„Lamið á“ Áslaugu og hún „hengd“ af því hún er kona

Þingkona Fram­sókn­ar­flokks­ins og vara­þing­kona Vinstri grænna segja fjöl­miðla lemja á for­manni alls­herjar- og mennta­mála­nefndar vegna þess að hún er kona. Áslaug Arna sagði Frétta­blað­inu að hún hygð­ist ekki end­ur­skoða hegðun sína á sam­fé­lags­miðlum, enda hafa beðist afsök­unar.

„Lamið á“ Áslaugu og hún „hengd“ af því hún er kona

Eygló Harð­ar­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Hildur Knúts­dóttir, vara­þing­kona Vinstri grænna, telja að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, sæti ómak­legum árásum í kjöl­far mis­taka sinna vegna þess að hún er kona. „Áfram er lamið á henni. Nú skal sko taka hana niður,“ segir Eygló í færslu á Facebook. 

Stundin greindi frá því í byrjun vik­unnar að Áslaug Arna hefði óskað eftir aðstoð á Twitter svo hún gæti horft á streymi af hnefa­leika­bar­daga Conor McGregor og Floyd Mayweather. Haft var eftir stjórn­ar­for­manni Félags rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði að það væri sorg­legt að þing­menn nýttu sér ólög­lega þjón­ustu. Fleiri fjöl­miðlar fjöll­uðu um málið í kjöl­farið og baðst Áslaug Arna að lokum afsök­unar á hegðun sinni. Stundin greindi frá því sama dag að Áslaug Arna hefði lagst sér­stak­lega gegn því að fjallað yrði um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manns­ins Roberts Downey á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, en dregið í land eftir að nefnda­svið Alþingis skil­aði áliti um málið.

Í dag greindi svo Frétta­blaðið frá því að Áslaug hefði lækað Twitter-færslu um að ósk um fund þing­nefndar væri lýð­skrum. Lækið var sett í sam­hengi við fundi þing­nefnda síð­ustu miss­erin um veit­ingu upp­reistar æru. Aðspurð sagði Áslaug í við­tali við Frétta­blaðið að hún teldi ekki ástæðu til að end­ur­skoða hegðun sína á sam­fé­lags­miðlum í ljósi stöðu sinnar og ábyrgðar. „Nei, það tel ég ekki. Ég er búin að biðj­ast afsök­unar á þessu tísti sem var þarna inni í örskamma stund og taldi vera mis­tök. Að öðru leyti tel ég það ekki vera,“ er haft eftir henni í Frétta­blað­inu. 

Eygló Harð­ar­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, tjáir sig um frétta­flutn­ing af Áslaugu Örnu á Facebook í dag. „Kona gerir mis­tök og biðst afsök­unar. Áfram er lamið á henni. Nú skal sko taka hana niður. Karl gerir mis­tök. Allt í þessu fína,“ skrifar hún.

„Konur í póli­tík fá alltaf verri útreið en karlar“

Þá leggur Hildur Knúts­dóttir, vara­þing­kona Vinstri grænna, orð í belg: „Mér sýn­ist á frétta­flutn­ingi að nú eigi að hengja Áslaugu Örnu. Ég er ekki að segja að mér finn­ist hún endi­lega flekk­laus stjórn­mála­maður, því fer fjarri, en ég er orðin svo þreytt á því að sjá hvernig konur í póli­tík fá alltaf verri útreið en karlar. Það er engu lík­ara en að það séu gerðar miklu strang­ari sið­ferð­is­kröfur til þeirra. Getum við til dæmis munað að Bjarni Ben, for­sæt­is­ráð­herr­ann sjálfur, var í Panama­skjöl­unum? Og getum við munað þátt hans í Vafn­ings­mál­inu? Og hversu oft hefur fólk tengt honum hagn­ast á einka­væð­ingu rík­is­ins?“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár