Stundarskráin

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu tvær vik­urnar.

Stundarskráin

1984

Hvar? Borg­ar­leik­hús­inu
Hvenær? 15. sept­em­ber–4. októ­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 6.250 kr.

Úr skugga seinni heims­styrj­ald­ar­innar skrif­aði George Orwell dýstópíska meist­ara­verkið 1948 sem fjallar meðal ann­ars um skað­semi áróð­urs og mik­il­vægi gagn­rýn­innar hugs­unar. Sýningin býður í senn upp á nútíma­lega upp­rifjun á þessu tíma­móta­verki og áminn­ingu á hversu nálægt raun­veru­leiki okkar er kom­inn þess­ari ímynd­uðu hryll­ings­sýn Orwells.

Rappveisla

Hvar? Húrra
Hvenær? 22. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Overground Enterta­in­ment blæs til helj­ar­innar hip-hop og rapp­veislu þar sem sjá má kanónur eins og Bent úr XXX Rottweiler hundum spila með nýrri stjörnum eins og Ella Grill úr Shades of Reykja­vík. Einnig spila Geim­farar, ARKIR, og Bróðir BIG. BRR þeytir skífum á milli atriða.

 

RIFF

Hvar? Háskóla­bíói
Hvenær? 28. sept­em­ber–8. óktó­ber
Aðgangs­eyrir: 14.900 kr.

Alþjóð­lega kvik­mynda­há­tíð Reykja­víkur, RIFF verður haldin í 14. skiptið og verða rúm­lega 100 stutt-, heim­ildar- og kvik­myndir sýndar í ár, bæði íslenskar og erlendar. Hátíðin býður þar að auki vel völdum heið­urs­gestum til að halda fyr­ir­lestra á hverju ári, en í ár eru gest­irnir Olivier Assayas, Valeska Grisebach og Werner Herzog.

Teitur Magnússon og Indriði

Hvar? Húrra
Hvenær? 28. sept­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Teitur var þekktur fyrir að vera með­limur í reggí-hljóm­sveit­inni Ojba Rasta, og Indriði í pönk­sveit­inni Muck, en á síð­ustu árum hafa þeir báðir starfað sem sólólista­menn sem aðhyll­ast ljúfa sæka­del­íska indí-hljóma. Þeir spila bæði saman og hvor í sínu lagi á þessum tón­leikum.

Sóley

Hvar? Mengi
Hvenær? 29. sept­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Síð­ast­liðin 11 ár hefur Sóley Stef­áns­dóttir verið ómissandi hluti af dæg­ur­laga­menn­ingu Íslands, en um þessar mundir er hún að vinna að nýju verki fyrir harm­ónikku og rödd sem hún kynnir til sög­unnar á þessum inni­legu tón­leikum. Sóley mun einnig flytja lög af Króm­an­tík, smá­skífu með litlum píanó­v­erkum sem kom út árið 2014.

Raust !

Hvar? The Tin Can Factory, Borg­ar­túni 1 
Hvenær? 30. sept­em­ber–1. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Frjáls fram­lög.

Róttæku félags­sam­tökin Andrými halda haust­há­tíð sem sam­anstendur af vinnu­stofum sem fjalla um fjölda­hreyf­ingar á Íslandi, vinnu­staða­rétt­indi, flótta­menn og fleiri við­fangs­efni. Síðan verður gestum boð­inn matur, og hljóm­sveit­irnar Captain Syrup, Dead Herring, og Korter í flog halda tón­leika.

Kiasmos útgáfutónleikar

Hvar? Húrra
Hvenær? 30. sept­em­ber kl. 21:00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Félag­arnir Ólafur Arnalds og Janus Rasmus­sen, sem skipa raf­tón­list­ar­dúett­inn Kiasmos, bjóða upp á útgáfu­tón­leika fyrir smá­skífu sína Blurred, en hún kemur út 6. októ­ber. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem tvíeykið spilar á Húrra, en allir síð­ustu tón­leik­arnir hafa verið troð­fullir og mælum við með því að gestir tryggi sér miða með góðum fyr­ir­vara.

LA / Reykjavík

Hvar? Harpa 
Hvenær? 3.–12. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: frá 16.160 kr.

Fyrr í vor hélt Fíl­harm­ón­íu­hljóm­sveitin í Los Angeles umfangs­mikla hátíð til­eink­aða íslenskri tón­list, og efnir Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands því til svip­aðra hátíðar í Hörpu til­eink­aðri tón­list frá Los Angeles. Má heyra meðal ann­ars tón­list John Adams, Andrew Normans og tón­list úr vin­sælum kvik­myndum úr Hollywood.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár