Steingrímur kallaði Sjálfstæðisflokkinn „fatlaðan“ og var svarað fullum hálsi

Fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna not­aði orðið „fatl­aður“ í niðr­andi til­gangi til að koma höggi á Sjálf­stæð­is­flokk­inn á kosn­inga­fundi. Hann baðst afsök­unar skömmu síðar.

Steingrímur kallaði Sjálfstæðisflokkinn „fatlaðan“ og var svarað fullum hálsi
Stein­grímur J. Sig­fús­son Fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna hefur verið gagn­rýndur harð­lega fyrir ummæli sín. Mynd: Pressphotos

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og sá núver­andi þing­maður sem setið hefur lengst á Alþingi, kall­aði Sjálf­stæð­is­flokk­inn „fatl­aðan“ á fram­bjóð­enda­fundi Mennta­skól­ans á Akureyri í dag vegna tregðu flokks­ins til að afla rík­is­sjóði tekna.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svar­aði Stein­grími fullum hálsi, gagn­rýndi orða­val hans og upp­skar mik­inn fögnuð.

Orðrétt sagði Stein­grímur: „Það yrði þægi­leg­ast að við og Sam­fylk­ingin myndum ná saman, en síðan horfum við til við­bótar til þeirra flokka sem eru næst okkur í lit­róf­inu, af því að við viljum mynda vinstri­st­jórn, félags­hyggju­stjórn, sem nær af stað með sterka upp­bygg­ing­ar­á­ætl­anir fyrir landið og vel­ferð­ar­kerfið og ég sé ekki að það verði auð­velt að koma því saman með Sjálf­stæð­is­flokknum, sem er eins og kunn­ugt er fatl­aður og getur ekki aflað tekna.“

Áslaug Arna svar­aði og sagði Stein­grím vera að líkja Sjálf­stæð­is­flokknum við hreyfi­haml­aðan ein­stak­ling. „Ég þarf nú fyrst að frá­biðja mér það að póli­tíkusar tali með þeim hætti að líkja ein­hverjum sem þeim líkar ekki við við fatl­aða ein­stak­linga. Það er fárán­legt. Við tölum ekki um að flokkar séu fatl­aðir,“ sagði hún. 

Þetta er annað dæmið í dag um að reyndir stjórn­mála­menn veki athygli vegna ummæla á fram­bjóð­enda­fundum í mennta­skólum, en Stundin fjall­aði í dag um við­brögð Bjarna Bene­dikts­sonar við spurn­ingu um Borg­un­ar­málið á fundi sem hald­inn var í Verzlunarskóla Íslands.

Stein­grímur J. baðst afsök­unar á ummælum sínum næst þegar hann fékk hljóð­nem­ann í hend­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár