Unglingar fengu áfengi og hlustuðu á ræður ráðherra Sjálfstæðisflokksins

Ólögráða mennta­skóla­nemar fengu ókeypis áfengi á opn­un­ar­há­tíð kosn­inga­set­urs ungra sjálf­stæð­is­manna, þar sem ráð­herrar flokks­ins héldu ræður. Formaður SUS seg­ist harma ef það kom fyrir. Málið verður lík­lega rætt á stjórn­ar­fundi SUS.

Unglingar fengu áfengi og hlustuðu á ræður ráðherra Sjálfstæðisflokksins
Ung­lingar að drykkju Samkvæmt gesti hátíð­ar­innar fengu ung­lingar að drekka áfenga drykki óáreyttir. Pilt­arnir þrír á mynd­inni eru undir áfeng­is­kaupa­aldri, þar af tveir sautján ára. Mynd: Ungir sjálfstæðismenn

Á myndum af nýaf­stað­inni opn­un­ar­há­tíð kosn­inga­set­urs ungra sjálf­stæð­is­manna má sjá mennta­skóla­nema neyta áfengis, en sam­kvæmt lögum er óheim­ilt að selja, veita eða afhenda áfengi ein­stak­lingum yngri en 20 ára. Nýkjör­inn for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, Ingvar Smári Birg­is­son, segir Stund­inni að það sé ekki stefna flokks­ins að gefa ungu fólki áfengi.

Hátíðin var aug­lýst sem „jazz kok­teil­boð“ þar sem boðið var upp á veit­ingar og áfenga og óáfenga drykki. Gestir voru sam­kvæmt SUS um 150, en ýmsir áhrifa­menn flokks­ins mættu, meðal ann­ars Bjarni Bene­dikts­son, Sigríður Á. Andersen, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son.

Einnig má sjá mikið af fólki með bjór eða vín í glasi, þar á meðal mennta­skóla­nema sem voru sumir hverjir aðeins 16 ára.

For­sæt­is­ráð­herraBjarni Bene­dikts­son stillir sér hér upp með piltum. Þess ber að geta að þeir eru ekki með áfengi á mynd­inni.

Mætti ekki fyrir flokkinn, heldur ókeypis áfengi

Stundin kom sér í sam­band við einn gest hátíð­ar­innar sem sagði að engin hafi verið að fylgj­ast með drykkju ung­linga, og að allir hafi verið með áfengi. „Ég mæti á stað­inn, og ég sá að Bjarni Ben var með fyr­ir­lestur, Sigríður Andersen og fleiri. Ég fer á bar­inn, bið um bjór, og starfs­maður rétti mér bara bjór. Það var það ein­falt.“

„Ég er ekk­ert mjög hrif­inn af Sjálf­stæð­is­flokknum sjálfum, en ég mætti þarna bara fyrir áfengið.“

Gest­ur­inn seg­ist aldrei áður hafa mætt á svona hátíð. „Ég er ekk­ert mjög hrif­inn af Sjálf­stæð­is­flokknum sjálfum, en ég mætti þarna bara fyrir áfengið.“

Heimdallur, félag ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, rataði fyrr á þessu ári í fréttir fyrir að bjóða mennta­skóla­nemum áfengi fyrir atkvæði. Gest­ur­inn sagði að það hefði ekki verið þannig yfir­skrift í þess­ari hátíð. „Það var ekki sagt að það þyrfti að sýna Sjálf­stæð­is­flokknum stuðn­ing, það var bara verið að bjóða upp á áfengi.“

„Ekki stefna ungra sjálfstæðismanna“

Ingvar, for­maður SUS, segir að á við­burðum ung­liða­hreyf­inga mæti oft fólk sem er yngra en 20 ára, og að það komi fyrir að það fái áfengi. „Það er hins vegar auð­vitað ekki stefna ungra sjálf­stæð­is­manna að fólk undir lög­aldri drekki áfengi á við­burðum okkar. Okkur þykir miður ef að það hefur komið fyrir í þessu til­viki.“

Hann bætir við að SUS sé ekki sér­stak­lega að reyna að höfða til mennta­skóla­nema með ókeypis áfengi. „Það mættu 150 manns í opnun kosn­inga­mið­stöðvar okkar, og í ein­hverjum til­fellum hefur fólk fengið áfengi sem ekki er orðið 20 ára. Auðvitað er það ekk­ert til fyr­ir­myndar, og við munum beita okkur fyrir því í auknum mæli að reyna að vera með ein­hvers konar fyr­ir­komu­lag sem kemur í veg fyrir að þetta end­ur­taki sig.“

Ingvar gat ekki svarað hvernig slíkt fyr­ir­komu­lag myndi líta út, en að það væri stjórn­ar­fundur síðar í kvöld þar sem þetta mál yrði að öllum lík­indum rætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár