Konan sem vill að dýr verði gerð að heiðursborgurum

Þórdís Aðal­steins­dóttir mynd­list­ar­kona situr fyrir svörum hjá Vigdísi Gríms­dóttur.

Konan sem vill að dýr verði gerð að heiðursborgurum

Nafn: Þórdís Aðal­steins­dóttir.

Fæð­ing­ar­dagur og ár: 25. októ­ber 1975.

Starf: Mynd­list­ar­maður.

Spurningar:

1. Hvað er það skemmti­leg­asta sem þú gerir?

Það skemti­leg­asta er auð­vitað að láta tala við mig í fleir­tölu. Fast á eftir fylgir skemmt­unin að liggja í rúm­inu. Þar má mála, lesa, skrifa og vinna í sam­böndum og sam­skiptum, að ógleymdu því að fá hug­ljómun milli svefns og vöku. Auk þess þykir mér skemmti­legt að finna steina, spýtur og smá­drasl sem ein­hver hefur troðið í töskur, vasa og veski hjá mér.

2.  Líf eftir þetta líf?

Já, kannski þannig að lík­amar brotni niður og frum­urnar end­ur­bygg­ist í eitt­hvað nýtt, og að gen og frumur, eða hvað það má kall­ast, hafi minni og muni and­ar­drátt og upp­haf alheims­ins, en ég skil ekki að hverju þau eru að kepp­ast. Næsta kyn­slóð mun finna út úr því.

3. Hvað er það neyð­ar­leg­asta sem þú hefur lent í?

Kannski þegar ég bjó til skúlp­túr fyrir skúlp­t­úr­garð í NYC. Reiður maður braut typpið af skúlp­t­úrnum og tók það með sér. Ég var í Taílandi en tveir drengir settu á stytt­una nýtt typpi, smá­gert en í fullri reisn. (Það var áður þykkt en værð­ar­legt). Þá varð allt vit­laust yfir hvað þetta væri mik­ill hryll­ingur, en hægði loks um þegar há girð­ing var reist í kringum skúlp­t­úr­inn. Nú liggur styttan í skúr hjá pikklu­gerð­ar­manni.

4. Ertu póli­tísk?

Nei, ég er í upp­gjöf.

5. Trúirðu á til­vilj­anir?

Já, því ekki það? Ég sé eftir ein­hverjum atvikum þar sem ég hefði átt að fylgja hug­boði og koma í veg  fyrir til­vilj­anir, en þær hafa líka verið frá­bærar margar og betri en nokkur plön.

6. Ef þú ættir eina ósk sem myndi örugg­lega ræt­ast, hver væri hún?

Að Jökulsá á Fjöllum væri freyði­vínsá.

„Ástin er eitt­hvað sem ég er sér­fræð­ingur í og sér­fræði­þekk­ing mín hefur hlotið góðar und­ir­tektir“

7. Ef þú gætir breytt ein­hverju sem þú hefur gert, hverju mynd­irðu breyta?

Ég myndi breyta svar­inu við spurn­ing­unni hér á undan, (en von­andi væri það ekki í boði) og óska þess að mann­fólk gæti ekki verið ill­gjarnt eða gráð­ugt, og þess að dýr yrðu gerð að heið­urs­borg­urum.

8. Hverju mynd­irðu breyta á Íslandi ætt­irðu þess kost?

Úff, það þyrfti að byrja bara frá grunni aftur, reka alla ráða­menn og rík­is­stjórn og koma á öðru skipu­lagi. Setja í for­gang umhverf­is­mál, raf­bíla­væða og bæta hjóla­menn­ingu, setja stolt okkar í að skapa umhverf­is­vænt og hreint land. Koma í veg fyrir einka­væð­ingu og koma vel fram við dýr.

9. En í heim­inum?

Ég mundi breyta því sama og í sjö­undu spurn­ingu.

10.   Ef þú skrif­aðir ljóða­bók, hvaða nafn gæf­irðu henni?

Portúgal eða Aukinn skiln­ingur á ljóðum.

Ef það má bara velja einn titil þá set ég auk­inn skiln­ing sem und­ir­titil.

11.  Hver er afstaða þín til flótta­manna?

Engin landa­mæri, engin vega­bréf.

12.  Hvaða dýr mynd­irðu vilja vera fen­g­irðu tæki­færi til þess?

Gíraffa­móðir með gíraffa­barn, það er löngu ákveðið.

13.  Segðu okkur eitt­hvað um ást­ina og byrj­aðu setn­ing­una svona: ÁSTIN ER …

Ástin er eitt­hvað sem ég er sér­fræð­ingur í og sér­fræði­þekk­ing mín hefur hlotið góðar und­ir­tektir og mik­inn stuðn­ing nákom­inna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár