Vildi horfa á bardagann án þess að greiða fyrir: „Sorglegt“ segir talsmaður rétthafa

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, óskaði eftir aðstoð á Twitter svo hún gæti horft á hnefa­leika­bar­daga án þess að greiða fyrir. Stjórn­ar­for­maður Félags rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði segir sorg­legt að þing­menn nýti sér ólög­lega þjón­ustu.

Vildi horfa á bardagann án þess að greiða fyrir: „Sorglegt“ segir talsmaður rétthafa
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Óskaði eftir aðstoð á Twitter til þess að hún gæti horft á hnefa­leika­bar­daga í gegnum ólög­lega streym­is­þjón­ustu. Mynd: xd.is

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, spurð­ist fyrir um það á sam­fé­lags­miðlum hvernig mætti horfa á „str­eam“ af hnefa­leika­bar­daga Conor McGregor og Floyd Mayweather. Slík streymi­þjón­usta er ólög­leg þótt mik­ill fjöldi fólks nýti sér hana, en Stöð 2 Sport hafði keypt rétt­inn til sýn­ingar á við­burð­inum sem fram fór um helg­ina. Áslaug eyddi færsl­unni eftir að hafa fengið svar við spurn­ingu sinni, en skjá­skot af ummæl­unum má sjá hér að neðan.

Uppfært 30. ágúst, kl. 13:00:
Áslaug Arna hefur beðist afsök­unar á mál­inu. „Ég gerði mis­tök og biðst vel­virð­ingar á því. Stundum þegar mikið liggur við þá leitar maður langt yfir skammt, kannski hvat­vísi en alla vega hugs­un­ar­leysi. Ég veit betur en get bara beðist afsök­unar. Mér skilst að ég hafi misst af góðum bar­daga,“ skrifar hún í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Twitter-reikn­ingur ÁslaugarÓskaði eftir aðstoð við að nálg­ast ólög­legar streym­is­þjón­ustur. Færsl­unni hefur nú verið eytt.

„Það er auð­vitað sorg­legt að sjá þetta, að þing­menn geti ekki farið að lögum. Hvaða for­dæmi setja þeir þá?“ segir Hall­grímur Krist­ins­son, stjórn­ar­for­maður Félags rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði, í sam­tali við Stundina. „Stað­reyndin er sú að aðilar hafa keypt rétt­inn af íþrótta­við­burðum dýrum dómi. Þeir halda fólki í vinnu, ráða fólk og borga skatta til sam­fé­lags­ins og þess vegna er sér­stak­lega dap­ur­legt að fólk í stöðu eins og hún skuli láta svona út úr sér.“

Hall­grímur bendir á að sjón­varps­iðn­aður á Íslandi velti í kringum 35 millj­örðum á ári, skapi störf og borgi skatta. Málefni menn­ingar og fjöl­miðla heyra undir mennta­mál, en sem fyrr segir er Áslaug for­maður þeirrar þing­nefndar Alþingis sem fer með þau mál.

Hall­grímur segir iðn­að­inn bund­inn ýmsum kvöðum og að ólög­legt nið­ur­hal og streym­is­þjón­usta hafi mikil áhrif á mark­inn hér á landi. „Þetta eru engar smá upp­hæðir sem tap­ast vegna streymis og ólög­legs nið­ur­hals. Við létum gera rann­sókn fyrir okkur og nið­ur­staðan var sú að tap inn­lendra aðila vegna streymis og ólög­legs nið­ur­hals var gróf­lega áætlað 1,1 millj­arður króna á ári. Af þeirri upp­hæð er hið opin­bera að tapa 350-450 millj­ónum króna,“ segir Hall­grímur.

Rann­sóknin var gerð í fyrra af Gallup og fékkst nið­ur­staðan með því að rann­saka hve mikið af höf­und­ar­vörðu efni væri stolið. Þá var fólk spurt hvort það hefði greitt fyrir efnið ef það hefði ekki haft aðgang að því með ólög­mætum hætti. 

Í lands­fund­ar­á­lyktun alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sam­þykkt var árið 2016 er lögð áhersla á að vernda skuli eign­ar­rétt raf­ræns efnis og draga verði úr ólög­legu nið­ur­hali. 

Bar­dag­inn hjá SímanumHægt var að greiða Símanum 5.500 krónur fyrir bar­dag­ann.

Til þess að horfa á bar­dag­ann með lög­mætum hætti var ekki nauð­syn­legt að kaupa áskrift að Stöð 2. Þannig bauð til dæmis Síminn not­endum sínum að kaupa aðgang að bar­dag­anum fyrir 5.500 krónur, en þar af greið­ast1.064 krónur í virð­is­auka­skatt. Laun Áslaugar Örnu sem þing­manns og for­manns alls­herjar- og mennta­mála­nefndar nema meira en 1,3 millj­ónum króna á mán­uði.

Auk Áslaugar Örnu hefur Eva H. Bald­urs­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og lög­fræð­ingur hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, talað opin­ber­lega um að hún nýti sér ólög­lega streym­is­þjón­ustu.

Eva óskaði fyrir rúmum tveimur vikum eftir aðstoð til að horfa á PGA-golf­móta­röð­ina. „Á dauða mínum átti ég von à en að sá dagur kæmi að ég gæti ómögu­lega misst af 4 umferð PGA, ekki einu sinni spilandi golf ... en ef ein­hver er með Tips um hvernig ég get horft án stöð 2 væri það vel þegið,“ sagði Eva í færslu á Facebook.

Facebook-reikn­ingur EvuÓskaði eftir ráðum til þess að hún þyrfti ekki að greiða Stöð 2 fyrir þjón­ust­una.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár