Óþekktur lánveitandi greiddi skattaskuldir Pressunnar

Sigurður G. Guð­jóns­son talar um eign­ar­hald sitt á Frjálsri fjöl­miðlun sem bið­leik. Allir skatta­skuldir fjöl­miðl­anna sem fyr­ir­tækið keypti af Press­unni hafa verið greiddar. Lög­mað­ur­inn vinnur að því að fá fleiri fjár­festa að félag­inu. Leynd ríkir um fjár­mögnun Frjálsrar fjöl­miðl­unar.

Óþekktur lánveitandi greiddi skattaskuldir Pressunnar
Vinnur með fjár­fest­ing­una Sigurður G. Guð­jóns­son segir að hann vinni að því að fá fleiri fjár­festa að fjöl­miðlum Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Mynd: Pressphotos

„Það eru alltaf ein­hverjir sem fjár­magna hlut­ina, bankar og svo­leiðis,“ segir Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður og fjár­festir, aðspurður um hverjir standi á bak við hund­ruð millj­óna króna fjár­fest­ingu í fjöl­miðlum Pressunnar fyrr í mán­uð­inum. Eins og er stendur Sigurður G. einn á bak­við fjár­fest­ing­una sem fór fram í gegnum fyr­ir­tækið Frjálsa fjöl­miðlun ehf. Fjár­fest­ingin er upp á um 600 millj­ónir króna og er afar ólík­legt að Sigurður leggi í slíka fjár­fest­ingu einn síns liðs og þess vegna leit­aði Stundin til hans eftir svörum um það, enda margar kenn­ingar á lofti um hverjir eru á bak við fjár­fest­ing­una. 

Ný stjórn hefur verið valin í Frjálsri fjöl­miðlun ehf., sam­kvæmt þing­lýstum gögnum, og leiðir Sigurður G. félagið sem stjórn­ar­maður og er lög­mað­ur­inn Björgvin Þor­steins­son vara­maður. Pró­kúru­hafi er Karl Garð­ars­son. Fyr­ir­tækið hét áður Eign­ar­halds­fé­lagið Mosi ehf. Fyr­ir­tækið er eitt stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins og eru DV, DV.is, Eyjan og Pressan meðal fjöl­miðla í eigu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár