„Ekki bara dropi í hafið heldur blaut tuska í andlitið á þessu fólki“

Aðeins 60 millj­ónum verður varið til verk­efna geð­heil­brigð­is­á­ætl­unar þrátt fyrir að Óttarr Proppé hafi ítrekað talað um geð­heil­brigði sem áherslu­mál sitt í rík­is­stjórn. Gunnar Hrafn Jónsson, þing­maður Pírata, segir fjár­hæð­ina móðgun við geð­sjúka og aðstand­endur þeirra.

„Ekki bara dropi í hafið heldur blaut tuska í andlitið á þessu fólki“

Gunnar Hrafn Jónsson, þing­maður Pírata, segir að til­laga rík­is­stjórn­ar­innar um að ein­ungis 60 milljón krónum verði varið til fram­kvæmdar aðgerða­á­ætl­unar um geð­heil­brigð­is­mál, sem Alþingi sam­þykkti í formi þings­á­lykt­unar í fyrra, sé móðgun við fólk sem glímir við geð­sjúk­dóma og aðstand­endur þeirra.

„Marg­um­töluð geð­heil­brigð­is­á­ætlun stjór­m­valda var von­ar­glæta fyrir marga sem eru í bráðri lífs­hættu eða eiga ást­vini í þeirri stöðu. En 60 millj­ónir… það er ekki bara dropi í hafið heldur blaut tuska í and­litið á þessu fólki,“ segir Gunnar í sam­tali við Stundina. „Þetta dugar ekki einu sinni til að koma til móts við ört vax­andi þörf, hvað þá að það bæti ástand þeirra sem nú þegar eru búnir að velkj­ast um í kerf­inu árum og ára­tugum saman.“ 

Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra hefur ítrekað lýst því yfir að hann leggi mikla áherslu á geð­heil­brigð­is­mál. Við myndun rík­is­stjórn­ar­innar í jan­úar gagn­rýndi hann að mála­flokk­ur­inn hefði setið á hak­anumog sagð­ist ætla að bæta úr því. Þegar fluttar voru fréttir af því að tveir menn hefðu svipt sig lífi inni á geð­deild síðla sum­ars steig Óttarr fram og tal­aði um mik­il­vægi þess að Íslend­ingar gerðu betur í geð­heil­brigð­is­málum. Tiltók hann sér­stak­lega að verja þyrfti auknu fjár­magni til mála­flokks­ins. 

Fjár­laga­frum­varp árs­ins 2018 var kynnt í gær­morgun. Í kynn­ing­ar­efni sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins er „geð­vandi og sjúkra­hús­þjón­usta“ efst á lista yfir helstu áherslu­mál rík­is­stjórn­ar­innar á fjár­laga­ár­inu 2018. 

Þegar rýnt er í fjár­laga­frum­varpið og grein­ar­gerð þess kemur í ljós að ein­ungis er gert ráð fyrir 60 millj­óna fram­lagi frá hinu opin­bera til að standa undir þeim fjöl­mörgu verk­efnum sem Alþingi sam­þykkti í formi ítar­legrar þings­á­lykt­unar um stefnu og aðgerða­á­ætlun í geð­heil­brigð­is­málum síð­asta vor. 

Með aukn­ing­unni, sem heyrir undir heilsu­gæslu í fjár­lögum, er ætl­unin að „fjölga sál­fræð­ingum, geð­heilsuteymum og með­ferð­ar­úr­ræðum við geð­vanda“. Þá er lít­il­lega minnst á geð­heil­brigð­is­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í umfjöllun um fjár­laga­lið­inn lýð­heilsa, for­varnir og eft­ir­lit. Í þeim mála­flokki er hins vegar ekki boðuð aukn­ing fjár­fram­laga heldur drag­ast þau saman um 41,3 millj­ónir frá gild­andi fjár­lögum að frá­töldum almennum launa- og verð­lags­breyt­ingum.

Í kafla grein­ar­gerðar fjár­laga­frum­varps­ins um sér­hæfða sjúkra­húss­þjón­ustu kemur fram að starfs­fólki á göngu­deild Barna- og ung­linga­geð­deildar Land­spít­al­ans verði fjölgað „í sam­ræmi við stefnu og aðgerð­ar­á­ætlun í geð­heil­brigð­is­málum“.

Ekki er tekið fram hve miklum fjár­munum eigi að verja til fjölg­un­ar­innar en eins og Stundin greindi frá í gær munu útgjöld hins opin­bera vegna þjón­ustu og rekst­urs Land­spít­al­ans aðeins aukast um 597 millj­ónir sem er langt undir því sem stjórn­endur spít­al­ans hafa full­yrt að þurfi til að tryggja við­un­andi þjón­ustu við sjúk­linga. Að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu munu fram­lög til geð­heil­brigðis- þjón­ustu allt í allt aukast um 105 millj­ónir króna í frum­varp­inu.

Gunnar Hrafn Jónsson er sá þing­maður sem hefur tjáð sig hvað mest um geð­heil­brigð­is­mál, en sjálfur hefur hann glímt við geð­sjúk­dóma og fjallað opin­skátt um reynslu sína af þeim.

Hann bendir á að sam­kvæmt nýlegri könnun land­lækn­is­emb­ætt­is­ins fari ástandið í geð­heil­brigð­is­málum ung­menna versn­andi.

„Mála­flokk­ur­inn hefur verið van­ræktur með skipu­lögðum hætti ára­tugum saman vegna rót­gró­inna for­dóma gegn heila­sjúk­dómum. Ef 48 manns, aðal­lega ung­menni, myndu far­ast úr fuglaflensu á einu ári yrði engu til sparað í átaki til að bjarga manns­lífum. Þegar slíkur fjöldi deyr vegna heila­sjúk­dóma er sett fram margra ára áætlun sem mætir ekki einu sinni brýn­ustu þörfum,“ segir Gunnar.

Gunnar Hrafn seg­ist ekki hafa fengið upp­lýs­ingar um hvernig nákvæm­lega standi til að fjár­festa í mála­flokknum sam­kvæmt geð­heil­brigð­is­á­ætlun. „Ég vona að það vanti eitt­hvað mikið inn í þessa útreikn­inga. Það virð­ist alla­vega ljóst að þetta á að drag­ast í mörg ár sem er ófor­svar­an­legt. Ef fram­lögin verða ekki marg­földuð mun það kosta fjölda manns­lífa á næstu árum og skapa dýrt lang­tíma­vanda­mál í formi tap­aðs mannauðs sem endar jafn­vel á örorku fyrir lífs­tíð,“ segir hann. „Með öðrum orðum, það kostar bæði manns­líf og pen­inga á morgun að van­rækja vanda­málið í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár