Lagaprófessor fagnar frumvarpi Viðreisnar um skilgreiningu nauðgunar

„Slíkt ákvæði gæti haft áhrif til að fyr­ir­byggja brot,“ skrifar Ragn­heiður Braga­dóttir, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands og höf­undur frum­varps­draga sem lögð voru til grund­vallar viða­miklum breyt­ingum á kyn­ferð­is­brotakafla almennra hegn­ing­ar­laga árið 2007.

Lagaprófessor fagnar frumvarpi Viðreisnar um skilgreiningu nauðgunar

Ragn­heiður Braga­dóttir, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands og höf­undur frum­varps­draga sem lögð voru til grund­vallar viða­miklum breyt­ingum á kyn­ferð­is­brotakafla almennra hegn­ing­ar­laga árið 2007, telur að frum­varp þing­manna Við­reisnar um breytta skil­grein­ingu á nauðgun sé af hinu góða. Þetta kemur fram í grein sem birt­ist í nýju vefriti Úlfjóts en Úlf­ljótur er tíma­rit laga­nema við Háskóla Íslands. 

Jón Steindór Valdi­mars­sonþing­maður Við­reisnar og fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins

Þing­flokkur Við­reisnar hefur tví­vegis lagt fram frum­varp um að sam­þykki verði í for­grunni skil­grein­ingar á nauðgun í 1. mgr. 194. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Þannig verði horfið frá meg­in­á­herslu á verkn­að­ar­að­ferð við nauðgun. „Þess í stað verði aukin áhersla lögð á kyn­frelsi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt ein­stak­lings með því að skil­greina nauðgun út frá því hvort sam­þykki hafi verið fyrir hendi eða ekki,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins. Þar er lagt til að ákvæðið verði svohljóð­andi:

Hver sem hefur sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök við mann án sam­þykkis hans ger­ist sekur um nauðgun og skal sæta fang­elsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef það er fengið með ofbeldi, hót­unum eða ann­ars konar ólög­mætri nauð­ung, eða með því að beita blekk­ingum eða hag­nýta sér villu við­kom­andi um aðstæður. Til ofbeldis telst svipt­ing sjálf­ræðis með inni­lokun, lyfjum eða öðrum sam­bæri­legum hætti. 

Ragn­heiður Braga­dóttirlaga­pró­fessor

„Í þess­ari til­lögu er komin lausn sem tekur sam­þykki inn í laga­á­kvæðið og full­nægir kröfum um skýr­leika refsi­heim­ilda, því að þar er skil­greint hvenær sam­þykki er fyrir hendi og hvenær ekki,“ segir Ragn­heiður Braga­dóttir í grein sinni í Úlfljóti.

„Í þeirri skil­grein­ingu eru notuð sömu hug­tök og í gild­andi lögum. Frum­varpið felur því ekki í sér mikla breyt­ingu en segja má að það sé eðli­legur þáttur í þróun rétt­ar­ins og þar er leit­ast við að tryggja að lögin séu í sam­ræmi við rétt­ar­vit­und almenn­ings. Hins vegar leiðir frum­varps­á­kvæðið sam­þykkið betur fram í dags­ljósið, er auð­skilj­an­legt og slíkt ákvæði gæti haft áhrif til að fyr­ir­byggja brot.“

Upp­haf­legir flutn­ings­menn frum­varps­ins á 146. lög­gjaf­ar­þingi voru þing­menn Við­reisnar, þau Jón Steindór Valdi­mars­son, Hanna Katrín Frið­riks­son, Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, Pawel Bartoszek. Á 147. lög­gjaf­ar­þingi voru Andrés Ingi Jónsson og Svandís Svav­ars­dóttir, þing­menn Vinstri grænna, einnig í hópi flutn­ings­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár