Ólafur Ólafsson byggir lúxushótel og jarðhitalón á Snæfellsnesi

Fast­eigna­fé­lag Ólafs Ólafs­sonar hyggst byggja 150 her­bergja lúx­us­hótel og 1000 fer­metra jarð­hita­lón á Snæ­fells­nesi. Félagið hagn­að­ist um 421,1 milljón á síð­asta ári.

Ólafur Ólafsson byggir lúxushótel og jarðhitalón á Snæfellsnesi
Ætlar að byggja lúx­us­hótel og jarð­hita­lón Félag Ólafs Ólafs­sonar hyggst byggja 150 her­bergja lúx­us­hótel, 800 fer­metra heilsu­lind og 1000 fer­metra jarð­hita­lón við rætur Snæ­fells­jök­uls. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fyr­ir­tæki Ólafs Ólafs­sonar, kaup­sýslu­manns sem dæmdur var fyrir aðild sína að Al-Thani-mál­inu, hyggst byggja 150 her­bergja lúx­us­hótel, 800 fer­metra heilsu­lind og 1000 fer­metra jarð­hita­lón á landi Eiðhúsa á sunn­an­verðu Snæ­fells­nesi, við rætur Snæ­fells­jök­uls.

Það er fast­eigna­fé­lag Ólafs, Festir ehf., sem stendur að upp­bygg­ing­unni. Í mars var greint frá því að Reykja­vík­ur­borg hefði und­ir­ritað samn­ing við félagið vegna upp­bygg­ingar á rúm­lega 330 íbúða á Gelgju­tanga í Voga­byggð. Stuttu síðar kom skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis út sem sýndi þátt Ólafs í blekk­ingum sem hefðu verið uppi í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans og varð uppi hávær krafa um að samn­ingnum yrði rift. Nið­ur­staða lög­fræð­inga borg­ar­innar var hins vegar sú að ekki væri hægt að rifta samn­ingum við Ólaf út frá jafn­ræð­is­reglu og lögum sem Reykja­vík­ur­borg er bundin af.

Samkvæmt árs­reikn­ingi nam hagn­aður félags­ins 421,1 milljón króna á síð­asta ári. Þá námu eignir félags­ins rúmum 5,6 millj­örðum króna í lok síð­asta árs og eigið fé 1,1 millj­arður króna. 

Uppfært 29. sept­em­ber: Vegna frétta­flutn­ings vill Fast­eigna­þró­un­ar­fé­lagið Festir koma eft­ir­far­andi á fram­færi: „Jóhannes Torpe og Gláma Kím tóku þátt í hug­mynda­sam­keppni Festis ehf. vegna jarð­baða að Eiðhúsum á Snæ­fells­nesi síð­ast­lið­inn vetur. Enn hefur ekki verið tekin afstaða til til­lagn­anna vegna áfram­hald­andi vinnu í verk­efn­inu og því liggur vinn­ings­til­laga ekki enn fyrir. Staða verk­efn­is­ins er sú að verið að athuga afkasta­getu bor­holu á svæð­inu sem er ein meg­in­for­senda þess að hægt sé að halda áfram með verk­efnið. Enn á eftir að rann­saka betur efna­sam­setn­ingu heita vatns­ins á svæð­inu og aðra jarð­fræði­lega þætti sem geta haft mikil áhrif á fram­vind­una. Auk þess er ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Alta ehf. að vinna að nýju aðal­skipu­lagi fyrir Eyja- og Mikla­holts­hrepp sem einnig er nauð­syn­legur þáttur í fram­gangi verks­ins. Festir stefnir að því á næst­unni að semja um fram­hald hönn­un­ar­vinn­unar.

Verkið er á frum­stigi en vonir standa til að þetta metn­að­ar­fullt verk­efni kom­ist á lagg­irnar með kær­komnum tæki­færum fyrir ferða­þjón­ust­una á Vest­ur­landi.“

Dæmdur í Al-Thani málinu

Hæsti­réttur dæmdi Ólaf í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir aðild sína í Al-Thani  mál­inu svo­kall­aða í febr­úar 2015. Málið sner­ist um kaup félags í eigu sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani frá Katar á rúm­lega fimm próstent hlut í Kaup­þingi banka árið 2008, en í ljós hefur komið að Al-Thani lagði bank­anum ekki til nýtt fé með kaup­unum heldur voru þau fjár­mögnuð með lánum frá bank­anum sjálfum sem veitt voru í gegnum aflands­fé­lög. 

Þess má geta að Al-Thani dóm­ur­inn hefur verið kærður til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Svipuðum aðferðum var beitt við kaup Ólafs og félaga á Bún­að­ar­bank­anum, líkt og rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis leiddi í ljós. Þá var látið líta út fyrir að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser væri aðili að kaup­unum. Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyjum. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­munum, meðal ann­ars frá Kaup­þingi hf., inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser, var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­anum. 

Óljóst hvenær framkvæmdir hefjast

Í frétta­til­kynn­ingu frá danska arki­tekt­ar­fyr­ir­tæk­inu Johannes Torpe Studios, sem hann­aði lúx­us­hót­elið og jarð­hita­lónið á Snæ­fells­nesi, kemur fram að verk­efnið beri nafnið The Red Mountain Resort og eigi að fanga dul­ar­fulla töfra íslenskrar nátt­úru. Hönnunin er meðal ann­ars sögð hafa verið inn­blásin af Bárðar sögu Snæ­fellsás. 

Samkvæmt frétt mbl.is eru áformin stutt á veg komin og því ekki komið í ljós hvenær fram­kvæmdir geti haf­ist. Nú standi yfir rann­sóknir á jarð­grunni sem tengj­ast meðal ann­ars fyr­ir­hug­aðri myndun á lón­inu. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár