Stundarskráin 6. - 19. október

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu tvær vik­urnar.

Stundarskráin 6. - 19. október

Neil Young heiðurstónleikar

Hvar? Harpa 
Hvenær? 6. októ­ber kl. 21.30
Aðgangs­eyrir: frá 5.990 kr.

Hinn marg­verð­laun­aði og goð­sagna­kenndi rokk­ari Neil Young hefur spilað úti um allan heim, meðal ann­ars á Íslandi, og gefið út ógrynni af hágæða plötum. Tólf íslenskir tón­list­ar­menn taka fyrir plöt­urnar „Harvest“ og „Harvest Moon“, sem eru að mati flestra bestu plötur hans.

Sequences

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 6.–15. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Mis­mun­andi eftir sýn­ingu

Tví­ær­ingar-mynd­list­ar­há­tíðin Sequences er haldin í átt­unda skiptið, en hún ein­blínir á fram­sækna nútíma sjón­list. Sýn­ing­ar­stjóri hátíð­ar­innar er Margot Norton, en hún setur hátíð­ina með lif­andi gjörn­ingi hinnar japönsku lista­konu Aki Sasamoto í Hafn­ar­hús­inu 6. októ­ber kl. 16.30. Hátíðin er haldin í Nýlista­safn­inu, Ekkisens, Tjarn­ar­bíó, Hafn­ar­hús­inu og víðar.

Mighty Bear, KRÍA, Skaði og SEINT

Hvar? Gauku­ur­inn 
Hvenær? 6. októ­ber kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þessar fjórar hljóm­sveitir koma úr mis­mun­andi stefnum, en eiga það allar sam­eig­in­legt að vera skip­aðar ungum og efni­legum tón­list­ar­mönnum sem leggja dugnað í list­ina í að skapa kyngi­magnað and­rúms­loft. Heyra má allt frá rappi til popps og raf­tón­listar á þessum tón­leikum.

Agent Fresco

Hvar? Græni hatt­ur­inn, Akureyri
Hvenær? 6. októ­ber kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Hinir fræknu rokk­arar hafa haft nóg að gera síðan þeir unnu Mús­íktil­raunir 2008, en þeir hafa gefið út marga eft­ir­minni­lega slag­ara sem eru gjarnan til­finn­inga­þrungnir, með flók­inn hljóð­færa­leik og fluttir af mik­illi inn­lifun. Þeir taka aðra tón­leika 7. októ­ber í Vala­skjálf, Egils­stöðum.

Airwaves upphitun

Hvar? Kex Hostel
Hvenær? 7. októ­ber kl. 19.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Það er innan við mán­uður í tón­list­ar­há­tíð­ina Iceland Airwaves, og Kex Hostel býður tón­list­ar­þyrstum gestum á upp­hit­un­ar­kvöld með rapp­ar­anum Aron Can, R&B stjörn­unni Glowie, indí popp­ur­unum í Vök, og hinum ótrú­legu Jóa Pé og Króla sem föng­uðu athygli þjóð­ar­innar í sumar með ferskum lögum á borð við „B.O.B.A“.

Faðirinn

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 7. októ­ber til 1. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 5.500 kr.

Eggert Þor­leifs­son leikur André, eldri mann sem er far­inn að missa minnið og sinn stað í þessum heimi. Í þessum harm­ræna farsa tekst hann á við þessar erf­iðu breyt­ingar á lífi sínu sem hann getur ekki flúið. Leik­ritið er eftir Frakkann Florian Zeller, en það hefur verið sýnt víðs vegar um heim­inn. Kristín Jóhann­es­dóttir leik­stýrir.

Jóga og gongslökun

Hvar? Harpa
Hvenær? 9. októ­ber kl. 08.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Jóga­hjartað er félag sem hefur það mark­mið að koma fleiri skóla­börnum í tengsl við jóga og hug­leiðslu, en það efnir til jóga­tíma í morg­unsárið í Björtu­loftum í Hörpu þennan mánu­dags­morgun. Gestir verða leiddir í gegnum ýmsar æfingar og stell­ingar, og síðan gong­slökun.

Útgáfutónleikar Konsulat

Hvar? Húrra
Hvenær? 11. októ­ber kl. 21.00

Raf­tón­list­ar­dúóið Konsulat fagnar útgáfu plat­ar­innar „Vitam­inkur“ með útgáfu­hófi á Húrra, en platan er stút­full af rólegu gít­ar­spili, org­eli, trommu­heila og öðrum ljúfum tónum. Hinn sultu­slaki raf­tón­list­ar­maður russian.girls hitar upp.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár