættu­mats Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem birt var í sumar. Sjá hlekk hér að neðan. Er flokkur þinn sam­mála eða ósam­mála þessu mati Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar? Vill flokkur þinn að sjó­kvía­eldi verði leyft í Ísa­fjarð­ar­djúpi og í Stöðv­ar­firði? Rökstutt svar óskast.  http://www.ruv.is/frett/ahaettumat-hafro-hlytur-ad-vega-thungt

3. Hvernig telur flokkur þinn að gjald­taka af lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum eigi að fara fram? Átt er við gjald­töku vegna notk­unar á nátt­ur­unni við strendur Íslands, gjöld vegna leyfa fyrir lax­eldið og annað í þeim dúr.

4. Ef flokkur þinn er fylgj­andi lax­eldi í sjó­kvíum hversu mikið af slíku eldi vill flokk­ur­inn sjá við strendur Íslands? Spurt er um áætlað fram­leiðslu­magn árlega í þús­undum tonna. Rökstutt svar óskast. 

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar

Viðreisn  

1. „Viðreisn er fylgj­andi fisk­eldi sem stenst þær kröfur sem taldar eru nauð­syn­legar af vís­inda­mönnum til að tryggja öryggi og umhverf­is­vernd.“ 

2. „Nauð­syn­legt er að áhættu­mat Haf­rann­sókna­stofn­unar hverju sinni verði útgangs­punktur útgef­inna leyfa. Ekki eru gerðar athuga­semdir við áhættu­matið í sjálfu sér, en það til­tekur þó ekki hvaða áhrif mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir gætu haft á áhættu­matið og þá hversu mikið hægt væri að ala án þess að stefna erfða­breyti­leika nær­liggj­andi áa eða öðrum umhverf­is­þáttum í hættu. Það hlýtur að vera næsta skref, og mik­il­vægt að stofn­unin fái svig­rúm og stuðn­ing til að greina þetta.“

3. „Í skýrslu stefnu­mót­un­ar­nefndar sem skil­aði af sér í sumar er lagt til krónu­tölu­gjald á hvert kíló slátraðs eld­is­fisks. Slíkt upp­legg er skyn­sam­legt, en skoða þarf sér­stak­lega hvernig krónu­talan er ákvörðuð. Mik­il­vægt er að nær­svæði fái hlut­deild í tekjum sem hljót­ast af fisk­eldi hlið­stætt og nær­svæði fá fast­eigna­gjöld af virkj­unum.“ 

4. „Áhættu­matið gerir ráð fyrir 71.000 tonnum. Burð­ar­þol fyrir Ísa­fjarð­ar­djúp var sett 25.000 tonn áður en áhættu­matið var sett fram. Að mót­væg­is­að­gerðum virtum ætti að vera hægt að ala 20.000 tonn í Djúpinu. Auk þess var Stöðv­ar­firði lokað, en þar hafa mót­væg­is­að­gerðir ekki verið greindar heldur. Að þessu virtu ætti lax­eldi að geta orðið um 100.000 tonn á ári. Rétt er að vinna út frá þeirri for­sendu að á meðan skýrar og grein­ar­góðar upp­lýs­ingar skortir skuli umhverfið njóta vafans. Sjálf­bærni og vís­inda­leg ráð­gjöf er und­ir­staða auð­linda­nýt­ingar á Íslandi.“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna

Vinstri grænir  

1. „Í nýsam­þykktri sjáv­ar­út­vegs­stefnu VG á lands­fundi 2017 segir: „Í fisk­eldi eru miklir vaxtar- og fram­tíðar mögu­leikar víða um land. Þeir fel­ast í frek­ari þróun á umhverf­is­vænu fisk­eldi, eldi sjáv­ar­dýra og þör­unga­eldi. Styðja þarf vel við þró­un­ar­starf og rann­sóknir og skapa stranga lagaum­gjörð og reglur fyrir grein­ina.

Eldi sjáv­ar­dýra þarf að koma í kjöl­far stefnu­mót­unar og reglu­verks um fram­kvæmd slíks. Tryggja þarf rétt sveit­ar­fé­laga til að skipu­leggja haf- og strand­svæði og efna­hags- og sam­fé­lags­leg áhrif eldis skulu metin á líkan hátt og áhrif á nátt­úr­una. Stjórn­völd ættu að hvetja til fram­þró­unar og nýsköp­unar í eld­is­lausnum sem miða að hámarks­nýt­ingu hlið­ar­af­urða, verndun villtra stofna og við­kvæmrar nátt­úru, ásamt því að hámarka dýra­vel­ferð og gæði afurða. Taka skal mið af við­miðum sjálf­bærrar þró­unar, vís­inda­legu mati á áhættu og gera kröfur til fyr­ir­tækja um hverjar þær mót­væg­is­að­gerðir sem nauð­syn­legar eru svo að eldi geti verið stundað í sátt við umhverfi og sam­fé­lög.

Vernda verður við­kvæma nátt­úru fyrir áföllum og skaða sem getur hlot­ist af óábyrgu fisk­eldi. Vernda verður villta stofna íslenskra lax­fiska og við­kvæma nátt­úru fyrir erfða­blöndun, sjúk­dómum, sníkju­dýrum og öðrum áföllum sem geta hlot­ist af því að eld­is­fiskar sleppi úr haldi eða valdi umhverfi skaða með öðrum hætti. Far­sæl­ast til langrar fram­tíðar er eldi sem helst í hendur við aðra nýt­ingu, öfl­uga vöktun, eft­ir­lit og verndun íslenskrar nátt­úru. Virða þarf rétt nátt­úr­unnar með öllum sínum fjöl­breyti­leika til að þró­ast áfram á eigin for­sendum, byggðum lands­ins til lang­tíma hags­bóta.““

2. „VG er á því að var­úð­ar­reglu beri að beita í umgengni við nátt­úr­unnar og að hún skuli njóta vafans. Því þarf að horfa sér­stak­lega til sjón­ar­miða sem þeirra sem reifuð eru í áhættu­mati Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar.“

3. „Rétt er að horfa til mögu­legrar gjald­töku í auknum mæli af þeim almanna­gæðum sem lögð eru til grund­vallar í fisk­eldi. Er þá bæði átt við fersk­vatn sem nýtt er við fisk­eldið en einnig öll önnur nýt­ing á nátt­úr­unni sem atvinnu­greinin byggir á. Ljóst er að á Íslandi er gjald­taka óveru­leg í grein­inni ef borið er saman við nágranna­löndin.“

4. „VG telur að full­nægj­andi stefnu­mörkun liggi ekki fyrir í mála­flokknum á Íslandi en ljóst að sjó­kvía­eldi þurfi að lúta mjög stífum reglum og að stefnt skuli að því að slíkt eldi bygg­ist í fram­tíð­inni eins og kostur er upp í lok­uðum eld­iskvíum, auknu land­eldi og eldi á geld­fiski, en miklar fram­farir og sókn­ar­færi eru í slíku eldi og umhverf­is­vænum eld­is­lausnum.“ 

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar

 Samfylkingin

1. „Fiskeldi í kvíum getur treyst atvinnu­líf og skapað ný sókn­ar­færi fyrir sjáv­ar­byggðir. Við erum því fylgj­andi upp­bygg­ingu á umhverf­is­vænu lax­eldi sem byggir á vís­indum og þekk­ingu og að greinin hlýti ströngu reg­ul­verki.“

2.  „Áhættu­mat, þar sem tekið hefur verið til­lit til allra mót­væg­is­að­gerða, er að okkar mati for­senda leyfa fyrir eldi. Mik­il­vægt er að skýr nið­ur­staða liggi fyrir um það áður en ákvörðun er tekin. Áhættu­mat Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem kynnt var í sumar  var ekki gert ráð fyrir mót­væg­is­að­gerðum, sem eðli­legt hefði verið að gera.“

3. „Svæði til lax­eldis eru tak­mörkuð sam­eig­in­leg gæði og leyfi til lax­eldis eru í raun sér­leyfi til nýt­ingar þeirra, ekki ólíkt og sér­leyfi til að nýta hluta fisk­veiði­auð­lindar eða orku­auð­linda. Því er mik­il­vægt að fyr­ir­tækin skili auð­linda­gjaldi og rétt eins og varð­andi sjávar- og orku­auð­lindir teljum við rétt að hluti þess renni til við­kom­andi byggða.“

4.  „Í sjó­kvía­eldi líkt og öðrum greinum er mun mik­il­væg­ara að horfa til verð­mæta­sköp­unar en magns. Að okkar mati eru tæki­færi til þess hér við land að fram­leiða og selja vöru sem stenst allar kröfur um sjálf­bærni og hrein­leika og er laus við sýkla­lyf. Slík fram­leiðsla er gjarnan minni að umfangi og með meiri kröfur um öryggi og að eldi sé í takt við aðstæður á hverjum stað. Þar sem aðstæður eru ólíkar, svo sem varð­andi strauma og hve hratt svæði hreinsa sig, er erfitt að fast­setja magn­tölur. Við teljum eðli­legt að hluti tekna rík­is­ins af lax­eldi renni til að styðja við gæða­þróun, þróun örygg­is­mála og mark­aðs­setn­ingu á hrein­leika og sjálf­bærni. Einnig þarf að horfa til burð­ar­þols­mats fjarða líkt og Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur þegar gert sums staðar á land­inu.“  

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar

 Björt framtíð

1. „Björt fram­tíð er flokkur sem lætur sig umhverf­is­mál varða. Ísland stendur nú á kross­götum í fisk­eld­is­málum og stór­aukn­ing fisk­eldis á sjó í opnum kvíum er brýnt umhverf­is­mál. Flokk­ur­inn styður upp­bygg­ingu fisk­eldis á landi eða í lok­uðum kvíum á sjó en er and­vígur fisk­eldi á sjó í opnum kvíum. Þróun fisk­eldis á sjó er að fær­ast í átt að lok­uðum kvíum enda stafar villtum laxi og vist­kerfum fjarða mun minni hætta af þeirri tækni. Ísland á að nýta sér tæki­færin sem fel­ast í því að vera leið­andi í inn­leið­ingu á nýrri tækni (lok­uðum kvíum).“

2. „Mat Hafró bar ekki saman áhættu opinna kvía og lok­aðra kvía. Björt fram­tíð er sam­mála mati stofn­un­ar­innar að eldi á frjóum laxi í opnum kvíum á þessum svæðum er ekki heppi­legt vegna mögu­legra nei­kvæðra umhverf­is­á­hrifa. Björt fram­tíð er hins vegar fylgj­andi því að fisk­eldi í lok­uðum kvíum verði leyft á umræddum svæðum að því gefnu að aðstæður og tækni leyfi það.“

3. „Svæði við Íslands­strendur þar sem hægt er að stunda lokað fisk­eldi er tak­mörkuð auð­lind. Af því leiðir að setja þarf auð­linda­gjald á iðn­að­inn. Þó þyrfti að gefa iðn­að­inum færi á að vaxa, sér­stak­lega þar sem stofn­kostn­aður lok­aðs fisk­eldis er hærri en opins – en rekstr­ar­kostn­aður ekki ósvip­aður – og því þyrfti að huga að því að gjaldið sé hóf­legt í byrjun og svo end­ur­skoðað að ákveðnum tíma liðnum.“

4. „Samkvæmt áhættu­mati Haf­rann­sókna­stofn­unar er óhætt að ala 71.000 tonn af frjóum eld­is­laxi hér við land. Þess ber þó að geta að mat Hafró bar ekki saman áhættu opinna kvía og lok­aðra kvía. Því getur verið að hægt sé að hafa fleiri lok­aðar kvíar í sumum fjörðum heldur en opnar vegna minni nei­kvæðra áhrifa lok­aðra kvía á umhverfið. Að sama skapi gætu lok­aðar kvíar hentað verr á ákveðnum svæðum vegna t.d. öldu­hæðar o.fl. og því er erfitt að leggja mat á hvort hægt sé að ala meira eða minna en mat Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar. Hins vegar eru svæði við Íslands­strendur þar sem hægt er að stunda fisk­eldi er tak­mörkuð auð­lind og almennt ber að taka það einnig með í reikn­ing­inn.“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins

Framsókn

Vöxtur og við­gangur lax­eld­is­ins má ekki ger­ast á kostnað nátt­úr­unnar eða villta íslenska laxa­stofns­ins. Framsókn vill ná sátt um upp­bygg­ingu og starf­semi fisk­eldis á Íslandi. Slík sátt næst aðeins með virku eft­ir­liti og rann­sóknum ásamt tryggu reglu­verki og vís­inda­legu áhættu­mati. Beita þarf mót­væg­is­að­gerðum sem lág­marka umhverf­is­á­hrif af eld­inu og taka mið af bestu fáan­legu tækni (BAT).

Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, þing­maður Pírata

Píratar

1. „Píratar voru í miðju stefnu­mót­un­ar­ferli þegar að boðað var til kosn­inga. Því höfum við ekki beina stefnu um lax­eldi en höfum þó stefnu um mengun hafs­ins og fram­sækna lofts­lagstefnu. Píratar vilja taka var­úð­ar­nálgun þegar kemur að lax­eldi almennt. Náttúran á alltaf að njóta vafans. Að því sögðu teljum við að hæg upp­bygg­ing lax­eldis í kringum landið sé mögu­legur vaxta­sproti en viljum þó að farið verði að með ítr­ustu var­kárni og sam­liða upp­bygg­inguni verði virkt eft­ir­lit með umhverf­is­á­hrifum af hálfu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar. Við teljum ekki eðli­lega nálgun að ætla upp í burð­ar­þol svæða hratt, heldur viljum við gagn­reynda nálgun.“

2. „Í skýrslu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar voru engin byggð­ar­sjón­ar­mið tekin með í reikn­ingin. Píratar eiga erfitt með að vera ósam­mála mati vís­indana. En það er heldur kald­rana­leg nálgun að taka fyrir allt lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Skýrslan var þó skrifuð út frá þeirri nálgun að heild­ar­magn eldis ætti að vera um 30 þús­und tonn. Teljum við það full hátt og hratt farið þegar núver­andi þorsk- og regn­boga­eldi nær ekki einusinni einum tíunda af því. Því teljum við að hægt væri að byrja á mun lægri tölu og skoða afleið­ingar í sam­hliða með virku eft­ir­liti.“

3. „Í stefnu okkar um verndun hafs­ins kemur fram að auð­lindir hafs­ins, sem ekki eru í einka­eigu, eru sam­eig­in­leg eign þjóð­ar­innar. Því teljum við að leyfi til lax­eldis ættu að vera til leigu til hóf­legs tíma í senn. Afgjaldið ætti að vera tengt afkasta­getu eld­is­ins. Við teljum líka mik­il­vægt að áfram séu til staðar banka­á­byrgðir fyrir mögu­legu gjald­þroti aðila í rekstri, svokölluð hreins­un­ar­gjöld sem lagt var til að væru felld niður í vinnu starfs­hóps­ins um fisk­eldi.“

4. „Við teljum óábyrgt að tala um fastar tölur í þús­undum tonna. Við teljum skyn­söm­ustu nálg­un­ina að upp­bygg­ing verði hæg og gagn­reynd. Mik­il­vægur þáttur er að Haf­rann­sókn­ar­stofnun fái rými og fjár­magn til þess að sinna eft­ir­liti með mun virk­ari hætti en gert er í dag. Við viljum í stað þess að lofa föstu magni í hverjum flóa og firði fá að vita hvernig reyn­ist að byrja á 20% af burð­ar­þoli og út frá því rann­saka áhrifin sem síðan verða lögð til grund­vallar fyrir hægri aukn­ingu. Þannig leyfum við nátt­úr­unni að njóta vafans en jafn­framt tökum til hlið­sjónar mál­efni byggða. Við teljum einnig að sveita­fé­lög ættu að spyrja íbúa sína hver afstaða þeirra sé til sjó­kvía­eldis og taka mið af nið­ur­stöðuni við áfram­haldið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár